Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Síða 29
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Astandið á Borgarspitalanum var ekki gott í gærmorgun. Hér sést yfir ganginn en á honum lágu 7 sjúklingar
og stofurnar voru fuilar. Starfsfólkið hafði nóg að gera við að sinna öllum.
DV-mynd KAE
Sjúklingar í rúmum
frammi á gangi
„Þetta ástand getur varla talist
mannsæmandi, hvorki fyrir sjúkl-
inga né starfsmenn. Það má segja
að hér ríki hálfgert neyðarástand á
sumrin en þetta er samt óvenju-
slæmt,“ sagði Gunnar Sigurðsson,
yfirlæknir á lyflækningadeild, um
það ástand sem skapaðist á deild
A-6 einn morguninn um daginn en
þá voru 7 sjúklingar frammi á gangi
í rúmum sínum og allar stofur fullar.
„Þetta endurspeglar skortinn á
sjúkrarými sem fyrir er í landinu auk
þess sem næsta hæð hér fyrir ofan,
deild A-7, er lokuð vegna sumar-
leyfa. En þó að rúmin væru fyrir
hendi væri sennilega samt skortur á
starfsfólki," sagði Gunnar. Hann
benti ennfremur á að vegna þessa
ástands hefði þurft að senda sjúkl-
inga heim fyrr en æskilegt væri.
Af samtölum við starfsfólk deildar-
innar mátti ráða að það væri orðið
langþreytt á ástandinu. Það sagði
að hjúkrunarfræðingar sem ættu að
vinna 8 tíma vaktir ynnu nú 12-16
tíma á sóiarhring. Sagðist starfe-
fólkið vera komið með 80-100 tíma
í yfirvinnu á síðustu 3 vikum. „Fólk
er hætt að vilja leggja á sig erfiða
og krefjandi vinnu með slíku álagi
á þessum launakjörum. Það fæst
ekki fólk til starfa fyrr en launin
hafa verið leiðrétt," sagði einn hjúk-
runaríræðingurinn.
Stífian brestur tvisvar í viku
„Það er ljóst að þegar önnur deild-
in er lokuð eykst álagið á hina. Það
gerist sérstaklega 2 í viku að stíflan
brestur en það er þegar við sinnum
svokallaðri bráðaþjónustu sem spít-
alamir í Reykjavík hafa sameigin-
lega. Þetta er þó einungis
tímabundið og eftir hádegi léttir
þessu að mestu,“ sagði Magnús
Skúlason, aðstoðaríramkvæmda-
stjóri Borgarspítalans. Hann sagði
að vel mætti búast við svipuðu
ástandi næsta föstudag en ekki væri
hægt að láta veikt fólk bíða og því
hefði verið tekinn sá kostur að stytta
legudaga sjúklinga og biðja starfe-
mennina að vinna yfirvinnu. „Hins
vegar er það alveg ljóst að það geng-
ur illa að fá starfefólk og það hafa
alltaf verið erfiðleikar á sumrin.
Fólkið á langt frí og fáir koma til
starfa i afleysingum."
JFJ
lv*uiiuLi
PBKÐIJ
-CSS33KI
VOLVO 740 GLE ÁRG. 1986,
ekinn 5.700. Blágrænn met., bein-
skiptur, m/vökvastýri, topplúga,
rafdrifnar rúður, „centrallás", pluss-
áklæði. Einn með öllu. Verð kr.
760.000.
VOLVO 360 GLS ÁRG. 1985,
ekinn 20.000. Blár met., beinskipt-
ur, 5 gíra, sportfelgur, spoiler,
sólgrind, plussáklæði. Verð kr.
450.000.
VOLVO 240 GLÁRG. 1983,
ekinn 52.000. Blár met., beinskipt-
ur, m/vökvastýri. Verð kr. 440.000.
VOLVO 240 TURBO ÁRG.
1983,
ekinn 78.000. Rauður met., bein-
skiptur, m/vökvastýri, topplúga,
rafdrifnar rúður, aukamælar, sól-
grind, plussáklæði. Einn með öllu.
Verð kr. 650.000.
VOLVO 245 DLÁRG. 1982,
ekinn 62.000. Blár, beinskiptur,
m/vökvastýri. Verð kr. 390.000.
VOLVO 244 GLÁRG. 1982,
ekinn 52.000. Gull met., beinskipt-
ur, m/vökvastýri. Verð kr. 395.000.
VOLVO 244 GLÁRG. 1982,
ekinn 95.000. Gull met., sjálfskipt-
ur, m/vökvastýri. Verð kr. 390.000.
VOLVO 244 DL ÁRG. 1982,
ekinn 71.000. Rauður, sjálfskiptur,
m/vökvastýri. Verð kr. 345.000.
VOLVO 244 GLÁRG. 1979,
ekinn 92.000. Rauður, beinskiptur,
m/vökvastýri. Verð kr. 240.000.
VW PASSAT CLÁRG. 1982,
ekinn 67.000. Gull met., beinskipt-
ur. Verð kr. 270.000.
ÁRGERÐ 1987 ER Á LEIÐINNI.
Tökum allar tegundlr blla 1 umboðssölu.
Opið virka daga frá kl. 9—18, laugardaga frá kl. 13—17.
VANTAR BÍLA Á SÖLUSKRÁ -
TÖKUM ALLAR TEGUNDIR
BÍLAÍ UMBOÐSSÖLU.
VOLVOSALURINN
Suðurlandsbraut 16 • Sími 35200
VERSLUNAR-
HÚSNÆÐI
Til leigu ca. 200 m2 verslunarhúsnæði við Laugaveg.
Laust strax. Upplýsingar í síma 29622 eftir kl. 14.00.
HÚSAVÍK
Starf æskulýðs- og íþróttafulltrúa
Starf æskulýðs- og íþróttafulltrúa Húsavíkurkaupstað-
ar er laust til umsóknar, en um er að ræða nýtt starf
hjá bæjarfélaginu.
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi fer með yfirstjórn æsku-
lýðs- og íþróttamála á vegum bæjarins, í umboði
bæjarstjórnar og hlutaðeigandi nefnda, en einnig hef-
ur hann umsjón með rekstri íþróttamannvirkja í eigu
bæjarfélagsins. Umsóknarfrestur um starfið er til og
með 20. september næstkomandi. Umsóknir um starf-
ið, er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum, skulu
sendar til undirritaðs sem jafnframt veitir allar upplýs-
'ngar- Bæjarstjórinn Húsavík.
TIL SÖLU
Stórglæsilegur Cherokee Chief til sölu, ekinn aðeins
17 þús. mílur. V-6 vél, 5 gíra kassi (overdrive), velti-
aflstýri ásamt flestum fáanlegum aukahlutum. Sjón
er sögu ríkari.
Upplýsingar í síma 14240 og 44581.
Sálfræöistööin
Námskeið
Sjálf sþekking - Sjálf söryggi
Tilgangur námskeiðsins er að leiðbeina einstaklingum
að meta stöðu sína og kenna árangursríkar aðferðir í
samskiptum.
Á námskeiðinu kynnast
þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hverjir eru helstu áhrifaþættir í samskiptum
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal
Innritun og nánari upplýsingar í slma
Sálfræðistöðvarinnar:
687075, milli kl. 10 og 12.