Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 9
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
9
Utlönd
Um 70 forust í flugslysi
Halldór Valdimarsson, DV, Dallas:
Um 70 marrns fórust þegar DC-9 þota
frá mexíkanska flugfélaginu Airo
Mexico og lítil einkaflugvél rákust
á í lofti yfir bæ skammt fyrir suð-
austan Los Angeles í Kalifomíu í
gær.
Eftir áreksturinn hrapaði litla vél-
in á lóð bamaskóla en brak DC-9
þotunnar lenti í íbúðarhverfi og
eyðilagði fiögur hús.
Allir þeir sem í flugvélunum tveim
vom fórust, sextíu og tveir í þotunni
en fimm í litlu vélinni. Ekki er ljóst
hvort einhverjir fórust á jörðu niðri
þegar brakið lenti á húsunum en að
minnsta kosti einn maður lét lífið
af völdum bmnasára sem hann hlaut
við tilraunir til að slökkva eldinn í
húsi sínu.
Ekki er vitað hvemig áreksturinn
varð en talið er að litla véhn hafi
rekist á afturenda þotunnar sem var
í aðflugi að alþjóðaflugvellinum í
Los Angeles. Flugmenn þotunnar
vom í talstöðvarsambandi við flug-
umferðarstjóm á þeim tíma en
ólíklegt er talið að flugmaður litlu
vélarinnar hafi verið í talsambandi
við opinbera aðila. Veður var gott
og skyggni nægilegt til þess að
einkaflugmenn á svæðinu vom í
sjónflugi og því ábyrgir fyrir flug-
leiðarvali sínu.
Svarti kassinn svonefndi, sem
geymir upptökur á samræðum flug-
manna og upplýsingar um athafinr
þeirra, fannst í braki þotunnar í gær.
Hættan á árekstrum flugvéla í lofti
yfir og við umferðarmestu flugvelli
Bandaríkjanna er flugyfirvöldum sf-
fellt meira áhyggjuefhi. Undanfama
mánuði hefur hvað eftir annað legið
nærri að árekstrar yrðu, meðal ann-
ars í Chicago og Dallas.
Mikill fjöldi smárra einkaflugvéla
er eitt af helstu áhyggjuefriunum í
því tilliti því flugumferðarstjómir
geta takmarkað fylgst með ferðum
þeirra og geta því ekki í raun tiyggt
að flugmenn þeirra haldi sig á heim-
iliðum flugleiðum.
Bandaríkin:
Yfirvöld áhyggjufull vegna
einkanámskeiða í hemaði
HaEdór Valdimaissan, DV, DaDas:
Athygli yfirvalda í Bandaríkjunum
beinist nú í auknum mæli að fyrirtækj-
um og einstaklingum sem árum saman
hafa rekið námskeið í hemaðartækni
fyrir einstaklinga. Námskeið þessi
hafa til þessa verið sögð kenna sjálf-
svamartækni en í mörgum tilvikum
felst sú sjálfsvöm í þjálfun sem á meira
skylt við skæmhemað en nokkuð
annað.
Meðal þess sem boðið er upp á em
námskeið í vopnameðferð og vopna-
beitingu. I mörgum tilvikum em þar
kynnt og notuð vopn sem enginn aðili
annar en bandaríski herinn á að hafa
yfir að ráða. Þá er boðið upp á kennslu
í aðferðum í návígi eða hvemig hægt
er að drepa menn án vopna. Þátttak-
endum er kennt að fara með og jafnvel
búa til sprengiefni. Loks er kennt
hvemig hægt er að komast af, bæði í
borgum og til sveita, ef nauðsynlegt
er að fara huldu höfði, komast undan
óvinum eða læðast að þeim.
Ekki er ljóst hvaða stefiiu þetta mál
tekur í framtíðinni. Eins og er hafa
alríkisyfirvöld takmarkaðan áhuga á
að skipta sér af skólum þessum, eink-
um þar sem FBI hefúr notað að
minnsta kosti einn þeirra í starfsemi
sinni. Yfirvöld einstakra fylkja hafa
hins vegar greinilega hug á að fylgjast
nánar með því sem skólamir bjóða upp
á og þá jafnframt að reyna að hafa
einhveija stjóm þar á.
Ákærður fyrir njósnlr í Sovétríkjunum
Bandaríkin segja
sönnunargögnin fölsuð
HaDdór VaJdttnaiasan, DV, DaDas
Bandarisk yfirvöld segja að hand-
taka Nicholas DaniloBs, fréttarita
tímaritsins U.S. World and News
Report í Moskvu, sé byggð á til-
búningi og fölsuðum sönnunargögn-
um.
Daniloff var handtekinn í síðustu
viku, þegar hann yfirgaf heimili so-
vésks vinar síns, og sakaður um
njósnir. Hafði hann meðferðis pakka
sem hann sepst hafa fengið hjá vini
sínum. í pakkanum vom ríkisleynd-
armál, að sögn KGB.
Stjómendur tímaritsins, sem Dani-
loff starfar fyrir, segja fáránlegt að
saka hann um njósnir. Handtaka
hans sé gróf tilraun til þess að jafha
leikinn eftir handtöku sovésks
starfsmanns Sameinuðu þjóðanna í
New York fyrir nokkru en hann er
sakaður um njósnir í þágu Sovétríkj-
^nnnnnnno,
Viljir þú vönduð hljómtæki þá velur þú AIWA
Því meir sem fréttist af því sem kennt
er á þessum námskeiðum, þeim mun
alvarlegri verða áhyggjur yfirvalda.
Fylkisstjóri Alabama reynir um þessar
mundir að láta loka skóla nokkrum í
fylkinu, vegna námsefiiis þess sem þar
er kennt. Telur hann, og margir aðrir
ráðamenn, að í raun sé verið að ala
upp borgarskæmliða, að árangur
starfs þessara fyrirtækja verði í raun
sá að yfirvöld þurfi í framtíðinni að
fást við afbrotamenn sem hafi meiri
og betri þjálfun í fyrmefhdum greinum
en lögreglumenn fá.
Bent er á mál eitt sem nú er í gangi
í Kalifomíu þar sem nokkrir af fyrr-
verandi nemendum hertækniskóla em
ákærðir fyrir að hafa sprengt bifreið
1 loft upp. Vom þeir ráðnir til verksins
af tveim konum sem vildu hefha sín á
þriðju konunni og stóðu því beinlínis
í rekstri hermdarverkaþjónustu.
Þeir sem reka skólana mótmæla öll-
um ásökunum yfirvalda. Segja þeir
þjónustu sína nauðsýnlega þvi banda-
ríski herinn geri lítið sem ekkert til
að þjálfa Bandaríkjamenn til hemað-
ar, þannig að bandaríska þjóðin sé í
raun vamarlítil í dag. Segja þeir
bandaríska hermenn þjálfaða til að
verða skotmark en ekki til að verða
hæfir hermenn. Benda þeir é að marg-
ir nemenda þeirra fari til starfa
erlendis sem málaliðar og hafi það
sannað gildi þeirrar þjálfunar sem
þeir fengu í skólunum.
AIWA V-200 Útvarp: LB-MB og FM stereo meö sjálfleitara og 12 stöðva minni.
Magnari: 2x25 W. RMS, 5 banda tónjafnari jafnt á upptöku sem afspilun og hljóðnemablöndun.
Segulband: Fram og til baka (auto reverse), bæði á upptöku og afspilun, lagaleit-
un, sjálfvirkur rofi fyrir normal, CR O2 eða metalspólur og dolby B.
Plötuspilari: Sjálfvirkur eða manual, linear tracking og samhæfð tenging við segulband.
Hátalarar: 30 W sem koma á óvart. Op’*ð a\\a
laogartlaBa 10
verð Kr. 39.565,- W- Hátalarar kr. 8.785,- stgr.
Þetta er aðeins ein af átta mismunandi
AIWA samstæðum sem við
bjóðum upp á núna.
jy r-i
Armúla 38, simar 31133 og 83177,
og Garðatorgi 1, Garðabæ, sinti 656611.
Beint leiguflug í sólina.
Vika í Spánarsól, kr. 15.800 (li íbúð), 11.-18. sept,
Brottfarardagur 11. sept. og 18. sept., ein - tvær
eða þrjár vikur, þið veljið um dvöl í ibúðum,
raðhúsum eða hótelum með mat. íslenskir far-
arstjórar, fjölbreyttar skemmti- og skoðunar-
ferðir.
Við seljum síðustu sætin í beinu leigufiugi í sólina:
Mallorca eða BENIDORM
Mallorca og Amsterdam.
1, 2 eða 3 vikur á Mallorca og dagar
í Amsterdam á heimleið.
Vesturgötu 17 símar 10661,15331, 22100