Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
43
Sviðsljós
Kvikmyndin Land og synir hefur
verið til sýninga úti í hinum stóra
heimi og flestir sannir íslendingar
biðja þess heitt og innilega að hún
verði ógleymanleg öllum áhorfend-
um. Síðastliðið miðvikudagskvöld
var myndin sýnd í breska sjónvarp-
inu á rás fjögur og einnig fyrir
rúmum mánuði á rás tvö í sænska
sjónvarpinu.
Að minnsta kosti eitt heilsuhæli í
velferðarríkinu Svíþjóð fór hreinlega
á annan endann yfir sögulokunum
9g með því fjaðrafoki fylgdust tveir
íslendingar - Guðmundur J. Guð-
mundsson, þingmaður og verkalýðs-
foringi, og eiginkona hans Elín
Torfadóttir.
En hvað gerðist raunverulega á
heilsuhælinu umrætt sýningar-
kvöld?
Viðkvæmt fólk og börn
„Jú, þetta er rétt,“ sagði Guðmund-
ur J. Guðmundsson.
„Við hjónin vorum stödd á heilsu-
hæli í Vermlandi í Svíþjóð þegar
kvikmyndin Land og synir var sýnd
í sjónvarpinu. Skömmu áður hafði
verið kvöldvaka þar sem konan mín
hélt fyrirlestur um Island. Það fór
því ekki milli mála að íslendingar
voru á staðnum.
Svo er tilkynnt að sýnd verði ís-
lensk kvikmynd á rás tvö og vist-
mönnum fannst það merkilegt svona
strax eftir fyrirlesturinn. Það komu
því til þess að sjá myndina fimmtíu
manns og sátu út allan tímann. Yfir,-
leitt fara menn þarna snemma í
háttinn.
Fyrir sýningu tók ég eftir því að
birt var mjög stíf aðvörun um að
þetta væri ekki fyrir viðkvæmt fólk
og alls ekki böm. Viðvörunin var
tvítekin."
Hesturinn, lambið, hundurinn
og íslenskir læknar
„Þess er skemmst að minnast að
Land og synir vakti geysilega at-
hygli. Fólki fannst íslensk náttúra
ákaflega falleg, Svarfaðardalurinn,
gönguferðin og fjárreksturinn. Eftir
sýninguna fóm menn fljótlega að
sofa.“
„Daginn eftir kom í ljós að sagan
hafði haft gífurleg áhrif og vistmenn
- sem eru á öllum aldri og úr flestum
þjóðfélagsstigum - vildu fá meira að
vita. Og spurðu okkur í þaula.
Af hverju fór hún ekki með honum
í bæinn og hvers vegna fór hann?
Hvers vegna var hann ekki kyrr fyrst
pabbi hennar keypti jörðina?"
„Menn kaupa ekki mann fyrir dæt-
ur sínar,“ sagði ég.
„Og ægilegt að yfirgefa hundinn
og hótelið - af hverju skaut hann
hestinn sem var svo hvítur og fal-
legur? Hvort bóndinn hefði raun-
verulega skorið lambið? Er mikið um
að menn fari bak við galta til þess
að ekki sjáist til þeirra? Er þá til
bókin - framhald á sögunni? Fór hún
í bæinn eftir að pabbi hennar var
dáinn?
Menn vildu lausn á lovstoríunni."
„Og hvernig stendur á því að
sjúkrahúsið er svona? Þess vegna
eru svona margir íslenskir læknar í
Svíþjóð - þeir flýja. Við þekkjum
einn,“ sögðu margir."
Samviska Ágústs og Indriða
„Myndin rauf kyrrð hversdagslífs-
ins og Ágúst og Indriði hafa svolítið
á samviskunni. Þeir skildu fólkið
eftir í voðalegri spennu. Fólkið vildi
fá lausn, vildi láta þau ná saman.
Og líkaði ekki svörin um flóttann
úr sveitunum sem reif menn upp með
rótum og aðskildi elskendur og ætt-
ingja. Þeim fannst ég órómantískur
og því afgreiddi ég þau með lausn
Vilmundar, fyrrum landlæknis, sem
sagði að hún hefði tekið rútuna og
náð honum á Blönduósi.
Konan mín þótti mildari og síðar
tók ég eftir því að hún sat býsna oft
afsíðis með nokkum hóp 1 kringum
sig. Þau spurðu hana hvort ég væri
voðalega kaldlyndur."
„Þetta kom mér satt að segja tals-
vert á óvart - Svíar virðast svolítið
rómantískir. Þeir vildu fá bókina á
sænsku og framhald af sögunni."
Og þá er bara að vita hvort Indriði
prjónar við fyrri frásögn - lætur
hann þá elskenduma ná saman fljót-
lega, lífgar hestinn við, sameinar
mann og hund og fyllir hús ungu
hjónanna af ægifogrum heimalning-
um? Sviðsljósinu er eins farið og
Svíum - bíður spennt framhaldsins
af Landi og sonum.
-baj
„Er hann Guðmundur kaldlyndur maður?“ spurðu Sviar Elinu Torfadóttur uggandi yfir málalokum í Landi og sonum.
En allt kom fyrir ekki - faðir verkalýðsins á íslardi var ófáanlegur til þess að umsemja og hagræða söguþræðinum
þannig að allir mættu vel við una.
DV-mynd GVA
SKIPTIBOKAMARKAÐU R
- sumarlaunin þín endast lengur
Pú þarft ekki að fletta lengi í stœrðfrœðibókinni þinni frá í
fyrra til að reikna út, að það getur borgað sig að skipta við
Skiptibókamarkað Eymundsson í Austurstræti. Fjörugan
markað með notaðar kennslubækur.
‘Við skiptumst á...
ÍSLENSKA
íslensk málfræði II / Kristján Árnason
- 2. útg. 1983.
íslensk málf ræftl / Björn Guðfinnsson - 1985
íslensk setningarfræði / Ðjörn Guðfinnsson,
2. útg.
íslenskar bókmenntir til 1550 / Ðaldur
Jónsson
Stafsetningarorðabók - 3. útg. 1980
DANSKA
Dönsk-íslensk orðabók - Isafold 1973
íslensk-dönsk orðabók - ísafold 1976
Gyldendals ordbog for skole og hjem
Nu-Dansk Ordbog etbindsudgave
Nu-Dansk Ordbog 12. udgave
Zappa
Nár snerlen Blomstrer
Kesses Krig
Ned med nakken
Tændstikleg
Som de vil ha’ dig
ENSKA
Ensk-íslensk orðabók - Isafold 1976
íslensk-ensk orðabók - (safold 1983
Longmans Contemporary English
Dictionary
Oxford Advanced Learners Dict. of
Current English (revised and regularly
updated).
Exploring English Book 3, lesbók
Thinking English Book 4, lesbók
Z for Zacharia
First Certificate Skills, lesbók
Longman Advanced English
New proficiency English Book 2
Tales of Mystery & Imagination
Twentieth Century English short stories
The Secret Diary of Adrian Mole
The Evil of Mr. Happiness
Hotel (einfölduð)
Background to U.S.A.
Meaning into words (rauð), lesbók
Now Read On
Being There
The woman who disappeared
Tristan and Isold
The World Ahead
Mother Night
Streamline, Destinations, lesbók
Streamline, Directions, lesbók
The Growing Pains of Adrian Mole
Peril at End House
Modern short stories f. students of English
Reading Literature
Across the Barricades
Liar
A Remedial English Grammar
Twelfth Night
And then there were none
Practice in the use of English
Frankenstein’s Aunt
Background to Britain
Basic Working Grammar, workbook
Grammar in Context
ÞÝSKA
Þýsk-íslensk orðabók - ísafold 1982
Þýska fyrir framhaldsskóia, lesbók
Deutsch fur junge Leute, lesbók
Schulerduden, Bedeutungswörterbuch
Deutsch Sprechen im Alltag
Kontakt mit der Zeit
Einfach Gesagt
Wie kommt das Salz in Meer
Der Tod in Rom
Deutsch Aktiv, lesbók
Wir kinder vom Bahnhof Zoo
Angst essen seele auf
FRANSKA
Ágrip al franskri mátfræfti / Herdis
Vigfúsdóttir
íslensk-frönsk orftabók - Isafold 1950
Le Mlcro Robert
Le Petit Prince
Huis close
C’est Ca 1, lesbók
Les vacances du petit Nicolas
Le nouveau Pecherelle (rauðar sagnir)
LATÍNA
Latnesk lestrarbók / Kristinn Ármannsson - 2 pr. 1971
Latnesk málfræði / Kristinn Ármannsson -3. útg. 1971
SAGA
Frá einveldi til lýðveldis / Heimir Þorleifsson - AB 1981
Frá samfélagsmyndun til sjálfstæðisbar-
áttu / Lýður Björnsson - AB 1983
Þættir úr sögu nýaldar / Helgi Skúli
Kjartansson - ísafold 1976
ANNAÐ
Eðlisfræði 1b - 2c / Staffanson o.fl.
Líffræði / Colin Clegg - 1985
þú
WtiÐWfaLL
Þú græðir HUNDRAÐKALL á því að kaupa reikningsbœkurnar
og stílabœkurnar fijá okkur.
Tveir 5 stykkja pakkar eru 100 krónum ódýrari en almennt gerist.
Láttu sjá þig. Sumarlaunin þín endast lengur, látirðu stærðfræði-
bókina þína frá í fyrra vísa þér veginn - í Austurstrætið.
EYMUNDSSON
Tryggur fylginautur skólafólks í meiren 100 ár