Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 39
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Kjaftasaga
um laun
Örlítill kjaitagangurhefur
verið um laun nýja bæjar-
stjórans á Akureyri, Sigfúsar
Jónssonar. Sagt er að hann sé
einn hæstlaunaðasti, eða allra
hæstlaunaðasti bæjarstjóri
landsins og hafi vel á annað
hundrað þúsund í laun á mán-
uði.
Sagan segir einnig að laun
bæjarstjóra almennt séu nú í
kringum 120-130 þúsund á
mánuði.
Kirkju-
skemmdir
Akureyrarkirkja, með fræg-
ustu kirkjutröppur landsins
fyrir framan sig, er verr farin
af skemmdum en menn bjugg-
ust við. Viðgerð hefur staðið
yfir í sumar.
Fyrst var álitið nægjanlegt
að gera við þakrennur og
múrskemmdir, en í ljós hafa
komið miklar frostskemmdir á
sjálfri kirkjubyggingunni.
Messufall hefur þar þó ekki
orðið.
Raggisót
Ragnar Gimnarsson, eða
Raggi sót, eins og hann er
kallaður, söngvari Skriðjökl-
anna á Akureyri, var í hressu
viðtali í Degi á föstudaginn.
„Kvenhylli mun ævinlega
fylgja mér, sem og aðrir per-
sónutörfrar sem ég óneitan-
lega bý ufir,“ sagði hann
kampakátur.
Sumum finnst sótarinn
dijúgur með sig og Dagur
spurði hann hvort rétt væri?
„Ekki óeðlilega, myndi ég
álíta. Ég er þó kannski ekki
dómbær á það sjálfur. En slík-
ur mannkosta- og hæfileika-
maður sem ég er hlýtur alltaf
að hljóma dálítið drýginda-
Raggl sót I opinberrt heimsókn i
Reykjavik.
lega þegar fólk þekkir hann
ekki.“
Ásgefri ekki boóið i afmælið.
Raggi og
rás2
Og áfram með viðtalið við
Ragga sót, en fræg er deila
þeirra Skriðjökla við Ásgeir
Tómasson, umsjónarmann
vinsældalista rásar 2.
Ragnar var spurður: Er þér
illa við Ásgeir Tómasson?
„Ekki get ég sagt það, en
það er ljóst að ég býð honum
ekki í afmælið mitt!“
Svo mörg voru þau orð.
Páfagaukur
í Sjálfstæóis-
flokknum?
Sjálfstæðismenn og fram-
sóknarmenn hafa haldið
hvorir sinn þingflokksfundinn
á Sauðárkróki undanfarið.
Sjallarar voru fyrri til.
Sagan segir að inn á fundinn
til þeirra hafi flogið páfagauk-
ur. Það skemmtilega var að
páfagaukurinn var blár á lit-
inn. Gaukurinn var gómaður,
þó ekki af þingmönnunum, og
fundur hans síðan auglýstur í
sjónvarpsdagskrá þeirra
Krækinga, Sjónarhominu.
Ungur drengur gaf sig þegar
fram og hafði páfagaukurinn
sloppið úr búrinu hans. Senni-
lega er það rétt því framsókn-
armenn segjast alls ekki hafa
sent páfagaukinn á fundinn.
KÞ og gyðing-
ar
Víkurblaðið á Húsavík sýndi
mynd á dögunum af hringlaga
glugga í húsi Kaupfélags
Þingeyinga, Sölku. Glugginn
er skreyttur með einfaldri
stjömu og ku stjaman hafa
verið þama svo lengi sem
menn muna. Umrædd stjama
er svokölluð Davíðsstjama,
gerð af tveim þríhymingum
og hefur verið tákn gyðinga.
Hún prýðir til að mynda þjóð-
fána Israelsríkis.
Og þá vitum við hvað Kaup-
félag Þingeyinga og gyðingar
eiga sameiginlegt.
Sandkom
Hólarog
Jemsalem
Framsóknarmenn gáfu sér
tíma til að skreppa að Hólum
í Hjaltadal á milli þess sem
þeir þinguðu á Króknum.
Hjálmar Jónsson, prófastur
Skagfirðinga, sýndi þeim
kirkjuna, sem reyndar er illa
farin af skemmdum. Hann
sagði að svo vænt þætti Skag-
firðingum um Hóla í Hjaltadal
að menn þættust heyra hjá
þeim sama tóninn i „heim að
Hólum“ og þegar aðrir segðu
Jerúsalem.
Baqley oq
kossinn
Rúnar Rúnarsson, fallhlíf-
arstökkvari á Akureyri, kyssti
Báru Einarsdóttur, 40. far-
þegann hérlendis með Larry
K. Bagley, í háloftunum yfir
Akureyri. Rúnar sagðist eftir
stökkið, í áheym Bagleys,
hafa haft mj ög gaman af koss-
inum og sem betur fer hefði
hann ekki farið mannavillt
þama uppi.
Bagley svaraði fyrir sig:
„Láttu ekki svona, þú sveifst
á mig og ég mátti hafa mig
allan við til að forðast þig.“
Léttir menn,
fallhlífarstökkvarar.
Guðs lömb
Landssamband sauðfjár-
bænda fundaði á dögunum um
markaðsmál lambakjötsins.
DV spurði eftir fundinn, á
léttu nótunum, hvemig þeim
þætti nafngiftin fjallalamb?
Lítið gáfu þeir út á það,
sögðust bara bíða eftir því að
þeir færu að framleiða
guðslömb.
Umsjón: Jón G. Hauksson
BESTA BORGARMYNDIN
Tókst þú Ijósmynd í Reykjavík á afmælisdaginn 18. ágúst?
Verðlaun fyrir bestu afmælismyndina
Skilafrestur er til 3. september.
UÓSMYNDAKEPPNI
Nýtt frá
Hudson
Swing
Hvíldar-
sokkabuxur
Mjög áferðarfallegar með sérstakri aðhaldsteygju sem
fellur vel að og heldur fótum þínum óþreyttum frá morgni
tilkvölds.
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jónsson & Co. hf.
Sími 24-333.
HÖFN í HORNAFIRÐI
Enskukennara vantar að Heppuskóla (7.-9. bekkur),
ýmis hlunnindi í boði. Kannaðu málið. Upplýsingar i
síma 97-8321 eða 97-8348.
KENNARAR!
Okkur vantar nú þegar kennara að grunnskólanum á
Stokkseyri. Æskilegar kennslugreinar tungumál, sam-
félagsgreinar, líffræði og forskólakennsla. Við bjóðum
upp á góða kennsluaðstöðu, ódýrt húsnæði og auka-
kennslu fyrir þá er þess óska. Upplýsingar veita
skólastjóri í síma 99-3263, formaður skólanefndar í
síma 99-3266 og sveitarstjóra í síma 99-3267.
Sveitarstjóri Stokkseyrarhrepps.
tfbpOffc':
Það er sérstök tilfining að sjá þennan kabarett.
Sambland af dulúð, spennu og grátbroslegri kímni.
Shahid Malik, einn fremsti sjónhverfinga- og töframaður heims,
tvöfaldur heimsmeistari í listinni, kallaður „Houdini nútímans".
Walter Wasil, jafnvægislistamaður og loftfimleikakonanJessica,
bæði með æsileg atriði.
BarnatrúðurinnRhubardtheClown og „Stóri karlinn" prófessor
Crump.
- Allt velþekkt fjöllistafólk sem skapar hinn ógleymanlega kabarett.
„Commodore Cabarett" á sýningarpalli virka daga klukkan 17,19
oa 21 oa um helaar kl. 15.17.19 oa 21.
SYNIIMU
MARKAÐUR
SKEMMTUN
HeimiliÖlBó
Laugardalshöll