Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
21
• Amór Guðjohnsen.
Amór skoraði glæsimark
- ög Ragnar Maigeirsson á skotskónum í Beigíu
Kristján Berriburg, DV, Belgia;
Anderlecht hóf titilvöm sína með
góðum sigri á slöku liði Seraing.
Leiknum lauk með 3-1 sigri And-
erlecht eftir að staðan hafði verið 30
í hálfleik. Amór lék mjög vel og skor-
aði síðasta mark Anderlecht í leikn-
um. Það var eitt fallegasta mark sem
sést hefirr hér í Belgíu og var það
kosið mark umferðarinnar.
„Þetta gekk mjög vel í fyrri hálfleik
en þá lékum við mjög vel. Spilið hjá
okkur gekk vel og við hefðum átt að
vera búnir að skora fleiri mörk. Völl-
urinn varð síðan að forarsvaði í seinni
hálfleik vegna úrhelhsrigningar. Það
var því lítið hægt að leika knattspymu
þá. Eg er mjög ánægður með að skora
svona í 1. umferð - það eykur sjálfs-
traustið. Ég finn það að Ari Haan,
þjálfari liðsins, vill nota mig og ég er
bjartsýnn á veturinn,“ sagði Amór
eftir leikinn.
Þeir Kabong, sem keyptur var til
hðsins fiá Frakklandi í haust, og
Swinnen skomðu hin mörk And-
erlecht. Club Briigge vann stórsigur,
8-0, gegn Waregem en leikmenn Ware-
gem þurftu að leika 10 allan seinni
hálfleik.
Ragnar skoraði tvö
Ragnar Margeirsson er svo sannar-
lega á skotskónum þessa dagana.
Hann hefur verið iðinn við að skora
i æfingaleikjum að und£infómu,skor-
aði bæði mörk Waterchai gegn St-
Truiden um helgina. Þrátt fyrir það
náði Waterchai ekki að sigra í leikn-
um. Eftir 20 mínútur var Plessers
rekinn af vehi og þurftu því leikmenn
Waterchai að leika 10 það sem eftir
var.
„Ég er ánægður með minn hlut í
þessum leik. Það var leiðinlegt að
þessi tvö mörk skildu ekki duga til
þess að tryggja okkur sigurinn," sagði
Ragnar eftir leikinn. Hann er greini-
lega í góðri æfingu núna og verður
fróðlegt að fylgjast með honum í land-
sleikjunum í haust. -SMJ
• Siguröur Lámsson, fyrirliði Skagamanna, sem hefur aldrei tapaö úrslitaleik, sést hér taka á móti nýja bikamum. Steingrimur Hermannsson forsætisráö-
herra, sem var heiðursgestur leiksins, afhenti bikarinn. DV-mynd Brynjar Gauti
„Þetta var sanngjarn sigur“
- sagði Sigurður Lámsson, fyririiði Skagamanna
■■■ ■ ■
Ekki
góður
leikur"
- sagði Sigi Heid
• Sigi Held.
„Þetta var nú ekki góður leikur,
mér fannst eins og leikmenn væru
of taugaóstyrkir og það kom niður
á leik þeirra. Veðrið spillti hka
mikið fyrir en leikmenn virtust
ekki gera sér grein fyrir hvemig
ætti að spila í þessu roki,“ sagði
Sigi Held landsliðsþjálfari eftir
bikarúrslitaleikinn.
„ Það virðist vera einhver tauga-
veiklun í herbúðum Framara sem
kemur í veg fyrir að þeir sigri þeg-
ar mikið liggur við. Þeir ætla að,
vera fastir í 2. sætinu. Það er ekki
næg barátta í liðinu þegar á þarf
að halda."
En hvað fannst Held um frammi-
stöðu Péturs?
Pétur er mjög hættulegur leik-
maður, hann sýndi það í þessum
leik. Hann fékk þrjú færi og nýtti
tvö. Ég vona að hann leiki svona
með landsliðinu," sagði Held.
-SMJ
„Þetta var að öllu leyti sanngjam
sigur hjá okkur. Við gáfiunst aldrei
upp og uppskárum eftir því. Þetta var
erfiður leikur en nú er gaman að lifa.
Þetta var glæsilegt," sagði Sigurður
Lárusson, fyrirliði Skagamanna, eflir
leikinn og var hann að vonum kátur.
Það var þröngt á þingi inni í búnings-
klefa þeirra eftir leikinn - hinir
skrautlegu og líflegu stuðningsmenn
þeirra, sem fjölmenntu ofan af Akra-
nesi, vom mættir inn í klefa til að
fagna með hetjum sínum. Sannkölluð
bikarstemmning þar.
Ætlið þið að aðstoða Framara við
að ná Islandsmeistaratitlinum með því
að virrna Val uppi á Skaga?
„Ég er nú þannig gerður að ég vil
vinna hvem leik - ég einfaldlega þoh
ekki að tapa. Segir það ekki allt sem
segja þarf um þann leik,“ sagði Sigurð-
ur og var þar með þotinn inn í sturtu.
-SMJ