Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Blaðsíða 30
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
30 l
BHreið valt við Sólgerði í Saurbæjartireppi um klukkan 17.45 siöastiiðinn laugardag. Tveir kartmenn voru í bílnum og voru þeir þegar í stað fluttir á
sjúkrahúsið á Akureyrl. Þeir reyndust báðir ómeiddir. Úkumaöurinn sagðist hafa misst stjóm á bHreiðinni.
VestflrðlR
Ýmsu ábúta-
vant í
skólamálum
Bjaini Gudmaiæan, DV, tafir&
Á þingi Fjórðungssambands
Vestfirðinga 1985 var skipaður
staríshópur tD að gera úttekt á
stöðu skólamála á Vestfjörðum og
skilaði hann áliti á þingi F.V. nú
í vikunni.
Kemur þar fram að ýmsu er
ábótavant í skólamálum á Vest-
fjörðum og gera þarf átak ef fylgja
á lögum um grunnskóla fram.
Meðal þess sem starfehópurinn
taldi ábótavant má nefna ósam-
ræmi í starfetíma skólanna og
skerðingu námstíma en gnrnn-
skólinn á ísafirði er' nú eini
grunnskólinn á Vestfjörðum sem
starfar í níu mánuði á ári.
Þá skortir mikið á að skólar séu
skipaðir sérmerintuðu starfeliði. Sl.
vetur var hlutfall kennara án
kennsluréttinda hærra á Vest-
fjörðum en annars staðar á
landinu.
Á þinginu voru samþykktar til-
lögur um að sveitarstjómir gerðu
sámeiginlega tveggja ára átak i
skólamálum á Vestfjörðum, s.s.
með samræmingu starfetima skól-
anna og að allir 9 bekkir grunn-
skólans verði starfræktir á öllum
stærri þéttbýlisstöðum.
, .... .....
vÞeir Krisflán Atlí, 13 ára, og Ásgeir, 11 ára, létu sér vel líka að svamla í sjónum, enda í biautbúningum sem héldu á
þeim hita. Lögreglunni leist hins vegar ekki jafnvel á framtakið og rak þá félaga upp úr.
. ,. DV-mynd S
Skulagata:
Strákar gripnir við sjósvaml
Fyrir skömmu varð lögreglan að hafa
afekipti af mönnum sem tilkynnt var
um á sundi í sjónum fyrir framan Út-
varpshúsið að Skúlagötu 4.
Þegar lögreglan kom á staðinn kom
í ljós að þar voru tveir strákar, 11 og
13 ára gamlir, á svamli í flæðarmálinu
og höfðu synt í sjónum skammt frá
landi. Voru þeir að prófa blautbúninga
sem þeir voru klæddir í og höfðu gam-
an af.
Talið var þó ráðlegast að reka þá á
land enda ekki hættulaust og auk þess
lítt heilsusamlegt að synda á þessum
stað þar sem skolpi er veitt í sjóinn
skammt frá. Var piltunum því ekið til
síns heima í lögreglubíl með áminn-
ingu um að leggja ekki í frekara
sjósund i bráð.
-BTH
Þing fjórðungssambands Vestfirðinga:
Ferðamál og byggðaþróun
Bjami Guðmaissan, DV, fsafirði:
Þing Fjórðungssambands Vestfirð-
inga var haldið dagana 22. og 23. ágúst
sl. Þijú aðalmál voru til umræðu;
bætt skipulag skólamála á Vestfjörð-
um, æskileg framvinda ferðamála í
fjórðungnum og loks staða og framtíð
Fjórðungssambandsins. Þá bar fjölda
annarra mála á góma og má þar nefna
samgöngumál, byggðaþróun og ýmis-
legt er varðar innra skipulag sam-
bandsins.
Fjórðungssamband Vestfirðinga á
að baki 37 ára starfesögu. Það var
stofnað á ísafirði 8. nóvember árið
1949, þá sem samband sýslufélaga og
ísafjarðarkaupstaðar en nú eiga aðild
að því öll sveitarfélög í Vestfiarðar-
kjördæmi. Markmið Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga er að vinna að
hagsmunum sveitarfélaganna og efla
samstarf þeirra á milli. Jóhann T.
Bjamason, framkvæmdastjóri Fjórð-
ungssambandsins, tók saman fyrir
þingið skrá um málefni sem F.V. hefur
unnið að og er af henni ljóst að víða
hefúr verið komið við á ferli sam-
bandsins. Mörg þessara málefria hafa
verið farsællega til lykta leidd en önn-
ur eru enn til meðferðar.
Undanfarin ár hefur borið nokkuð á
óánægju meðal sveitarstjómarmanna
með uppbyggingu sambandsins og
menn hafa efast um mátt þess til að
knýja frarn baráttumál sveitarfélag-
anna. Guðmundur H. Ingólfeson, fyrrv.
formaður sfjómar, gerði þessar efa-
semdir að umræðuefiii í framsögu um
framtíð og stöðu F.V. Þar sagði hann
m.a.: „F.V. stendur nú á tímamótum
og það getur ráðið miklu um framtíð
sambandsins og velferð byggðar á
Vestfjörðum hvemig nú tekst til.“
Frá þingi Fjórðungssambands Vestfirðinga: Karvel Pálmason alþingismaður í
ræðustól. DV-mynd. Bjarni.
DV-mynd Sigurjón.
Rykský yfir
KveldúHsblokkum
Klæðning sett á bifreiðastæði í Borgamesi.
Sigurján Gunnaissoin, DV, Borgamesi:
Þegar unnið var að lagningu
klæðningar á bifreiðastæði við
ifbúðablokkir við Kveldúlfegötu í
Borgamesi gaus upp mikið ryk er á
tímabili byrgði nær allt útsýni.
Fyrir nokkm var lagt á svæði þettá
fyrsta lag klasðningar og var núna
komið að lagningu annars lags. Svo
vel mætti fara var nauðsynlegt að
sópa burt möl og sandi er ekki hafði
gengið ofan í olíuna í fyrra skiptið,
því nú átti að leggja annað olíulag
og ofan í það mun fínni sand en
notaður var í fyrra sinnið.
Við verk þetta var notaður sópur
einn mikill er tengdur var dráttarvél
og vom afköstin slík að rykmökk
lagði um allt hverfið.
Hætt er við að þeir, sem ekki höfðu
þá forsjálni eða áttuðu sig ekki á
þessum vágesti og höfðu opið upp á
gátt, hafi fengið góðan skammt af
ryki inn til sín.