Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 40
40
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Breiðvangi 55, Hafnarfirði, þingl. eign Valgerðar
Ólu Þorbergsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 4. september
1986 kl. 13.30.
_________________________Baejarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 107. og 108. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Skerseyrarvegi 1A, n.h., Hafnarfirði, þingl. eign Guðmundar Pálsson-
ar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 4. september 1986 kl. 14.15.
__________________________Baejarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 77., 83. og 89. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eign-
inni Suðurgötu 54, Hafnarfirði, þingl. eign Hrafnkels Tryggvasonar, fer fram
eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands, Landsbanka Islands, Vilhjálms
H. Vilhjálmssonar hdl., Valgeirs Kristinssonar hri. og innheimtu rikissjóðs á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 4. september 1986 kl. 15.30.
______________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Sjávargötu 34, Bessastaðahreppi, þingl. eign
Halldórs Sigurþórssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 4. septemb-
er 1986 kl. 17.00.
________________________Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Rakarastofan Klapparstig I
Hárgreiðslustofan 1
Klapparstíg
Sími 12725
íímapantanir
13010
i
Frá Grunnskólunum
í Mosfellssveit
Nemendur Varmárskóla (6-12 ára) komi i skólann
sem hér segir:
10-12 ára föstudaginn 5. september kl. 10.00.
7-9 ára föstudaginn 5. september kl. 11.00.
Forskólanemendur verða boðaðir bréflega.
Nemendur gagnfræðaskólans (13-15 ára) komi í
skólann föstudaginn 5. september kl. 10.00.
Skólastjórar.
Einstakt tækifæri/
hausttiiboð
Vikuna 1.-7. september býður ísbrot 10-15% afslátt
af öllum vörum verslunarinnar, meðal annars:
1 ............. ■
Utvarp - sjónvarp____________________________p\
Valgerður Guðmundsdóttír skrifstofumaður:
Er ekki kominn tími til að klipp ann?
Á föstudögum finnst mér þáttur-
inn Á döfinni vera á mjög óhentug-
um tíma því maður gleymir alltaf
að horfa á þennan annars áhuga-
verða þátt. Ég held að fæstir hafi
tíma til að horfa á sjónvarp klukkan
kortér yfir sjö á föstudagskvöldum.
Sjónvarpsfréttimar horfi ég undan-
tekningarlaust á. En heldur þótti
mér síðsumarástin langdregin í dag-
skrárlok þetta kvöld.
Á laugardag sleppti ég þvi viljandi
að horfa á fótboltastúlkumar ösla í
rigningunni í Garðabæ. Eftir fréttir
fönnst mér fyrirmyndarfaðirinn hafa
alið upp fyrirmyndardreng og var
jafnánægjulegt og oft áður að horfa
á þann þátt. Það var vel horfandi á
báðar laugardagsmyndimar. Af ein-
skærri tilviljun hafa valist þama
tvær myndir í einu sem horfandi var
á, Glæstar vonir og Með hnúum og
hnefum.
Sunnudagsmorgunninn byrjaði
öðmvísi en aðrir sunnudagar því
útvarpið hjá mér var stillt á Bylgj-
una 98,9 og líkaði mér vel þar til
leið nær hádegi. Þá varð ég að stilla
á rás 1 Ríkisútvarpsins. Það er ekki
sunnudagsmorgunn án messu í út-
varpinu. Síðan vom það Bylgjan og
rásir 1 og 2 til skiptis fram eftir degi
og var erfitt að velja og hafiia. Það
vakti þó furðu mína þegar ég var
farin að hlusta á sama efiii og daginn
áður í nýju útvarpsstöðinni. Dag-
skrá næstu viku finnst mér góður
þáttur. Guðrún Skúladóttir er alltaf
jafhviðkunnanleg ú skjánum. Raf-
magnsveituþátturinn var jafngóður
og aðrir þættir Tæknisýningarinnar.
Mér finnst þessir þættir vel unnir
að flestu leyti. Fræðandi, fallegir og
alveg einstaklega vel sagt frá af
Amari Jónssyni leikara. Ekki get
ég sagt það sama um næsta dag-
skrárlið, spænska atriðið frá Lista-
hátíð. Fannst mér það í einu orði
sagt ömurlegt og miðað við hina
rauðklæddu senjórítu sem stappaði
á sviðinu á Broadway mætti halda
að þetta væri deyjandi stétt á Spáni.
Masada er ekki þáttur að mínu
skapi. Þrátt fyrir marga góða leikara
ákvað ég að eyða sunnudagskvöld-
unum í eitthvað annað. Picasso í
dagskrárlok kom mér skemmtilega
á óvart. Það var spennandi að sjá
hvemig myndimár urðu til hjá hon-
um. Þó að mér persónulega fyndist
þær yfirleitt bestar þegar þær vom
hálfriaðar hjá málaranum.
Andlát
Bjöm Ólafsson byggingarmeistari,
Norðurvangi 44, Hafnarfirði, lést í
Borgarspítalanum fimmtudaginn 28.
ágúst.
Þórunn Sigurðardóttir frá Fiski-
læk lést fimmtudaginn 28. ágúst.
Útför Arthúrs Benediktssonar,
Hafnarstræti 7, Akureyri, sem lést
þann 24. úgúst, fer fram frú Akur-
eyrarkirkju miðvikudaginn 3. sept-
ember kl. 13.30.
Helga Hjördís Hjartardóttir,
Hamraborg 30, Kópavogi, sem lést
þann 24. þ.m., verður jarðsungin frú
Kópavogskirkju þriðjudaginn 2.
september kl. 10.30.
Guðmundur Magnússon bókari,
Álftamýri 10, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 2. september kl. 10.30.
Einar J. Eiríksson verður jarð-
sunginn frá Aðventkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 2. september
kl. 15.
Ingigerður Guðrún Guðjónsdótt-
ir, Sólvallagötu 45, Keflavík, verður
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 2. september kl. 14.
Útför Láru Pálsdóttur verður gerð
frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 2.
september kl. 13.30.
Tilkyimingar
Aðalfundur blakdeildar Þrótt-
ar
Aðalfundur blakdeildar Þróttar verður
haldinn í Þróttheimum laugardaginn 6.
september nk. og hefst kl. 10 árdegis.
Námskeið fyrir leiðbeinendur
um íþróttaiðkanir aldraðra.
Dagana 22.-24. ágúst sl. efndi félag
áhugamanna um íþróttaiðkanir aldraðra
til námskeiðs fyrir leiðbeinendur í Ár-
bæjarskóla í Reykjavík.
Námskeiðið sóttu 53 starfsmenn hjúkr-
unar- og dvalarstofnana aldraðra, sjúkra-
þjálfarar, félagsfræðingar og íþróttakenn-
arar. Fyrirlestra fluttu og kennslu
önnuðust: Magnús H. Ólafsson, íþrótta-
kennari og sjúkraþjálfari, Elísabet
Hannesdóttir íþróttakennari, Guðrún
Nielsen íþróttakennari, Hörður Óskarsson
íþróttakennari, Emst Backmann sund-
kennari, Þorsteinn Einarsson fyrrv.
íþróttafulltrúi, Soflia Stefánsdóttir
íþróttakennari, Bryndís Þorvaldsdóttir
íþróttakennari, Ársæll Jónsson læknir,
Hulda Ólafsdóttir sjúkraþjálfari, Mínerva
Jónsdóttir íþróttakennari og Jóna Egg-
ertsdóttir félagsráðgjafi.
Frá Reykjavíkurborg naut námskeiðið
hentugra og vistlegra húsakynna og frá-
bærrar aðstoðar Rögnvaldar Bjamasonar
húsvarðar. Styrks naut námskeiðið frá
heilbrigðisráðuneytinu. Frá íþróttadeild
menntamálaráðuneytisins naut námskeið-
ið ýmislegrar aðstoðar.
Þátttakendur komu víða af landinu. Við
lok námskeiðsins létu þeir í ljós þakkir
fyrir leiðbeiningar og kennslu. Áuk beinn-
ar fræðslu fengu þeir að kynnast notkun
hjálpartækja, rita og hljómsnælda sem
varða íþróttaiðkanir aldraðra. Um 40 aldr-
aðir frá Kópavogi heimsóttu námskeiðið
og sýndu leikfimi undir stjórn Elisabetar
Hannesdóttur.
Formaður félags áhugamanna um
íþróttaiðkanir aldraðra, Guðrún Nielsen,
setti og sleit námskeiðinu, en hún stjórn-
aði og undirbjó það ásamt Elísabetu
Hannesdóttur, Huldu Ólafsdóttur, Þor-
gerði M. Gísladóttur og Þorsteini Einars-
syni.
Nýr sveitarstjóri
til Grundarfjarðar
Hreppsnefnd Eyrarsveitar hefur ráðið Ólaf
Hilmar Sverrisson viðskiptafræðing sem
sveitarstjóra. Ólafur, sem er 86 ára gam-
all, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið 1980 og útskrifaðist
frá viðskiptadeild Háskóla íslands árið
1984. Frá þeim tíma hefur Ólafur starfað
hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Kona
Ólafs er Ragnheiður Gunnarsdóttir hjúkr-
unarfræðingur. Ólafur tekur til starfa á
næstunni.
Tónleikar „Die Munchner
Xylophoniker“ á Vestfjörðum,
Suðurlandi og í Reykjavík
Á næstu vikum mun 5 manna hópur
þýskra hljóðfæraleikara, „Múnchner Xy-
lophoniker", halda tónleika hér á landi.
Hópurinn leikur á ýmsar gerðir tréspila
og gitar fjölbreytta efnisskrá, m.a. verk
eftir J.S. Bach, Franz Schubert og Scott
Joplin. Tónleikar þeirra verða sem hér
segir: Mánudaginn 1. sept. kl. 20.30 í mat-
sal Hjálms á Flateyri, þriðjudaginn 2. sept.
kl. 20.30 í grunnskólanum á Þingeyri, mið-
vikudaginn 3. sept. kl. 20.30 í Félags-
heimilinu Bolungarvík, miðvikudaginn 10.
sept. kl. 20.30 í í Hafnarfjarðarkirkju,
fimmtudaginn 11. sept. kl. 20.30 í Selfoss-
kirkju, laugardaginn 13. sept. kl. 17 í
Langholtskirkju og sunnudaginn 14. sept.
kl. 17 í safnaðarheimili Akraneskirkju.
Söngskemmtun í Hlaðvarpan-
um
Emil og Anna Sigga halda söngskemmtun
þriðjudaginn 2. september kl. 20.30 í Hlað-
varpanum, Vesturgötu 3. Boðið verður upp
á snilfdarlegar útsetningar af sívinsælum
lögum. Djúsbarinn sér um léttar veitingar.
Húsið opnað kl. 20. Komið tímanlega og
tryggið ykkur sæti.
Ráðstefna um málefni aldr-
aðra
Dagana 17.-20. nóvember næstkomandi
veður efnt til ráðstefhu um málefni aldr-
aðra á Norðurlöndum. Skipulagningu
ráðstefnunnar annast norræna félagið í
Noregi og verður ráðstefnan haldin í
Hamri í Noregi. Gert er ráð fyrir allt að
100 þátttakendum víðs vegar af Norður-
löndum. Ýmsir kunnir fyrirlesarar flytja
erindi á ráðstefnunni, þeirra á meðal er
Sigurður H. Guðmundsson frá íslandi, sem
"‘flytur erindi um öldrunarmál á Islandi.
Einnig starfa umræðuhópar um ýmis mál.
Þátttökugjald er 925 norskar krónur og
gistikostnaður, miðað við eins manns her-
bergi á hóteli og með fullu fæði frá
hádegisverði 17. nóvember til og með há-
degisverði 20. nóvember, er 1.975 norskar
krónur. Nánari upplýsingar og umsóknar-
eyðublöð má fá hjá Norræna félaginu,
Norræna húsinu, 101 Reykjavík, símar
10165 og 19670.
Tapað - Fundið
Kisa tapaðist
Svört og hvít kisa með hvítar hosur tapað-
ist frá Kleppsvegi 66. Ef einhver hefur
orðið var við hana vinsamlegast látið þá
vita í síma 36397.
Bankabók týndist
Bankabók frá Sparisjóði Hafnarfjarðar,
nr. 38959, týndist á afmæli Reykjavíkur.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
651137 eftir kl. 17.
Happdrætti
Happdrætti handknatt-
leiksdeildar Fram
Dregið hefur verið í happdrætti hand-
knattleiksdeildar Fram.
Vinningsnúmer eru:
1 2216
2 1987
3 3694
4 2629
5 1174
6 1588
7 4425
8 1489
9 3312
10 2150
Þökkum stuðninginn.
Handknattleiksdeild Fram.