Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 24
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
24
Iþróttir
• Pétur Pétursson lætur hér skot sitt ríða af... DV-mynd Gunnar Sverrisson.
„Lukkudísimar voru
svo sannarlega með mér“
þegar ég skoraði jöfnunarmarkið, sagði Pétur Pétursson
„Framarar léku mjög vel en heppnin
var með okkursagði Pétur Pétursson
sem var svo sannarlega hetja Skaga-
manna þegar þeir tryggðu sér sigurinn
í bikarkeppninni. „Lukkudísimar
voru svo sannarlega með mér þegar
ég náði að jafha 1-1. Sveinbjöm Há-
konarson náði að senda góða sendingu
fyrir mark Framara. Ég var við fjær-
stöngina og náði að teygja mig í
knöttinn í þröngu færi og spyma hon-
um í netið hjá Fram. Þetta var algjör
grís,“ sagði Pétur.
„Framarar höfðu góðar gætur á mér
í leiknum en ég komst þó á auðan sjó
undir lokin þegar ég skoraði sigur-
markið. Vindurinn lék þá stórt hlut-
verk - knötturinn datt dauður fyrir
framan fætumar á mér þannig að ég
þurfti ekki annað en leika með hann
fram og senda knöttinn fram hjá Frið-
riki Friðrikssyni, markverði Fram,
sem kom út á móti mér,“ sagði Pétur.
„Það er alltaf sætt að vera í sigur-
liði í bikarúrslitaleik. Við munum
halda upp á þennan sæta sigur," sagði
Pétur. -SOS
„Svona möik skora
ekki venjulegir menn“
- sagði Friðrik Friðriksson, markvorður Fram
„Nei, ég held að ég hafi ekki átt
neinn möguleika á að verja þegar
Pétur skoraði mörkin. Fyrra
markið skora til dæmis aðeins
menn eins og Pétur, það var alveg
ótrúlegt að hann skyldi ná að
skora úr þessari aðstöðu. Svona
mörk skora ekki venjulegir menn.
Þannig em sannir markaskorar-
ar,“ sagði Friðrik Fríðriksson,
markvörður Fram, þegar hann var
spurður að því eftir leikinn hvort
hann hefði ekki haft möguleika á
því að veija þegar Pétur skoraði.
„Við gerðum þau mistök að
bakka eftir að við höfðum skorað.
Þá spilum við með þriggja maxma
vöm og það gerir það að verkum
að kantamir em oft fríir og bæði
mörk Skagamanna komu eftir fyr-
irgjafir utan af kanti. Vindurinn
var líka mjög leiðinlegur við að
eiga og var oft erfitt að reikna út
boltann. Annars spiluðu Skaga-
menn vel og ég vil óska þeim til
hamingju með sigurinn," sagði
Friðrik sem var þama að leika sinn
annan bikarúrslitaleik.
-SMJ
Portúgalir „njósnau um Skagamenn
Það er greinilega mikill við-
búnaður hjá portúgalska liðinu
Sporting Lissabon, mótheijum
Skagamanna í Evrópukeppninni.
Sérstakur útsendari liðsins var á
leiknum í gær til að njósna um
Skagaliðið. Þá var með honum
blaðamaður frá stærsta íþrótta-
blaðinu í Portúgal, Knettinum.
Þeim fannst greinilega töluvert
um leik Skagaliðsins og vom á því
að leikurinn hér á íslandi yrði
mjög erfiður fyrir Portúgalana. Þá
hrifust þeir félagar af leik Péturs
Péturssonar - þar væri mikill
markaskorari á ferð og yrði að
hafa strangar gætur á honum.
-SMJ
•Pétur Pétursson hleypur hér fagnandi frá marki Fram. Sveinbjöm Hákonarson ot