Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 28
28
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Iþróttir
Manchester United auð
mýkt á Old Trafford
- tapaði 1-0 fýrir nýliðum Chariton. Liverpool lagði Arsenal
• Jan Mölby hefur verið Liverpool betri en enginn nú í haust og skoraði
úr vítaspyrnu gegn Arsenal um helgina.
• Remi Moses.
Moses í
Amsterdam
Remi Moses, miðvallarspilarinn
sterki hjá Manchester United, er
nú staddur í Amsterdam í Hol-
landi. Þar gengst hann undir
meðferð hjá sérfræðingum vegna
meiðsla í ökkla. Það er reiknað
með að Moses verði kominn aftur
tál Old Trafford nú i vikunni.
sos
Dennisfékk
aðsjá rautt
Vamarleikmaðurinn Mark
Dennis hjá Southampton fékk
rauða spjaldið á laugardaginn eftir
að leik Norwich og Southampton
lauk en Norwich sigraði, 4-3, í
skemmtilegum leik.
Dennis lenti í handalögmálum
við einn leikmanna Norwich eftir
leikinn og dómari leiksins sá sig
tilneyddan til að sýna honum
rauða spjaldið. Hann á því yfir
höfði sér eins til tveggja leíkja
bann.
-SK.
Knattspymu-
kappar syngja
inn á plötai
Fjórir frægir knattspymukappar
hafa gengið til liðs við hóp popp-
stjama sem er að safna peningum
til að styrkja fólk sem þjáist af
blóðleysi. Fólk sem vantar jám í
blóðið. Fjórmenningamir eru þeir
Charlie Nicholas og Viv Anderson
hjá Arsenal og Tottenhamleik-
mennimir Chris Hughton og Ossie
Ardiles. Það verður gefin út lítil
plata með laginu „This is my
song.“
SOS
Ólæti í
Edinborg
Glasgow Rangers lagði Celtic að
velh, 1-0, á Ibrox í skosku deilda-
keppninni í gær. Iain Durrant, 18
ára nýliði Rangers, skoraði sigur-
markið. Terry Butcher, fyrirliði
Rangers, var bókaður í leiknum -
hans önnur bókun.
• Mikil ólæti brutust út í Edin-
borg þegar Edinborgarliðin Hibs
og Hearts áttust þar við. Stöðva
varð leikinn í sextán mínútur og
fóru fimmtíu lögregluþjónar út á
völlinn. Hearts vann góðan sigur,
3-1, með mörkum frá Sandy
Clarke, Ian Jardine og John Ro-
bertson.
•Joe Miller tryggði Aberdeen
sigur, 2-0, yfir Dundee með tveim-
ur góðum mörkum.
• Dundee Utd. vann öruggan
sigur, 3-0, yfir St. Mirren. Þeir
Kevin Gallacher, Eamonn Bannon
og Ian Ferguson skoruðu mörkin.
• Dundee United er á toppnum
með 9 stig, Aberdeen, Celtic og
Hearts hafa 7 stig og Rangers og
Dundee 6 stig.
sos
Hið fomfiæga knattspymufélag
Manchester United tapaði sínum
þriðja leik í röð er Charlton kom í
heimsókn og lagði það að velli með
einu marki gegn engu. Manchester
United sigraði sem kunnugt er í fyrstu
tíu leikjunum á síðasta keppnistíma-
bili þannig að greinilegt er að eitthvað
meira en lítið er að nú. Er sæti fram-
kvæmdastjórans Ron Atkinsons farið
að glóðhitna.
Á meðan unnu meistaramir frá því
í fyrra, Liverpool, Arsenal með tveim-
ur mörkum gegn einu í fjömgum leik
en það var enginn annar en Ian Rush
sem tryggði Liverpool sigurinn með
glæsimarki.
West Ham, Tottenham og Liverpool
em efst og jöfri í 1. deildinni með sjö
stig af níu mögulegum.
Slæm byrjun United
Það er opinbert leyndarmál í Bret-
landi að þegar í fyrravor var farið að
hitna sæti framkvæmdastjóra Manc-
hester United, Ron Atkinsons.
Ákveðið var að bíða og sjá hvemig
keppnistímabilið þróaðist til að byrja
með og er það að verða ljóst nú að
byijunin er ein sú versta í sögu félags-
ins. Ekki vantar mannskapinn; lands-
liðsmenn í hveiju sæti. Charlton, sem
kom upp úr 2. deild í vor, kom með
því hugarfari til leiks að endurtaka
ekki leikinn við Nottingham Forest í
miðri vikunni er Charlton var rass-
skellt með fjómm mörkum gegn engu.
Nú var barist um hvem bolta og sigur-
Urslit
1. deild:
Coventry-Everton ......(1—0)1—1
Liverpool-Arsenal.......(1—1)2—1
Luton-Newcastle.........(0—0)0-0
ManchesterUtd.-Charlton.. (0—0)0—1
Norwich-Southampton.....(0—2)4—3
Nottingham For.-Watford... (1—0)1—1
Oxford-West Ham.........(0-0)0-0
Q.P.R.-Aston Villa......(O-O)l-O
Sheffield Wed.-Chelsea..(l-0)2-0
Tottenham-Manch.C.......(O-O)l-O
Wimbledon-Leicester.....(l-O)l-O
2. deild:
Birmingham-Derby.............1-1
Crystal Palace-Stoke.........1-0
Grimsby-Bradford.............0-0
Leeds-Sheffield Utd..........0-1
Millwall-Bamsley.............1-0
Oldham-Hull..................0-0
Plymouth-Reading.............1-0
Portsmouth-Ipswich...........1-1
Shrewsbury-Blackbum..........0-1
Sunderland-Brighton..........1-1
W.B.A.-Huddersfield..........1-0
3. deild:
Boumemouth-Newport...........2-1
Bristol Rovers-Bolton........1-0
Bury-Chester.................1-1
Carlisle-York................2-2
Chesterfield-Walsall....*....3-2
Darlington-Mansfield.........2-1
Doncaster-Brentford..........2-0
Fulham-Blackpool.............0-1
Gillingham-Bristol City......1-1
Port Vale-Rotherham..........1-1
Swindon-Notts County.........1-2
Wigan-Middlesbrough..........0-2
4. deild:
Aldershot-Wolves.............1-2
Bumley-Scunthorpe............1-0
Cambridge-Halifax............1-0
Cardiff-Rochdale.............0-0
Colchester-Exeter............1-1
Crewe-Hereford...............1-2
Northampton-Torquay..........1-0
Orient-Peterborough 1-0.........
Preston-Swansea..............2-1
Southend-Hartlepool..........1-1
Stockport-Tranmere...........0-2
Wrexham-Lincoln..............1-1
inn tryggður í byijun seinni hálfleiks
er Mark Stuart skoraði gott mark.
Robert Lee fékk tækifæri skömmu síð-
ar fyrir Charlton en Gordon Strachan
varði á línu. Þetta er fyrsti sigur nýhð-
anna í 1 deildinni nú, en síðast keppti
liðið á Old Trafford árið 1956 er Bobby
Charlton spilaði sinn fyrsta leik fyrir
Manchester United. Það væri ráð hjá
Ron Atkinsson að líta á atvinnuaug-
lýsingamar í bresku blöðunum næstu
daga.
• Liverpool hefiir staðið sig vel í
fyrstu leikjunum. Nú var Arsenal lagt
að velli. Bæði hafa þessi lið orðið tvö-
faldir meistarar: Arsenal 1971 og
Liverpool 1986. Hér var því um merki-
legan leik að ræða. Jan Mölby skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Liverpool
úr vítaspymu á 19. mínútu eftir að
David O’Leary hafði skellt honum í
vítateignum. En Arsenal-liðið gafst
ekki upp og Tony Adams jafiiaði þrem-
ur mínútum síðar. Ian Rush tiyggði
svo Liverpool sigurinn á 57. mínútu
með góðu marki. Miðvallarspilarar
Arsenal vom að dúlla með knöttinn á
miðvellinum, glötuðu honum til Möl-
by sem gaf á Rush sem kom eins og
elding og skoraði. George Graham,
framkvæmdastjóri Arsenal, hefur ekki
keypt neina leikmenn eins og er. Hann
notaði alls sjö heimaalda og unga leik-
menn í þessum leik. Bmce Grobbelaar,
hinn litríki markvörður Liverpool,
hefur ekki enn spilað leik í 1. deild-
inni eftir meiðsh sem hann hlaut í leik
um góðgerðarskjöldinn fyrir skömmu.
• Tottenhamliðið spilar vel um
þessar mundir og lagði Manchester
City að velli með marki vamarmanns-
ins Graham Roberts á 65. mínútu.
Þangað til hafði vöm City verið sem
klettur, stáli klæddur. City átti engin
marktækifæri en ágengni Tottenham
var mikil.
• Everton hefur ekki gengið sem
skildi í undanfömum leikjum. Nokkrir
lykilleikmenn em meiddir og ungir og
óreyndir leikmenn hafa tekið við af
þeim. Coventryliðið mætti til leiks
ákveðið. I fyrri hálfleik skoraði Nick
Pickering mark og Everton náði ekki
skoti á mark Coventry. Ian Marshall
skoraði mark fyrir Everton undir lok-
in og bjargaði stigi.
• Luton og Newcastle gerðu
markalaust jafntefli á gervigrasi Lu-
tonmanna. Mark Hartford, hinn langi
miðherji Luton, hefur verið frá vegna
meiðsla í undanfömum leikjum og er
þar skarð fyrir skildi. Leikurinn var
ekki góður, 0-0 segir sína sögu.
Ný stúka og mörg mörk
Einn skemmtilegasti leikur helgar-
irrnar var á Carrow Road, leikvelli
Norwich. Southampton kom í heim-
sókn. Ný stúka var tekin í gagnið hjá
Norwich í þessum leik og virtist sem
leikmenn Norwich væm að dást að
henni í fyrri hálfleik því Southampton
skoraði strax tvö mörk. Fyrst Danny
Wallace og svo Blake en Drinkell og
Gordon jöfnuðu fyrir Norwich. Will-
iams kom Norwich í 3-2 en Mark
Dennis jafiiaði með þrumufleyg. Það
var svo Steve Bruce, vamarmaðurinn
sterki, sem skoraði sigurmark Nor-
wich tíu mínútum fyrir leikslok.
• Leikur Oxford og West Ham var
fjömgur þrátt fyrir að ekki væm skor-
uð mörk. Trevor Hebberd, hinn
harðskeytti miðvallarspilari Oxford,
var settur í nýja stöðu sem „Sweep-
er“ og stóð hann sig mjög vel þar og
sópaði öllum sóknartilburðum West
Ham út fyrir völlinn. Vöm Oxford stóð
sig vel og leikmenn West Ham fóm
ánægðir heim af hinum htla leikvelh
háskólaliðsins með eitt stig.
• Q.P.R. vann annan heimaleik
sinn í röð. Aston Viha var lagt að
velli með einu marki gegn engu og,
skoraði Gary Bannister markið
snemma í seinni hálfleik. Aston Villa
má muna sinn fífil fegri því liðið hefur
tapað öllum þremur leikjum sínum og
er neðst í stigatöflunni. Mikið hefur
verið keypt af leikmönnum til liðsins
en ekkert hefur komið út úr þeim.
• Sheffield Wednesday hefur ekki
enn tapað leik og lagði Chelsea að
velli með tveimur mörkum gegn engu.
Eitt mark í hvorum hálfleik. Mark
Chamberlain skoraði fyrst og Gregoiy
síðara markið.
• Nýliðamir í Wimbledon sigruðu
Leicester með einu marki gegn engu
og skoraði Alan Cork markið í fyrri
hálfleik. Wimbledon hefur staðið sig
vel í byijun og unnið báða heimaleiki
sína. Liðið er til alls víst í vetur.
Birmingham stefnir á 1. deild
Birmingham, sem féll í 2. deild í
fyrravor, stefiiir nú greinilega á 1.
deildina á ný. Liðið er með sjö stig af
níu mögulegum. Wayne Clarke skor-
aði strax eftir 43 sekúndur gegn Derby
en það nægði ekki því Gregoiy jafnaði
fyrir Derby í fyrri hálfleik. Ciystal
Palace hefur unnið báða leiki sína,
sigraði Stoke nú með marki Philips
Barber. Stoke hefur nú spilað þijá leiki
og tapað þeim öllum. Sheffield United
vann Leeds á útivelli með marki Tony
Philliskirk. MillwaU vann Bamsley
með einu marki David Byme. Allir
leikir Millwall hafa endað 1-0 og hef-
ur Millwall unnið tvo leikjanna en
tapað einum. Plymouth og Reading
komu bæði úr 3. deild í fyrravor, spil-
uðu í Plymouth og endaði viðureign
þeirra með sigri Plymouth, 1-0. Aðal-
leikur 2. deildar var viðureign
, Portsmouth og Ipswich. Leikurinn
endaði sem jafriteffi, 1-1, og skoraði
Mark Brennan fyrst fyrir Ipswich en
Kevin OCallaghan jafriaði fyrir
Portsmouth. Þetta verður langur vet-
ur fyrir Alan BaU, framkvæmdastjóra
Portsmouth, en hann hefur þó tvö stig
úr leikjum við tvö af sterkustu liðum
2. deUdar. Stórhðin Sunderland og
Brighton skhdu jöfri, 1-1, en W.B.A
sigraði Huddersfield með marki Mart-
in Bennett. Huddersfield er því enn
án stiga eftir þijá leiki.
E.S.
Stadan
1. deild
Tottenham 3 2 1 0 5-1 7
Liverpool 3 2 1 0 4-1 7
West Ham 3 2 1 0 4-2 7
Wimbledon 3 2 0 1 5-5 6
Q.P.R. 3 2 0 1 5-7 6
Everton 3 1 2 0 5-3 5
Sheff. Wed. 3 1 2 0 5-3 5
Luton 3 1 2 0 3-2 5
Watford 3 1 1 1 6-4 4
Nott. For. 3 1 1 1 5-3 4
Norwich 2 1 1 0 4-3 4
Manch. City 3 1 1 1 3-2 4
Coventry 3 1 1 1 3-3 4
Charlton 3 1 1 1 2-5 4
Southampton 3 1 0 2 9-7 3
Arsenal 3 1 0 2 3-4 3
Chelsea 3 0 2 1 1-3 2
Newcastle 3 0 2 1 1-3 2
Oxford 3 0 2 1 1-4 2
Leicester 2 0 1 1 1-2 1
Manch. Un. 3 0 0 3 2-5 0
Aston Villa 3 0 0 3 2-7 0
2. deild
Birmingham 3 2 1 0 5-2 7
Hull 3 2 1 0 3-0 7
Oldham 3 2 1 0 3-0 7
Crystal Pal. 2 2 0 0 4-2 6
Blackburn 2 2 0 0 3-1 6
Millwall 3 2 0 1 2-1 6
West Bromw. 3 2 0 1 2-2 6
Sunderland 2 110 3-14
Plymouth 2 110 3-24
Shef. Un. 31112-24
Leeds 3 1 0 2 3-4 3
Ipswich 2 0 2 0 2-2 2
Brighton 2 0 2 0 1-1 2
Grimsby 2 0 2 0 1-1 2
Portsmouth 2 0 2 0 1-1 2
Bradford 3 0 2 1 34 2
Derby 20111-21
Shrewsbury 2 0 111-21
Reading 2 0 0 2 0-2 0
Huddersfield 2 0 0 2 0-3 0
Bamsley 3 0 0 3 2-6 0
Stoke 3 0 0 3 1-5 0