Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 13
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
13
Neytendur
Uppskeran að hefjast:
Farið variega með við-
kvæmar kartöflumar
„Það é að reyna að taka upp í þurru
veðri og helst ekki íyrr en um hádegi,
þegar lofthiti er orðinn sæmilega góð-
ur. Þá verður að gæta þess að henda
ekki kartöflunum harkalega í fötuna
því þá meijast þær. Nýuppteknar kart-
öflur eru ákaflega viðkvæmar, sér-
staklega ef þær eru teknar upp áður
en þær eru orðnar fullsprottnar," sagði
Agnar Guðnason, yfirmatsmaður
garðávaxta, í samtali við DV. Við
fengum hann til þess að leiðbeina fólki
með hvemig það á að meðhöndla kart-
öflumar sínar til þess að fá sem mest
út úr uppskerunni.
„Ef kartöflumar em mjög moldugar
er sjálfsagt að skola af þeim og láta
þær þoma, en alls ekki þar sem sól
skín á þær. Þá á að geyma kartöflum-
ar á hlýjum stað, eða í um 12 gráða
hita, í svona hálfan mánuð og láta þær
þá í kalda geymslu.
Það má alls ekki skína sól á kartöfl-
umar. Þá geta þær orðið grænar sem
er ekki gott. Grænar kartöflur ná t.d.
ekki mati, en að þær séu eitraðar er
alveg af og frá. Þær verða bragðvond-
ar,“ sagði Agnar.
Hann er einnig með ráð handa stór-
framleiðendum í kartöfluræktinni.
Taka upp með handverkfærum. Ekki
byija upptöku fyrr en lofthiti er minnst
kominn í 5 gráður, taka upp í þurru,
skola viðloðandi jarðveg af og þurrka
kartöflumar strax, t.d. gera þetta í
gisnum poka, forðast að láta sólina
skína á kartöflumar og senda aðeins
þurrar og hreinar kartöflur á markað-
inn.
Agnar bendir afurðastöðvunum á að
sleppa þvotti á sumarkartöflum, taka
sem minnst í geymslu, helst ekki nema
þriggja til fjögurra daga sölu, forðast
allt hnjask við pökkun og forðast að
láta kartöflumar standa í of mikilli
birtu.
Þá hefur Agnar beint því til smá-
söludreifingaraðila að taka ekki meira
en tveggja daga sölu f einu, láta ekki
kartöflumar vera í of mikilli birtu og
láta þær vera á köldum stað í verslun-
inni. Einnig brýnir Agnar fyrir
smásölum að tína reglulega úr smælki
þar sem kartöflur em seldar í lausu.
„Neytendur eiga rétt á að fá góðar
kartöflur og hart að kartöflumar skuli
vera eyðilagðar á leiðinni frá framleið-
anda til neytendanna," sagði Agnar
Guðnason.
-A.BJ.
Svona eiga kartöflur að vera, með örþunnu hýði sem varla sést og engin
ástæða er til þess að fjarlægja.
Best er að taka upp í þurru og helst ekki fyrr en um hádegisbilið þegar lofthiti
er melri en strax á morgnana. En fyrir alla muni farið variega með kartöflum-
ar, þær eru afar viðkvæmar. DV-myndir PK
Nú stefnir í tuttugufalda uppskeru á kartöflum. Agnar Guðnason með Mörtu Sigurðardóttur á Blikastöðum sem tók
upp með okkur nokkur kartöflugrös.