Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Page 45
BBPi aSH WLTmH ..{ HtJpAOÖWM
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
46
Sviðsljós
íslenskir ísraelar
gróðursetja
Fyrsta grenitréð í íslensk-ísraelsk-
um trjálundi innan Heiðmerkurinn-
ar var gróðursett fyrir skömmu að
viðstöddum hópi félagsmanna úr Is-
landi - ísrael. Sendiherra ísraels,
Jehudith Huebner, kom hingað til
lands frá Osló, þar sem hún hefúr
aðsetur, til þess að tylla trénu í jörðu,
en jafnframt var tilgangur fararinn-
ar að kveðja gamla vini því sendi-
herrann lætur nú af störfum og sest
að í Jerúsalem.
Huebner lætur af störfum eftir ára-
tuga starf í þágu ísraelsku utanríkis-
þjónustunnar og er þetta í þriðja sinn
sem hún kemur til Islands sem sendi-
herra. Gróðurreiturinn í Heiðmörk
var afhentur íslandi - ísrael í vor
og er þessi fyrsti vísir trjálundar ein-
ungis upphafsaðgerð í fyrirhuguðu
gróðursetningarstarfi félagsmanna.
Um kvöldið sat sendiherrann kvöld-
verðarboð félagsins.
-baj
Eitt af þvi sem góöur sendiherra þarf að hafa til að bera er hæfileiki til
að handieika skóflu á sannfærandi máta. ísraelski sendiherrann, Jehudith
Huebner, kunni tökin á tækninni.
Brúni endinn á að snúa niður en grænleiti stingukransinn upp. Þráinn
Þorleifsson, kunnáttumaður í listinni og formaður félagsins ísland - ísrael,
leggur hönd á plóginn.
Og niður skal það. Annar hjálparkokkur mættur á staðinn - Ásgeir Bjöms-
son, einn stofnenda félagsins.
Garðyrkjuflokkurinn saman kominn. Þama eru konsúlar, sendiherrar, núver-
andi og fyrrverandi formenn, núverandi og fyrrverandi stjórnarmenn og svo
mætti lengi telja. Allir lögðu sitt af mörkun við fyrstu skref að íslensk-
israelskum trjálundi í Heiðmörkinni.
Ólyginn
sagði...
Mel Gibson
er góður sonur. Svo góður
reyndar að það er hópur
mæðra í Sydney í Ástralíu
grænn af öfund yfir hans
lúsheppnu móður sem er
hreint að springa af stolti
yfir englinum sínum. Síðasta
góðverkið hans er að kaupa
nýtt hús í sumargjöf handa
foreldrum sínum - myndar-
legan búgarð sem lagði sig
áeinarsjötíu milljónir króna.
Zsa Zsa
Gabor
sagði á sínum síðasta brúð-
kaupsdegi að fátt væri meira
hressandi fyrir sálartetrið en
nýr eiginmaður í rúminu
með hæfilegu millibili. Hún
hefur því samviskusamlega
orðið sér úti um slíka upp-
lífgun níu sinnum á lífsleið-
inni og gæti átt allnokkur
skemmtilegheit eftir ef aldur
og heilsa leyfir. Gabor er um
sjötugt en eiginmaðurinn
tæplega fimmtugur.
4-
H. 159, br. 55, d. 60,
300 litra, m/blást-
H. 159, br. 55, d. 60, urskælingu, tvi-
310 litra, tviskiptur. skiptur.
H. 167, br. 60. d. 60
365 lítra, tvískiptur.
H. 160, br. 67, d. 60,
410 litra, tviskiptur,
m/vatnskæli.
H. 165, br. 55, d. 60,
290 lítra, sambyggö-
ur, kælir/frystir, 2
prassur.
H. 180, br. 60, d. 60,
390 litra, sambyggð-
ur, kœlir/frystir, 2
prassur.
H. 180, br. 60, d. 60,
380 litra, sambyggð-
ur, kælir/frystir, 2
pressur.
H. 139, br. 55*xi. 60,
265 litra, tviskiptur.
ARF 843 kr. 27.360,- ARF 844 kr. 28.405,- ARF 845 kr. 35.055,- ARF 409 kr. 34.200,- ARF 847 kr. 35.482,- ARF 899 kr. 40.546,- ARF 848 kr. 41.980,- ARF 830 kr. 43.605,-