Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Blaðsíða 48
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Úrslitakostir settir í Rainbowmálinu:
Löggjöf sett innan mánaðar
- ef lausn verður ekkí fundin
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra telur að til greina komi að
íslensk stjómvöld setji löggjöf innan
mánaðar ef Rainbowmálið leysist
ekki fyrir þann tíma. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
sagði í samtali við DV að hann væri
sammála Þorsteini.
„Það kann svo að fara að við setj-
um löggjöf í lok þessa mánaðar ef
ekki liggur fyrir lausn í þessu máli.
Það liggur fyrir að utanríkisráð-
herra hefur unnið mikið starf til að
knýja fram lausn. Á hinn bóginn er
ljóst að við getum ekki þolað að bíða
endaiaust eftir því að Bandaríkja-
menn leysi þetta mál eins og þeir
hafa lofað,“ sagði Þorsteinn Pálson.
- Ert þú með þessu að gefa Banda-
ríkjamönnum mánaðarfrest?
„Ég veit ekki hvort hægt er að orða
það þannig. Það hefur verið unnið
mikið til að reyna að leysa þetta
mál og það er vonandi að það starf
skili árangri svo ekki þurfi að koma
til þessarar lagasetningar."
- Hvers konar lagasetningu hefur
þú í huga?
„Lagasetningu af því tagi sem
tiyggir báðum vamaraðilum jafrian
rétt til flutninga fyrir vamarliðið og
sem hindrar að annar aðilinn geti
haft einokun á þessum flutningum.
Það liggja fyrir þvi jöfii eða ríkari
rök að viðhalda íslenskum kaup-
skipaflota ef til hættuástands kemur.
- Er samkomulag um þetta innan
ríkisstjómarinnar?
„Ég á ekki von á öðm. Ég er samt
að lýsa afstöðu okkar sjálfstæðis-
manna. Það em takmörk fyrir því
hversu lengi við getum beðið eftir-
því að Bandaríkjamenn leysi þetta
mál,“ sagði Þorsteinn Pálsson.
* ítalska konan
leitaði án
árangurs
ítalska konan Annamaria Panada,
sem hér hefur leitað eiginmanns síns,
hefur ekkert fundið. Hún hélt af landi
brott á laugardag áleiðis til Irlands
þar sem hún mun halda áfram leit
sinni.
Eins og DV skýrði frá á laugardag
var maður hennar á skútu sem hvolfdi
úti fyrir Biscayaflóa. Þegar skútan
fannst vom björgunarbátar hvergi sjá-
anlegir. Síðan hefur konan leitað
manns síns og heitið 6 milljón króna
verðlaunum þeim sem sagt getur henni
eitthvað.
Panada dvaldi hér á landi í nokkra
daga og fór meðal annars i fimm tíma
flug með Ijandhelgisgæslunni en án
árangurs eins og fyrr segir.
-KÞ
Frá og með 1. september kostar
áskrift af DV kr. 500 á mánuði. í
lausasölu kostar blaðið 50 krónur og
helgarblaðið 60 krónur. Frá og með
sama tíma verður grunnverð auglýs-
inga kr. 330 hver dálksentímetri.
Ávallt feti framar
SÍMI 68-50-60.
MtflSTUR
SÍÐUMULA 10
LOKI
Loksins kom að því aug-
Ijósa.
Þeir Guðjón Þórðarson og Olafur Þórðarson í IA hlaupa hér með mjólkurbikarinn eftirsótta eftir sigur Skagamanna yfir Fram á Laugardalsvellin-
um. Sjá nánar á íþróttasiðum blaðsins. DV-mynd BG
Veðrið á morgun
Norðvestan-
kaldi verður
á landinu
Á morgun verður norðvestankaldi
eða stinningskaldi um mestallt land.
Skúrir verða norðaustanlasds en
víðast þurrt annars staðar. Á Suður-
og Suðausturlandi verður léttskýjað.
Hiti verður á bilinu 6 12 stig.
Villijálmur
í framboð
Vilhjálmur Egilsson, formaður
Sambands ungra sjálfetæðis-
manna, hefur ákveðið að gefa kost
á sér í prófkjör Sjálfetæðisflokks-
ins í Keykjavík fyrir næstu al-
þingiskosningar.
„Við, ungirsjálfetæðismenn, höf-
um fundið að málfiutningur okkar
á sér mikinn hljómgrunn meðal
sjálfetæðisfólks og að við eigum
erindi í þingflokkinn," sagði Vil-
hjálmur í samúili við DV í morgun.
-EA