Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 25
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
25
Iþróttir
„Það má aldrei sleppa Pétri lausum
- sagði Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari
„Pétur Pétursson sýndi það og sann-
aði hér á Laugardalsvellinum að það
má aldrei sleppa honum lausum. Það
verður einn maður að hafa hann í
stöðugri gæslu og gera ekkert ann-
að,“ sagði Guðni Kjartansson, lands-
liðsþjálfari 21 árs landsliðsins. „Pétur
var algjörlega á auðum sjó þegar hann
skoraði sigurmarkið - hann gat leyft
sér að vega og meta stöðuna sem hann
var í og honum brást ekki bogalistin
frekar en fyrri daginn," sagði Guðni.
Guðni sagði að það hafi verið eins
allur dampur hafi dottið úr Framliðinu
eftir að Pétur Ormslev skoraði 1-0.
Þeir gátu hæglega fylgt því eftir og
bætt við marki. Það var ekki fyrr en
undir lokin að Framarar fóru að sýna
tennumar. Þá var það orðið of seint
- Pétur skoraði sigurmarkið á elleftu
stundu, eða þegar allt stefiidi í fram-..
lengingu," sagði Guðni.
-SOS
„Framarar voru ekki nægilega
ákveðnir í sóknaraðgerðum sínum“
- sagði Magnús Jónatansson, þjáHari Víkings
) Sigurður Lárusson sjást fagnandi fyrir aftan Pétur. DV-mynd Gunnar Sverrisson.
„Framarar geta sjálfum sér um
kennt hvemig fór. Þegar Pétur
Ormslev skoraði mark þeirra í
upphafi seinni hálfleiksins var
vöm Skagamanna komin úr jafii-
vægi. Með ákveðni hefðu Framar-
ar átt að geta gengið í gegnum
hana eins og vængjahurð," sagði
Magnús Jónatansson, þjálfari
Víkingsliðsins.
Magnús sagði að Pétur Péturs-
son væri alltaf hættulegur - hann
þefar hreinlega uppi marktækifær-
in. Framarar létu þá Viðar
Þorkelsson og Þorstein Þorsteins-
son hafa gætur á honum. Að mínu
mati hefðu þeir átt að láta Þor-
stein einan elta Pétur eins og
skugga út um allt. Það er alltaf
betra að láta einn mann vera í því
að taka úr umferð heldur en láta
tvo leikmenn hafa góðar gætur á
einum leikmanni. Það getur alltaf
skapast misskilningur þegar tveir
menn eiga að hafa gætur á ein-
um,“ sagði Magnús.
-sos