Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Side 23
MÁNUDAGUR l'. SEPTEMBER'Í986.
23
lþróttir
Lineker skoraði tvö
Gary Lineker sýndi að hann er eng-
um líkur í markaskorun með því að
skora tvö mörk í fyrri hálfleik leiks
Barcelona og Santander í spænsku 1.
deildinni en keppni hófst þar um helg-
ina. Fleiri urðu mörkin ekki. Leikur-
inn fór fram á heimavelli Barcelona,
Nou Camp, og er greinilegt að Line-
ker verður næsti kóngur þar. 120
þúsund áhorfendur trylltust af fögnuði
yfir mörkunum hans.
Real Madrid vann einnig öruggan
sigur í sínum leik. Sigruðu Murcia,
sem kom upp í deildina í vor, 3-1 á
útivelli. Það var enginn annar en
heimsmeistarinn sjálfúr, Jorge Vald-
ano, sem skoraði fyrsta mark leiksins
eftir sendingu frá Hugo Sanchez sem
bætti síðan við tveimur mörkum.
Hann hefur því greinilega sett stefn-
una á þriðja markakóngstitilinn í röð.
Þá vann Real Sociedad góðan sigur
á Cadiz, 4-0. Atletico Madrid rétt náði
að merja jafntefLi gegn Espaniol
Barcelona með marki Roberto Marina
úr víti á 71. mínútu. -SMJ
Mexíkanski landsliðsmaðurinn Rio Ave, sem kom upp úr 2. deild,
Manuel Negrete var hetja Sport- gáfúst ekki upp og jöfhuðu.
ing Lissabon nú um helgina þegar Porto, meistaramir frá síðasta
liðið gerði jafhtefli við Rio Ave. tímabili gerðu óvænt jafntefii við
Negrete skoraði þá eitt glæsileg- Guimaraes 2-2. Þaðvorubrasilísk-
asta mark sem sést hefiir. Hann ir leikmenn sem skoruð öll mörkin,
fékk boltann við vítateiginn, lyfti Juary Santos bæði fyrir Porto en
honum yfir tvo varnarmenn og þeir Ademir og Roldao fyrir Guim-
skoraði síðan með viðstöðulausu araes. Þá sigraði Benfica Varzim
skoti. Þetta var fyrsta mark leiks- 2-0.
ins en enski leikmaðurínn Raphael Belenenses frá Lissabon er efet í
Meade, sem áður lék með Arsenal, deildinni, hefúr unnið báða sína
jók síðan forystuna. En leikmenn leiki. -SMJ
Katowice missti forystuna
Pólska liðið’ GKS Katowice, sem
mætir Frömurum í Evrópukeppninni,
missti af foiystusætinu í pólsku deild-
inni um helgina. Katowice tapaði, 1-0,
fyrir Gomik Zabrze í uppgjöri topplið-
anna. Zabrze er nú eitt efet með 10
stig. Pogon Szczecin og Widzew Lodz
em í 2.-3. sæti með 9 stig. Katowice
er næst með 8 stig.
-SMJ
• Knötturinn í netinu hjá Fram - Skagamenn búnir að jafna, 1-1. Á myndinni sést Friðrik Friðriksson, markvörður
Fram, liggja í netmöskvunum ásamt knettinum. Guðbjöm Tryggvason stekkur upp og fagnar marki Péturs Péturssonar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Cram sigraði í 1500 m hlaupinu
„Hægðum á okkur
eftír markið“
- sagði Ásgeir Bíasson, þjátfari Fram
„Eftir að við skoruðum hægðum en við í seinni hálfleik en þá gáfum halda fram. Við höfúm átt tvo lélega
við allt of mikið á okkur og gáfúm við of mikið eftir. Auðvitað hefði leiki núna seinni part sumarsins, á
þeim frið til að spila. Annars spiluð- verið hægt að setja meiri dekkningu móti Val og FH. Annars höfúm við
um við einfaldlega ekki nógu vel og á Pétur en það var ákveðið að gera leikið ágætlega og átt mikið af fær-
því fór sem fór,“ sagði Ásgeir Elías- það ekki,“ sagði Ásgeir. um í hveijum leik. Við hljótum að
son, þjálfar Framára, og var hann - Hvað er að gerast með Framlið- stefria áfram ótrauðir á íslands-
að vonum daufúr í dálkinn eftir leik- ið, ætlar það að missa af báðum meistaratitilinn og til þess að það
inn. titlunum í ár? gangi upp verðum við auðvitað að
treysta á sjálfa okkur. Nú, svo eigum
„Veðrið var leiðinlegt og við „Ja, ef ég vissi nú það - ég vil hins við eftir að sjá hvað Valur gerir
reyndum ekki nógu mikið að spila vegar taka það fram að við höfum uppi á Skaga,“ sagði Ásgeir.
boltanum niðri. Þeir spiluðu betur ekki dottið niður eins og menn vilja -SMJ
• Ásgeir Eliasson, þjáHari Fram...
• ...var ekki ánsgöur með hvar leikmenn hans gáfu eflir eftir að þeir
höföu skorað, 1-0. DV-myndir Sveinn Þormóðsson
„Ég ætla ekki að kvarta yfir öðru
sætinu. Cram var betri á lokasprettin-
um. Hann er einn af þessum náungum
sem aldrei gefast upp,“ sagði Sebastian
Coe eftir að hafa orðið að lúta í lægra
haldi fyrir landa sínum Steve Cram í
1500 m hlaupi. Einvígi þeirra í hlaup-
inu var einn af hápunktum Evrópu-
mótsins sem lauk í gær. Cram, sem
varð annar í 800 m hlaupi á eftir Coe,
hljóp á þrem mínútum 41,09 sekúnd-
um. Tími Coes var 3:41,67 svo það var
ekki mikill munur á þeim félögum.
Eftir hlaupið féllust þeir í faðma og
veifuðu áhorfendum sem höfðu hvatt
þá óspart í hlaupinu.
-SMJ
Bikarúrslitaleikurmn
í tölum
Leikur Akraness og Fram var
þannig í tölum:
• Skagamenn áttu tíu skot að
marki Fram. Þeir skoruðu tvö
mörk, áttu skalla sem Friðrik
Friðriksson varði í slá, stangar-
skot, þijú skot sem Friðrik varði
og þijú skot sem fóru framhjá.
• Framarar áttu tólf skot að
marki Skagamanna. Þeir skor-
uðu eitt mark, sex skot voru
varin af Birki Kristinssyni og
fimm fóru fram hjá marki.
# 19 aukaspymur voru dæmd-
ar á Skagamenn en fjórtán á
Framara.
e Skagamenn fengu sjö hom-
spymur - þijár í fyrri hálfleik
og fjórar í seinni hálfleik. Fram-
arar fengu einnig sjö homspym-
ur. Tvær í fyrri hálfleik en fimm
í seinni hálfleik. SOS
• Pétur Ormslev sést hér skora mark Framara. DV-mynd Brynjar Gauti