Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Spumingin
Ertu búin(n) aö fara á
Heimilið ’86
í Laugardalshöll?
Rúnar Óskarsson nemi: Nei, ekki
ennþá, en ég ætla örugglega að fara.
Guðmundur Bjarnason viðskipta-
fræðingur: Nei, en ég hef nú samt í
huga að fara.
Guðjón Gíslason eftirlaunamaður:
Nei, ég á ekkert erindi á þessa sýn-
ingu.
Kristín Stefánsdóttir afgreiðslu-
stúlka: Nei, en ég ætla að fara og sjá
þetta allt saman.
Sólveig Gunnarsdóttir fóstra: Nei og
ég ætla ekki að fara því ég er ekki
að leita að neinu sérstöku.
Ólafur Ólafsson veitingamaður: Nei,
ekki er ég það nú, ég er reyndar ekki
búinn að hugsa út í það hvort ég
fer. Ég á svo sem ekkert erindi á
þessa sýningu.
Lesendur
Bréfrttari á erfitt með að trúa því aö geislavirk efni hafi ekki borist til íslands eftir slysið í Chernobyl.
Skyldi öll hættan vera liðin hjá?
Lífhræddur skrifar:
Þó að nokkur tími sé síðan slysið
varð í kjamorkuverinu í Chemobyl
þykir mér rétt að vekja fólk til
umhugsunar um þær hættur sem þetta
slys hefur valdið og getur valdið.
Nú hefur verið reynt í fjölmiðlum
að fullvissa okkur Islendinga um að
okkur stafi engin hætta af þessu slysi.
Þessu á ég mjög erfitt með að trúa þar
sem þegar er farið að kaupa inn ýmsar
vörur fiá löndum með háa geisla-
virkni. Má þar neftia Prince Polo, hið
sívinsæla súkkulaði frá Póllandi, og
búlgarskar kartöflur. Við Islendingar
höfum á engan hátt verið sannfærðir
um að þessar vörur séu hættulaus-
ar.
Mér finnst að við íslendingar ættum
að vera á verði gagnvart öllu þessu
og ekki láta bjóða okkur upp á hvað
sem er og eiga það síðan á hættu að
deyja úr kraþbameini.
Ljósmyndapoki fýnd-
ist í Seljahverfi
Ingi Agnarsson hringdi:
Fyrir nokkrum dögum týndi ég
ljósmyndapoka utan af þrífæti. Pok-
inn er merktur mér á óhnni og er
hann af gerðinni Tenba. Hann er
rauðbrúnn á lit og týndi ég honum
sennilega neðarlega í Seljahverfinu.
Finnandi vinsamlegast skili pok-
anum í verslunina Candís, Eddufelli
6, ásamt heimilisfangi og nafni. Ég
heiti góðum fundarlaunum.
Framúrskarandi út-
stilling hjá Vogue
Vegfarandi hringdi:
Ég geng daglega Skólavörðu-
stíginn og vil ég þakka versluninni
Vogue fyrir framúrskarandi flotta
útstillingu.
Þessi útstilling hefur verið Reykja-
víkurborg til sóma og mættu fleiri
verslanir taka sig til og sýna hug-
myndaflug í gluggaútstillingum
sínum. Mér finnst að verslunin
Vogue eigi sannarlega skilið að fá
verðlaun.
„Hjólrelðabrautir
stórvantar
í Reykjavík"
Hjólreiðamaður hringdi:
Það er alltaf verið að tala um að
fólk þurfi að hreyfa sig til þess að
halda heilsunni í lagi. Þessu er ég al-
gjörlega sammála en vandamálið er
að aðstæður hér í Reykjavík bjóða
ekki upp á mikið svigrúm. í þessu sam-
bandi á ég sérstaklega við aðstæður
fyrir hjólreiðafólk.
Ég hef mikið gaman af því að hjóla
og finnst að ég fái mikla heilsubót út
úr því. Það sem ég er mjög óánægður
með er að í Reykjavík er nær engin
aðstaða fyrir hjólreiðafólk, annað-
hvort eru það götumar eða gangstétt-
imar. Það sem vantar em hjólreiða-
brautir. Ef hjólað er á götum verða
ökumenn öskuvondir yfir hægagangi
hjólreiðamanna og ef hjólað er á gang-
stéttum á maður það alltaf á hættu
að hjóla niður gangandi fólk.
Ég geri mér grein fyrir að í gömlu
hverfunum er illmögulegt að breyta
um skipulag, það verður að hafa það.
En væri ekki góð hugmynd að í þeim
hverfum sem em í uppbyggingu verði
komið fyrir hjólreiðabrautum? Mér
finnst að engin spuming eigi að vera
um þetta mál, hjólreiðabrautir stór-
vantar í Reykjavík Tökum til dæmis
Dani til fyrirmyndar. Þó að landið
þeirra sé lítið em þeir ekkert nískir á
það fyrir vegfarendur, allir komast
leiðar sinnar auðveldlega.
„Bylg|an
er þarfa-
Nng“
D.D. hringdi:
Ég hef verið að hlusta á útvarþsstöð-
ina Bylgjuna sem nýlega tók til starfa
og verð ég bara að segja að mér lýst
vel á hana.
Bylgjan er þarfaþing og þó að tækni-
örðugleikar séu til að byija með, þá
efast ég ekki um að Bylgjan verði vel
slípuð í lokin. Ég er sérstaklega án-
ægður með að fréttaflutningur skuli
vera með svona stuttu millibili, því að
það em ekki allir sem geta lagað sig
að fréttaflutningi Ríkisútvarpsins.
Fyrir þá sem alltaf em á ferð og flugi
eins og til dæmis ég, þá er mjög hag-
kvæmt að hafa stuttar fréttir með
stuttu millibili. Með lagaval Bylgju-
manna er ég allánægður með, það
virðist vera eitthvað við allra hæfi.
Svo vil ég óska Bylgjunni góðs geng-
is og þakka fyrir mig.