Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1986, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1986, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 1986. Fréttir Augu heimsins beinast að Höfða Höfði verður að öllum líkindum fundarstaður þeirra Reagans og Gor- batsjovs. Þegar þetta er skrifað bendir allt til þess að minnsta kosti. Þegar á laugardag var kominn lögregluvörður við húsið og engum hleypt þar inn. DV-mönnum tókst þó að komast inn og taka nokkrar myndir. Húsið, sem nú er kallað Höfði, var byggt árið 1909. Það var Spítalafélagið í Dunkirque í Frakklandi sem lét byggja húsið, sama félagið og stóð fyr- ir byggingu Franska spítalans. Fyrstu fjögur fimm árin bjó í húsinu konsúll Frakka, Brillouin að nafni. Þá var það selt og keyptu það félögin sem tengd- ust Einari Benediktssyni skáldi og hann hafði afskipti af. Bjó hann í hús- inu ásamt fjölskyldu sinni 1914 til 1915. Segir sagan að þar hafi hann haldið geysimögnuð samkvæmi. Einar gaf húsinu nafiiið Héðinshöfði eftir Héð- inshöfða á Tjömesi þar sem faðir hans bjó. Lítið var búið í húsinu eftir að Einar fór þaðan eða þar til skömmu eftir 1920 að Matthías Einarsson, læknir á Landspítalanum, keypti það. Þar bjó Matthías ásamt fjölskyldu sinni á ann- an áratug. Hann stytti nafh hússins í Höfða. Matthías seldi svo húsið og keypti það þá breska ríkið. Þar bjó svo aðal- ræðismaður Breta og síðar sendiherra. 1953 var húsið enn selt. Þá keypti það Ingólfur Espólin framkvæmdastjóri sem var með mikil umsvif í hraðfrysti- iðnaðinum. 1960 seldi Ingólfur húsið og var það Peningamajkaður VEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbundnar 8-9 Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ab.Lb.Vb 6 mán. uppsógn 9.5-13,5 Vb 12 mán. uppsögn 11-14 Ab Sparnaður - Lánsréttur Sparað i 3-5 mán. 8-13 Ab Sp. íBmán. ogm. 9-13 Ab Avisanareikningar 3-7 Ab Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1 Allir 6 mán. uppsögn 2.5-3.5 Lb Innlán með sérkjörum 8-16 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 6-7 Ab Sterlingspund 8,75-10.5 Ab.Vb Vestur-þýsk mörk 3.5-4 . Ab Danskar krónur 7-9 Ib Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 15.25 Allir Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kgeog 19,5 Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 15.25 Allir Utlán verðtryggð Skuldabréf Að 2.5 árum 4 Allir Til lengri tima 5 Allir Utlán til framleiðslu isl. krónur 15 SDR 7.75 Bandaríkjadalur 7.5 Sterlingspund 11.25 Vestur-þýsk mörk 6 Spariskirteini 3ja ára 7 4ra ára 8.5 6ára 9 Með vaxtmiðum(4 ár) 8.16 Gengistryggð(5 ár) 8.5 Almenn verðbréf 12-16 Húsnæðislán 3.5 Lifeyrí ssjóöslán 5 Dráttarvextir 27 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala 1486 stig Byggingavísitala 274.53 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% 1. júli HLUTABRÉF Söluverð að lokinni iöfnun Eimskip m.v. 100 nafnverðs: 200 kr. Flugleiðir 140 kr. Iðnaðarbankinn 98 kr. Verslunarbankinn 97 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá flestum bönkum og stærri sparisjóðum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðar- bankinn, Ib = Iðnaðarbankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Sam vinnubankinn, Úb = Ú tvegsbankinn, Vb = V erslunar- bankinn, Sp=Sparisjóðimir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV ó fimmtudög- um. -lítið Reykjavfkurborg sem keypti það. Hús- ið var fyrst og fremst notað af skipu- lagi borgarinnar og þar var lengi vel skrifstofa aðalskipulagsins. Húsinu eitt úr sógu þessa var lítið haldið við á þessum árum og stóð jafiivel til að rífa það þegar aðal- skipulagið flutti úr því. Hætt var þó við þær ráðagerðir og var húsið gert húss upp og notað til að taka á móti gestum borgarinnar. 1967 hófúst þær mótttökur og um næstu helgi má búast við að Höfðh verði orðinn heimsfrægur ef svo fer sem horfir að leiðtogar stórveldanna muni setjast þar á rökstóla. -KÞ Þetta er úr setustofu hússins á neöri hæð. í þessu sófasetti munu þeir væntaniega ræöa málin, Reagan og Gorbatsjov. Líti þeir leiötogamir upp úr samræðunum mun þessi flygill blasa við þeim en hann er í hinu homi setustofunnar. Þessi mynd er tekin í anddyri hússins. Höfði er óneitanlega glæsilegt hús. Ur borðstofu Höfða. DV-myndir Brynjar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.