Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Qupperneq 20
INNRITUN f PRÚFADEILDIR
GRUNNNÁM - aðfararnám og fornám.
FRAMHALDSNÁM - forskóli sjúkraliða, viðskipta-
braut, almennur menntakjarni,
fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, mánudag
1. sept. kl. 17-20.
Kennslugjald fyrir fyrsta mánuð greiðist við innritun.
Upplýsingar í símum 12992 og 14106.
Skólastjóri.
nýitónlistarskólinn
Frá IMýja
tónlistarskólanum
Innritun nemenda fyrir næsta skólaár fer fram í skólan-
um frá miðvikudegi 3. sept. til föstudags 5. sept. kl.
17-19.
Nemendur frá í fyrra mæti á miðvikudag og fimmtu-
dag og staðfesti umsóknir sínar frá í vor með greiðslu
á hluta skólagjaldsins. Þetta á einnig við nemendur
úr forskóla. Tekið verður á móti nýjum umsóknum
föstudaginn 5. sept. á sama tíma. Innritun í forskóla,
fyrir börn á aldrinum 6-8 ára, verður alla dagana frá
kl. 17-19.
Skólinn verður settur mánudaginn 15. sept. kl. 17.
Nýi tónlistarskólinn.
mIAUSAR STÖtXJR HJÁ
Wj REYKJAVÍKURBORG
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða
á Droplaugarstöðum.
Nánari upplýsingar veitirforstöðumaður í síma 25811.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
eyðublöðum er þar fást.
SJÚKRALIÐAR - SJÚKRALIÐAR
Ábending frá sjúkraliðum sem vinna á Droplaugar-
stöðum.
Hingað vantar sjúkraliða til starfa. Hér er góð vinnuað-
staða, skemmtilegt umhverfi, góður starfsandi og
staðurinn er miðsvæðis í borginni.
Hvernig væri að koma og skoða?
RlKISSPÍTALARNlB
lausar stöður
Fóstra óskast við dagheimili Ríkisspítala, Sólbakka
við Vatnsmýrarveg. Upplýsingar veitir forstöðumaður
dagheimilisins í síma 22725.
Læknaritari óskast við krabbameinslækningadeild.
Hlutastarf kemur til greina. Stúdentspróf eða hliðstæð
menntun áskilin ásamt góðri íslensku- og vélritunar-
kunnáttu. Upplýsingar veitir læknafulltrúi krabba-
meinslækningadeildar í síma 29000.
Starfsfólk óskast við ræstingadeild Kópavogshælis nú
þegar. Upplýsingar veitir ræstingastjóri Kópavogs-
hælis í síma 41500.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast við Barna-
spítala Hringsins á vökudeild, ungbarnadeild og
skurðlækningadeild.
Fóstrur óskast nú þegar við Barnaspítala Hringsins.
Sjúkraliðar óskast til afleysinga á dagdeild Kvenna-
deildar frá 1. sept. eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfor-
stjóri Landspítalans i síma 29000.
Reykjavík, 1. september 1986.
WK 1 íJTTOf.(TTTMAM
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Geislamælingar
teknar upp að nýju
„Við gerum ráð fyrir að mæla geisla-
virkni í mjólk, regnvatni, andrúmsloft-
inu og síðar að bæta við sjávarmæl-
ingum. í haust er áætlað að mæla
geislavirkni í hreindýrum á Austurl-
andi og einnig í lömbum. Ég tel mjög
þýðingarmikið að þetta verði gert og
með reglubundnu eftirliti gefst einnig
tækifæri á að fylgjast með geislavirkni
í innfluttum matvælum,“ sagði Sig-
urður Magnússon, forstöðumaður
Geislavama, í samtali við DV.
í kjölfar Chemobyl slyssins heftir
heilbrigðisráðherra tekið þá ákvörðun
að hefja skuli hér á landi reglubundn-
ar mælingar á geislavirkni í umhverf-
inu. Reglubundnar mælingar fóm hér
fram á árunum 1958 til 1967 vegna
kjamorkutilrauna í andrúmsloftinu
en þeim var hætt eftir að þær lögðust
af.
„Þetta kemur ekki einvörðungu til
vegna slyssins í Chemobyl því að
meðal annars em kjamorkuver í Bret-
landi sem losa úrgang í írlandshaf en
hann berst í einhverjum mæli með
staumum á milli fslands og Græn-
lands. Nú er væntanleg skýrsla fiá
sérfræðingum Alþjóða kjamorku-
málastofnunarinnar sem snerta tillög-
ur um framkvæmd þessara mæhnga
og framtíðarskipulagningu Geisla-
vama ríkisins en heilbrigðisráðherra
fór þess á leit í mars síðastliðnum að
sérfræðingar stofnunarinnar kæmu
hingað til lands,“ sagði Sigurður.
Verulegan tækjabúnað þarf til að
framkvæma þessar mælingar og er
verið að vinna við að útvega nauðsyn-
leg mæhtæki. Ráðgert er að safiia
sýnum víðs vegar af landinu en unnið
verður úr þeim af Geislavömum ríkis-
ins í Reykjavík.
-S.Konn.
Hópur kvenna úr landssamtökum kvenna í Bandaríkjunum, National organization for women, hefur verið hér
i heimsókn aö undanförnu. . Tilgangur ferðarinnar er að kynna sér allar hliðar kvenréttindamála hér á landi.
Þessi mynd er af þeim þegar þær heimsóttu fulltrúa Kvennalistans. Á myndinni má sjá Sigríði Oúnu Krist-
mundsdóttur og Krístinu Ásgeirsdóttur. DV-mynd S
Odýrara að gera út
á sel en þorsk
Rúm hundrað
tonn áland
Regína Thorarersen, DV, Gjögri:
Eegfna Hicaaienaen, Gjögii:
Hreppsstjórasynimir fiá Munaðar-
nesi, komungir, grannir og íþróttaleg-
ir strákar, em búnir að veiða fjögur
tonn af sel í sumar.
Við hjónin hittum bræðuma frá
Munaðamesi nýlega á bryggjunni við
kaupfélagið í Norðurfirði. Voru þeir
búnir að vera úti í tvo sólarhringa.
„Við ætlum að vera með syningar á
verkum úrvals listamanna, það kemur
í ljós hveijir þeir em,“ sagði Gunnar
Kvaran listfræðingur um nýtt gallerí
sem ráðgert er að opna í næsta mán-
uði. Sýningarsalurinn verður til húsa
Komu þeir með að landi 1,3 tonn af
þorski en einnig fjóra stóra útseli sem
vigtuðu alls 900 kíló.
Það er orðið ódýrara að gera út á
sel heldur en þorsk. Fyrir kíló af sel
fást 20 krónur. Fyrir kíló af þorski
fást líka 20 krónur. Eftir þorskinum
þurfa þeir hins vegar að sigla í 5-6
klukkustundir en eftir selnum þarf
ekki að fara langt.
að Suðurlandsbraut 4 og eigandi verð-
ur fyrirtækið íslensk listmiðlun hf. Að
því standa auk Gunnars, Ólafur Kvar-
an, Hallgrímur Geirsson og Haraldur
Johannesen.
-EIR
Fjórar fiskimóttökur em nú í
Ámeshreppi á Ströndum og hafa
þær aldrei verið eins margar og
nú. Síðla í ágúst hafði Lýður Hall-
bergsson á Djúpuvík fengið um 60
tonn, Kaupfélag Strandamanna,
Norðurfirði, haföi fengið um 40,
fiskimóttaka kaupfélagsins á
Gjögri hafði tekið á móti 4r-5 tonn-
um og Ásbjöm, hótelstjóri í
Djúpuvík, haföi fengið 8 tonn en
hann verkar sinn fisk í tandurfisk
eins og ég hef getið um áður.
Lýður sagði að handferafiskur-
inn fengist ekki að ráði nema í
Reykjafjarðarál. Þaðan ersex táma
stím frá Djúpuvík. Fiskurinn hefur
ekki komið að ráði á grunnmiðin
eins og oftast er þó venjan í ágúst-
byrjun.
Nýtt gallerí
Þegar sumariö er á enda er gæðingum gefið langþráð frf en þá er
þeim sleppt frjálsum i haga. Hestamannafélaglð Fákur er meö að-
stöðu fyrir hesta á Ragnheiðarstöðum f Flóa og þangað flykkjast
hestamenn með hesta sfna um þessar mundir. Vert er að minna jafnt
hestamenn og bilstjóra á að fara varlega í umferölnni.
DV-mynd ej
Kjötið sagað
á Akureyri
Regína Thoraiensen, DV, CJjögii:
Hér hefur ríkt mikil óánægja
með að Kaupfélag Strandamanna
skuli ekki hafa keypt kjötsög, en
slfk kaup höföu verið samþykkt á
aðalfundi fyrir nokkrum árum.
En nú hefur verið ráðin bót á
þessu því nú fer Gunnsteinn
Gíslason kaupfélagsstjóri sagað
kjöt frá Akureyri. Kaupfélagið
þarf því ekki að leggja út í fjárfest-
ingar vegna kjötsagarinnar.
Mættu margir taka Gunnstein sér
til fyrirmyndar því oft virðast dýr-
ustu leiðimar valdar þegar kostur
er á einhvetjum ódýrari.