Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Síða 47
MÁNXJDÁGÚR í. SÉPTEMBÉR 1986.
47
Útvarp - Sjónvaip
SJónvarp kl. 20.35:
Hrein
toig,
fögur
boig
Tæknisýning Reykjavíkur hefur lá-
tið gera fjölda kynningarmynda sem
sýndar hafa verið í sjónvarpinu und-
andfarið. í kvöld verður sýnd myndin
Hrein torg, fögur borg og fjallar hún
um starfsemi hreinsunardeildar borg-
arinnar.
Árlega fara um hundrað þúsund
tonn af sorpi á haugana í Gufunesi
og það má nærri geta hvemig borgarl-
andið liti út ef ekki væri röggsamlega
staðið að sorphirðingu.
Sigurður Jakobsson tók myndina,
Ólafur Bjami Guðnason samdi texta
en Amar Jónsson leikari les.
Hundrað þúsund tonn af sorpi eru árlega flutt á sorphaugana í Gufunesi þar sem ibúar hauganna, mávamir, taka við þeim.
Leikstjóri er Amram Novak en með aðalhlutverk fara Bob Dishy og Zohra
Lampert.
SJónvaip kl. 21.45:
Samræður á
skyndibitastað
Skyndibitastaðurinn nefoist banda-
rískt sjónvarpsleikrit sem sýnt verður
í kvöld. Leikritið er byggt á smásögu
eftir nóbelsskáldið Isaac Bashevis Sin-
ger. Sagan er dæmigerð fyrir Singer
og byijar á einfaldan og raunveruleg-
an hátt en smám saman flækist
söguþráðurinn þar til spennan nær
hámarki og komið er inn á svið hins
yfimáttúrlega.
Aðalpersónan er Esther, ung gyð-
ingastúlka, sem er fastagestur á litlu
kaffihúsi í New York á sjöunda ára-
tugnum. Þar hittir hún Aaron, frægan
rithöfund, einnig af gyðingaættum.
Samband þeirra er í fyrstu rómantískt
en þegar Áaron kynnist Esther nánar
verður honum ljóst að þótt hún hafi
lifað af ofsóknir nasista er hún and-
lega illa farin og virðist oft á tíðum
eiga erfitt með að greina milli raun-
veruleika og ímyndunar.
Útvarp, Bylgjan, kl. 14.00:
Þrír tímar
með Pétri
í dag frá klukkan 14 til 17 verður
Pétur Steinn Guðmundsson með létt-
an tónlistarþátt fyrir hlustendur
Bylgjunnar. Aðspurður sagði Pétur
um efiii þáttarins: „Hugmyndin er að
vera í góðu sambandi við íslenska tón-
listarmenn í þessum þætti, taka viðtöl
við þá og kynna nýjar plötur. Ég mun
fylgjast vel með og fjalla um það sem
efet er á baugi hveiju sinni. Þannig
er ætlunin að vera í nútíðinni með
íslenskum tónlistarmönnum."
Pétur hefur þegar fengið hljómsveit-
imar Skriðjökla og Greifana í heim-
sókn og rakið gamimar úr meðlimum
þeirra. Hann tók það einnig fram að
í framtíðinni væri ætlunin að hafa
viðtölin lengri og ítarlegri við hvem
tónlistarmann.
Pétur Steinn, dagskrárgerðarmaður
Bylgjunnar.
Sjónvarp kl. 22.35:
ísak í Ameríku
Á eftir leikritinu Skyndibitastaður-
inn verður sýnd mynd um nóbels-
skáldið Isaac Bashevis Singer sem er
höfundur sögunnar. Myndin var tekin
á þremur árum í Ameríku og bregður
upp lifandi mynd af persónuleika Sin-
gers.
Hann er nú á níræðisaldri og er tal-
inn með fremstu rithöfundum nútím-
ans. Sagt er frá daglegu lífi hans sem
er þaulskipulagt. Hann ferðast um og
flytur fyrirlestra milli þess sem hann
skrifar af fullum krafti.
Þetta er fyrsta heimildamyndin sem
gerð hefur verið um þennan merka
mann.
Á eftlr leikritinu Skyndibitastaöurinn verður sýnd heimildamynd um höfund
sögunnar, nóbelsskáldið Isaac Bashevis Singer.
Veðrið
I dag verður norðvestankaldi eða
stinningskaldi á landinu. Á Suður- og
Suðausturlandi verður víða léttskýjað
en skýjað að mestu annars staðar.
Rigning eða súld verður við norður-
ströndina. Hiti 6-12 stig.
Veðiið
Akureyri súld 8
Egilsstaðir mistur 10
Galtarviti rigning 4
Hjarðames skýjað 9
Keflavíkurflugvöllur skýjað 8
Kirkjubæjarkla ustur hálfskýj að 9
Raufarhöfn rigning 7
Reykjavík skýjað 7
Vestmannaeyjar mistur 10
Útlönd kl. 6 í morgun:
Bergen skýjað 10
Helsinki alskýjað 8
Kaupmannahöfn rigning 11
Osló skýjað 11
Stokkhólmur skýjað 10
Þórshöfn alskýjað 11
Útlönd kl. 18 í gær:
Algarve þokumóða 24
Amsterdam skýjað 13
Aþena heiðskírt 27
Barcelona léttskýjað 20
(Costa Brava)
Berlín skýjað 14
Chicagó heiðskírt 26
Feneyjar heiðskírt 22
(Rimini og Lignano)
Frankfurt skýjað 14
Glasgow rigning 12
Las Palmas léttskýjað 24
(Kanaríeyjar)
London skýjað 17
LosAngeles heiðskírt 24
Luxemburg hálfskýjað 13
Madríd skýjað 22
Malaga léttskýjað 24
(Costadelsol)
Mallorka léttskýjað 23
(Ibiza)
Nuuk alskýjað 6
París skýjað 16
Róm léttskýjað 22
Vín léttskýjað 15
Winnipeg skýjað 22
Valencía þokumóða 21
(Benidorm)
Gengið
Gengisskráning nr. 163 - 1. september
1986 kl. 09.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 40,400 40,520 40,630
Pund 60,146 60,324 60,275
Kan. dollar 29,145 29,232 29,122
Dönsk kr. 5,2664 5,2821 5,2536
Norsk kr. 5,5529 5,5694 5,5540
Sænsk kr. 5,8836 5,9011 5,8858
Fi. mark 8,2736 8,2982 8,2885
Fra. franki 6,0775 6,0955 6,0619
Belg. franki 0,9621 0,9650 0,9591
Sviss. franki 24,6898 24,7632 24,6766
Holl. gyllini 17,6593 17,7117 17,5945
Vþ. mark 19,9191 19,9783 19,8631
ít. líra 0,02886 0,02894 0,02879
Austurr. sch. 2,8290 2,8374 2,8220
Port. escudo 0,2796 0,2804 0,2783
Spá. peseti 0,3033 0,3042 0,3037
Japansktyen 0,26247 0,26325 0,26272
írskt pund 54,736 54,899 54,641
SDR 48,0236 49,1685 49,1764
ECU 41,8039 41,9281 41,7169
Símsvari vegna gengisskráningar 22190.
V MINNISBLAÐ /
Muna eftir
aÖ fá mér
eintak af