Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 19
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
19
Menning
Vilhjálmur Hjálmarssort arfcitekt.
Slæm tengsl
við gamla Al-
þingishúsið
Vilhjálmur Hjálmarsson hafði þetta
um verðlaunatillöguna og samkeppn-
ina að segja: „Ég er nú húsfriðunar-
sinni og á því bágt með að kyngja því
að húsin við Kirkjustræti skuli þurfa
að víkja eins og gert er ráð íyrir í for-
sögn.
Mér þykir verðlaunabyggingin í
stærri kantinum en þó virðist hún taka
tillit til gamla Alþingishússins.
Menn hafa látið í ljós aðdáun á því
hvemig innra rými hússins er skipu-
lagt og ég get alveg tekið undir hana
þó mér þyki hallinn á þessu innitorgi
dálítið glannalegur.
Tuminn á byggingunni höfðar ekk-
ert sérstaklega til mín en á eflaust
eftir að gleðja augu einhverra.
Tengslin við gamla Alþingishúsið
þykja mér slæm en þar er mönnum
ætlað að vera á gangi utanhúss.
Hins vegar finnst mér að Manfreð
hafi komist mjög vel fiá þessum
tengslum."
-ai
Tónlelkar i Krístskirkju I Landakoti 24.
ágúsL
Stjómandi: Hákon Leifsson.
Einsöngvari: Ragnheiður Guðmundsdóttir.
Einleikari: Guðni Franzson.
Efnisskrá: Hans Abrahamsen: Wint-
emacht; Gustav Mahler. Lleder eines
fahrenden Gesellen í úts. Amolds Schön-
berg; WoHgang Amadeus Mozart Konsert
fyrír klarinettu og hljómsveit i A-dúr KV
622.
Það er ekki ný bóla að ungir tón-
listarmenn, sem em í þann veginn
að ljúka framhaldsnámi eða em ný-
komnir heim frá námi, efni til
tónleika þegar þau hittast hér heima
í leyfum. Einir slíkir vom haldnir á
sunnudag og vom aðrir í röðinni
þann daginn. Af uppröðun efnisskrár
hefði mátt ætla að viss uppreisnar-
andi ríkti með aðstandendum tónlei-
kanna, því að þar var byrjað á
yngsta verkinu og endað á því elsta.
Ekki er það nú stórhættulegt brot á
hefð og hefur raunar heyrst um
hljómsveitir sem hafa haft þennan
háttinn á um árabil - upphaflega sem
merki uppreisnar, en búnar að nota
svo lengi að uppreisnarkeimurinn
er tekinn að dofiia.
Þægilega gamaldags
Wintemacht eftir Hans Abra-
hamsen var fyrst verka á skránni.
Titill verksins er fenginn að láni frá
austurríska skáldinu Georg Trakl.
Trakl varð skammlífur - lést aðeins
tuttugu og sjö ára, en skildi þó eftir
sig varanleg spor með ljóðasafhi sínu
Traumbilder. Reyndar em tveir af
fjórum þáttum verksins tileinkaðir
Trakl, en einn myndlistarmanninum
Escher og annar Stravinsky. Wint-
emacht reyndist hin áheyrilegasta
músík - allt að því þægilega gamal-
dags, en dáhtið hikandi leikin -
svona rétt eins og ekki væm allir
alveg hárvissir á því hvað þeir væm
að gera, eða mættu leyfa sér innan
ramma verksins og veggja kirkjunn-
ar.
Ekki lengur óþekkt
Ragnheiði Guðmundsdóttur
þekkja ekki margir úr músíklífi
Reykjavíkur. Helst er að hún hafi
sungið einsöng með kórum sunnan
með sjó og höfuðstaðarbúar em svo
vissir um að þar sé lífið bara salt-
fiskur að þeim dettur ekki í hug að
þar leynist líka menningarsprotar.
Nú, í þau skipti sem Ragnheiður
hefur sungið sjálfstætt í Reykjavík,
Guðni Franzson klarínettuleikari.
Tónlist
Eyjóllur Melsted
eða næsta nágrenni hennar, hafa
tónleikar hennar oftast lent í harðri
samkeppni við aðra merkilega at-
burði og orðið útundan hvað athygli
snertir. En héðan í frá vita menn
af Ragnheiði, þökk sé þeim ungu
tónlistarmönnum sem fengu hana til
liðs við sig. Með ljómandi flutningi
sínum á Söngvum förusveinsins söng
hún sig inn í hjörtu þeirra sem á
hlýddu.
Að hreintrúarmönnum svelg-
istá
Á Listahátíð vöktu tónleikar
Guðna Franzsonar og Ulriku David-
son einna mesta athygli. Vom
raunar eitt af því fáa sem frumlegt
gat talist á þeirri hátíð, sællar minn-
ingar. Nú lék Guðni hins vegar ekki
spónný stykki, heldur eina af ger-
semum klarínettubókmenntanna
gegnum tíðina, konsert Mozarts fyr-
ir hið sæta tré. Það var með tölu-
verðri eftirvæntingu að ég fór að
hlýða á Guðna spreyta sig á þessum
fræga konsert. í klarínettuleik pilts-
ins er nefhilega svo marga þætti að
finna sem koma myndu hreintrúar-
mönnum um Mozarttúlkun til að
svelgjast á. Mætti þar til tína flesta
liði, tóninn, tæknina, já og reyndar
næstum hvað sem er. En sama er
hverjar forsendur menn gefa sér, það
er túlkunin og leikurinn í heild sem
blífur. Og þar liggur styrkur Guðna.
Á sinn eigin hátt finnur hann sjar-
mann í músíkinni og kemur til eyma
áheyrandans og þegar slíkt er fyrir
hendi mega allar hreintrúarstefriur
fara í rass og rófu.
Hljómsveitin keyrði að vísu á sama
gasi allan fyrsta kaflann. Þar varit-
aði gjörsamlega ahan sveigjanleika
og véfrænan sat að völdum. En um
miðbik hæga kaflans var eins og lið-
ið leystist úr álögum. Stífhin hvarf
og einstaklingamir mynduðu hljóm-
sveit, gjörbreytta og vel spilandi.
Hvað olli er erfitt að geta sér til um.
Kannski hljómurinn í húsinu,
kannski venjulegt nervösítet. Það
skiptir í raun engu máli því útkoman
varð að lokum harla góð. Stjóm
Hákonar Leifssonar var allömgg og
virðist hann vera efni í stjómanda.
En fyrst og síðast ber að þakka ljón-
unum ungu sem að stóðu fyrfr
skemmtilega tónleika.
EM
Norræna
Afríkustofnunin
auglýsir hér með:
- Ferðastyrki til rannsókna I Afr-
iku. Umsóknir þurfa að berast
stofnuninni i siðasta lagi 30/9
1986.
- Námsstyrki til náms við bókasafn
stofnunarinnar timabilið janúar-
júní 1987.
Siðasti umsóknardagur 1/11 1986.
Upplýsingar í síma (0)18-155480.
Uppsölum, eða i pósthólfi 1703,751
47, Uppsala. Sverige.
, SNÁlLnHÖLLIN .
1 Miðbæ Garðabæjar. s. 656520
Snyrtistofan
Coral
Miðbœ Garðabœjar
Margs konar andlitsböð.
ANÐLITSLYFTÍNG.
Húdhreinsun.
Sérstakir kúrar fyrir aclme-húð.
Fót- og haiulsnyrting.
Plokkun og litun.
Vaxmeðferð.
Hitamaski fyrir bauga og poka nndiraugw
Dag- og kvöldförðun.
Opið daglega frú kl. 10-18.
Laugardaga frá kl. 10-16.
Qbnwrtistöfan
\
BILALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:......95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
nTFTVfT
r/iLilYll
SEM VERT ER AÐ ATHUGA
í HÚSG AGNADEILD|||
15%
-HUSSINS
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
Dæmi 1:
Húsgagnakaup fyrir kr, 25.000, kr. 5000 út og kr.
5000 pr. mánuð í 4 mánuði. VAXTALAUST.
Dæmi 2 ■"
Húsgagnakaup fyrir kr. 50.000, kr. 10.000 út og
kr. 10.000 pr. mánuð í 4 mánuði. VAXTALAUST.
ATH. Einnig skuldabréf í allt að 8 mánuði með
20% útborgun.
SÉRSTAKT SUMARTILBOÐ
Ath. Aðeins í húsqaqnadeild
Opið mánud.-fimmtud. 9-18.30 - föstudaga kl. 9-20
Lokað á laugardögum í sumar.
Jón Loftsson hf.
visa
Hringbraut 121 Sími 10600
Húsgagnadeild - Sími 28601
interRent
„MÓDEL SILKE“
Verð kr. 3.650.00
Sendum gegn póstkröfu.
FCIPUHÚSÍÐ
Suðurlandsbraut 30, simi 687080.
Ódýru, þýsku skrifborðs-
stólarnir komnir aftur.