Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Síða 44
44
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Kenny Rogers
sór frammi fyrir alheimi og
beint inn í hljóðnema að
auki að frá og með þessari
stundu myndi fjölskyldan
ganga fyrir öllu öðru - yrði
tekin fram fyrir atvinnuna
hvenær sem í odda skærist.
Þetta er líklega ekki svo
heimskuleg ákvörðun þegar
tekið er mið af því að kapp-
inn á að baki fjóra stormas-
ama skilnaði og segir þessi
skeggjaða stjarna allt til
vinnandi svo ekki sæki enn
einu sinni í sama farið í fjöl-
skyldumálunum.
Stacy Keach
fylltist mikilli örvæntingu
fyrir skömmu þegar kollvikin
fóru að hækka sig óhugnan-
lega hátt upp eftir höfuð-
leðrinu. Hann vildi alls ekki
verða hinn nýi Yul Brynner
hvíta tjaldsins. Þegar menn
eiga nokkra aura í vasanum
er hægt að leysa málið í
neyðartilvikum og núna er
hópur sérfræðinga í því að
flytja hársekki til á höfðinu
og græða fasta á nýjum að-
> setursstað. Ævintýrið kostar
litlar sex hundruð þúsund
krónur.
Ekki beint hvalafullar umræður þetta. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sölusambands íslenskra fiskfram-
leiðenda, á tali við Helga Laxdal, varaformann Farmanna- og fiskimannasambands íslands.
JGH. DV Akureyri
Hún tókst vel tvö hundruð og tutt-
ugu manna hvalkjötsveislan sem
sjávarútvegsráðuneytið hélt í
Grjótagjá í Mývatnssveit á dögun-
um. Þarna voru saman komnir gestir
af norrænu fiskimálaráðstefnunni
sem haldin var á Akureyri. Aðalrétt-
urinn og sá eini var að sjáfsögðu
hvalkjöt, borið fram léttsteikt og
súrt. Það var Bautinn sem annaðist
veitingamar og ekki var annað að
sjá en fiskimenn væru ánægðir með
hvalinn. Ekki ónýtt að fá sjálfan
Moby Dick í Mývatnssveit.
Arni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins, lét sitt ekki eftir liggja að innbyrða hvalkjötið.
'wM
Og að sjálfsögðu var Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, mættur í slaginn við mister Dick.
DV-myndir JGH
Vörumarkaðurinnhf.
EÐISTORG111
S: 62 22 00
IGNIS Kæliskápar í miklu úrvali.
Góð greiðslukjör.
Öll verð miðuð við staðgreiðslu.
H. 133, br. 55, d. 60,
H. 144, br. 60, d. 60,
340 Iftra, m/frysti-
hólfi.
H. 81, br. 45, d.
50, 80 litra, m/is-
bakka.
H. 53, br. 52,d.60, 90
litra, m/isbakka.
ARF 904 kr. 15.875,- Væntanlegur. ARF 446 kr. 14.995,-ARF 889 kr. 18.211,-ARP 888 kr. 18.430,-ARF 905 kr. 19.855,-ARF 906 kr. 21.375,-ARF 907 kr. 24.415,- ARF 842 kr. 25.640,-