Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Síða 22
22
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Iþróttir___________________________________________________________________________________________pv
„Pétur er eins og
Robson og GrayYt
- sagði Jim Banron, sem vann sinn fýrsta titil í gær
„Ég er mjög ánægður irieð þennan
leik. Mér fannst bæði liðin vera ís-
lenskri knattspymu til sóma. Sem
áhorfandi að þessum leik get ég ekki
sagt annað en að hann hafi verið mjög
spennandi," sagði Jim Barron, þjálfari
Akraness, eftir leikinn. Hann var að
vonum kátur enda er þetta fyrsti bik-
arinn sem hann vinnur á löngum
knattspymuferli sínum.
„Við spiluðum vel þegar þeir vom
búnir að skora. Við áttum í erfiðleik-
um í fyrri hálfleik en þá gekk okkur
illa að átta okkur á veðrinu. Við kom-
um hins vegar vel inn í leikinn í seinni
hálfleik og spiluðum þá vel.
Það gefur augaleið hve mikilvægt
er að hafa mann eins og Pétur með
okkur. Hann er mjög góður knatt-
spymumaður og spilar vel fyrir liðs-
heildina. Það er greinilegt að hann
hefur lært margt í atvinnumennsk-
unni og að mínum dómi gefur hann
bestu atvinnumönnum ekkert eftir.
Mér finnst hann vera nokkurs konar
blanda af Bryan Robson og Andy
Gray, það segir ýmislegt um ágæti
hans,“ sagði Barron sem að vonum
átti erfitt með að dylja aðdáun sína á
Pétri Péturssyni. -SMJ
• Jim Barron, þjálfari Skagamanna...
• ...átti erfitt með að dylja aðdáun
sína á Pétri.
DV-myndir Sveinn Þormóðsson
Ganli Grétaiagon, DV, Noregi:
Meiðsli Jakobs Jónssonar
handknattleiksmanns, sem leik-
ur með norska meistaraliðinu
Viking frá Stavangri, eru ekki
eins alvarleg og talið var í fyrstu.
Þegar gifeumbúðir vom teknar
frá ökkfa kom í ljós að liðbönd
vom ekki slitin. Það hafði aðeins
blætt inn á ökklann. Jakob er
byriaður að æfe raeð Viking.
-sos
Meiðsli
Jakobs ekki
alvarleg
• Bikarmeistarar Akraness 1986 sjást hér kampakátir eftir úrslitaleik bikarkeppninnar.
DV-mynd Óskar öm
Pétur Pétursson sést hér hampa
bikarnum.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Pétur er
ailtaf á
réttum stað“
- sagði Janus Guðfaugsson
„Þetta var mjög góður leikur sem
var leikinn við erfiðar aðstæður -
strekkingsvindur setti svip sinn á
hann. Framarar léku mjög vel á
móti vindinum í fyrri háífleik sem
sýndi að Framliðið er mjög gott.
Það vantaði meiri einbeitingu í
leik liðsins í seinni hálfleiknum.
Það var eins og leikmenn liðsins
slökuðu á eftir að Pétur Ormslev
hafði skorað," sagði Janus Guð-
laugsson, landsliðsmaður í knatt-
spymu.
Janus sagði að Skagamenn
hefðu verið hættulegir í seinni
hálfleiknum. Sveinbjöm Hákonar-
son var mjög ógnandi á kantinum
og Pétur Pétursson alltaf hættu-
legur. „Pétur er alltaf á réttum stað
þegar mikið liggur við og hann
kann svo sannarlega að skora
mörk,“ sagði Janus.
sos
- Pétur lék sama leikinn og 1978, tvyggði Skagamönnum bikarinn
Töframáttm-inn er svo sannarlega
til staðar í skónum hans Péturs Pét-
urssonar, eins mesta markaskorara
íslands. Þessi snaggaralegi leikmaður
hefur engu gleymt - hann getur hrein-
lega tekið upp mörk úr bakpoka sínum
þegar honum hentar. Það sýndi hann
á Laugardalsvellinum í gær. Pétur
breytti þá tapaðri stöðu Skagamanna
í sigur með þvi að skora tvö mörk -
sigurmarkið, 2-1, þegar átján sekúnd-
ur vom liðnar af venjulegum leiktíma.
„Það fer enginn í skóna hans Péturs
þegar hann er í þessum ham,“ sagði
Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari.
„Það var stórkostlegt að sjá á eftír
knettinum hafna í þaknetinu," sagði
Pétur Pétursson, sem endurtók leikinn
frá því 1978. Þá skoraði hann sigur-
markið, 1-0, gegn Valsmönnum í
bikarúrslitaleik. Nú vom Framarar
fómarlömb hans.
Strekkingsvindur setti svip sinn á
úrslitaleikinn. Skagamenn léku undan
vindi í fyrri hálfleik en náðu ekki að
nýta sér vindinn. Sveinbjöm Hákon-
arsson átti skalla að marki Framara
á 30. mín. - Friðrik varði og knöttur-
inn skall í þverslá og fór aftur fyrir
endamörk. Upp úr homspymunni átti
Guðbjöm Tryggvason skot sem skall
í stöngina á Frammarkinu.
Þetta vom hættulegustu færi Skaga-
manna en aftur á móti gekk á ýmsu
upp við mark þeirra. Birkir Kristins-
son markvörður hafði þar nóg að gera
- varði oft góð skot Framara. Pétur
Ormslev fékk besta tækifærið, skaut
yfir þverslá Skagamarksins þegar
hann var einn inni í markteig. Júlíus
P. Ingólfsson bjargaði síðan skalla frá
Guðmundi Torfasyni á marklínu rétt
fyrir leikhlé.
Pétur Ormslev skorar
Framarar byrjuðu seinni hálfleikinn
með látum og sóttu grimmt að marki
Skagamanna. Þeir náðu að skora á
4:33 mínútu. Guðmundur Steinsson
lék þá á vamarmenn Akraness og
sendi knöttinn fyrir markið. Þar var
Pétur Ormslev á réttum stað og sendi
hann í netið, 1-0.
Á eftir átti Guðmundur Steinsson
skot sem Birkir varði. Hinum megin
komst Pétur Pétursson einn inn fyrir
vöm Fram en Friðrik Friðriksson
varði skot hans með góðu úthlaupi.
Framarar fá góð færi en leikmenn
þeirra em of ragir við að skjóta - sókn-
ir þeirra runnu út í sandinn.
Þáttur Péturs Péturssonar
Pétur Pétursson gaf Skagamönnum
aukakraft þegar hann náði að jafna,
1-1, þegar 16 mín. vom til leiksloka.
Mistök hjá leikmönnum Fram urðu
til þess að Sveinbjöm Hákonarson
komst með knöttinn upp að enda-
mörkum hægra megin. Hann sendi
knöttinn fyrir mark Fram. Þar var
Pétur Pétursson staðsettur við fjær-
stöngina og skoraði mark úr mjög
þröngu færi. Pétur var svo aftur á ferð-
inni á 90:18 mínútu þegar hann komst
á auðan sjó og þrumaði knettinum
fram hjá Friðriki Friðrikssyni. Skaga-
menn fögnuðu geysilega - sigur þeirra
var í höfh.
sos
Töframátturinn í skóm
Péturs Péturssonar var
nokkuð sem Framarar
réðu ekkert við