Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1987, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1987.
Erlendar bækur
VIVIEN FOST
^lfliádcm
mw hmk pASTAtio mMHT n > wokm.
INltMAW.AHO 5 URPmt
Vísdómsorð
PEARLS OF WISDOM.
Samantekt: Vivien Foster.
Penguin Books, 1987.
Til eru margar bækur máls-
hátta og tilvitnana í vísdómsorð
spakra manna. Hér er ein til við-
bótar.
í þessari bók, sem er nær fjögur
hundruð blaðsíður að stærð, er
spakmælum raðað eftir lykilorð-
um, allt frá „ability" á fyrstu
blaðsíðu til „wrong“ á þeirri síð-
ustu. Tilvitnanirnar eru yfirleitt
mjög stuttar, ein til tvær línur,
og í meirihluta tilvika er höfunda
getið.
Umsjónarmaður þessa rits hef-
ur að sjálfsögðu mikið leitað í
kistu frægra rithöfunda, sagn-
fræcinga, heimspekinga og
stjórnmálamanna liðinna ára og
alda, eins og venja er í slíkum
bókum. En einnig er allnokkuð
um vísdómsorð úr sjónvarpi, út-
varpi, kvikmyndum eða einfald-
lega frá vinum og kunningum
Vivien Foster sem hefur tekið
bókina saman.
Hér er vissulega misjafnt
kornið, eins og við er að búast í
svo ítarlegu spakmælasafni. En
innan um má finna margt sann-
leikskorniö í stuttu, hnitmiðuðu
máli: meitlaðar setningar sem
hitta enn í mark.
Lólrtu-
morðin
THE LOLITA MAN.
Höfundur: Blll James.
Penguin Books, 1987.
Colin Harpur lögregluforingi er
söguhetjan í þessari raunsæis-
legu bresku sakamálasögu. Hann
berst í raun og veru á tvennum
vígstöðvum: annars vegar við að
afhjúpa illvígan morðingja, hins
vegar við yfirmenn í lögreglunni
sem sumir virðast telja það skipta
mestu máli hver upplýsir glæp-
inn.
Sá morðingi, sem Harpur á hér
í höggi við, velur fómarlömb sín
úr hópi unglingstelpna. Hvert lík-
ið finnst af öðru án þess að
lögreglunni takist að hafa hendur
í hári morðingjans. En svo fer að
eitt fórnarlambanna sleppur lif-
andi og þá fara hjólin að snúast.
Þessi saga er afar læsileg og
spennandi. Lýsingamar á met-
ingi og innbyrðis baráttu ólíkra
lögreglusveita era sannfærandi.
Bill James, sem er höfundar-
nafn, hefur þegar skrifað þrjár
sögur um Colin Harpur og er ekki
hægt að segja annað en að hann
venjist vel.
Átök við ógnvald sem
býr í iðrum jarðar
IT.
Höfundur: Stephen King.
New American Library, 1987.
Nýjasta pappírskilja bandaríska
hrollvekjuhöfundarins Stephen King
hefur að undanfornu verið í efstu
sætum metsölulista í Bandaríkjun-
um og Bretlandi, eins og fyrri bækur
hans áður. Samkvæmt því virðast
margir aldrei fá nóg af draugasögum
hans.
Þessi nýja saga er ekki aðeins
óhugnanleg að innihaldi, eins og
vænta má af hrollvekju, heldur einn-
ig að lengd.' Nær ellefu hundruö
blaösíöur. Stundum getur skáldsaga
auðvitað verið svo margbrotin og
mögnuð að ekkert minna dugi en
biblíulengd. Það á ekki við um þessa
sögu. Hún myndi batna til muna við
að styttast um meira en helming.
King er fundvís á óhugnanlega
hluti í hversdagslífinu, og hefur oft
náð sterkum áhrifum með frásögn
af hrollvekjandi atburðum í hvers-
dagslegu umhverfi. Hér er leitað á
önnur mið. Sagan langa snýst sem
sé um baráttu nokkurra sögupersóna
við ill öfl sem hafa búið um sig í iðr-
um jarðar en leita upp á yfirborðið
með vissu árabili til þess aðallega að
éta börn.
Ógnvaldur þessi hefur valið sér
borg nokkra í Maine sem veiðistað,
og þar virðist ekkert getað stöðvað
óhugnaðinn þar til sjö táningar taka
sig saman og leggja til atlögu við
skrímslið og virðast vinna á því
nokkurn sigur. En áratugum síðar
fara börn í þessari borg að hverfa á
ný með sama hætti og áður, og þá
koma sjömenningarnir - sem í milli-
tíðinni hafa flust til ólíkra staða í
Bandaríkjunum - heim aftur til þess
að kveða ógnvaldinn í kútinn á ný.
Síðari hluti bókarinnar, sem lýsir
átökunum við öflin illu hið síðara
sinni, er hressilega skrifaður og oft
harla spennandi. En mikil ósköp er
leiðin þangað löng.
Gráu sellurnar
virkjaðar
THE ALPHA PLAN.
Hölundur: David Lewis.
Melhuen, 1986.
Víða erlendis, alveg sérstaklega í
Bandaríkjunum, er vænlegt til ár-
angurs að semja bækur sem eiga að
kenna fólki að nýta hæfileika sína
betur, virkja heilasellurnar, sem era
gjarnar vannýttar, á árangursríkari
og nýjan hátt og yfirleitt að ná tökum
á tilverunni jafnt á heimilinu sem í
vinnunni. Ýmiss konar fræðingar
semja um slíkt bækur sem seljast svo
eins og heitar lummur. Hvort neyt-
endur slíkra bóka fara að nota
heilann meira og betur eftir lestur-
inn er svo umdeilanlegt.
Hér er það breskur sálfræðingur
sem stýrir penna og útlistar fyrir les-
endum Alpha-kerfið sem á að hressa
fólk til sálar og líkama, gera því
kleift að læra hraðar, taka ákvarðan-
ir á einfaldari og öruggari hátt, leysa
vandamál og almennt séð að takast
á við áreitni hversdagsins á allt ann-
an og auðveldari hátt en áður.
Bókinni er skipt í þrjá meginhluta.
í þeim fyrsta er hugmyndin á bak
við Alpha-kerfið skýrð og hvernig
það á að koma og hefur að sögn höf-
undar komið að gagni. Annar hlut-
inn hefur að geyma þjálfunaráætlun
í fimm þrepum. Síðasti hluti bókar-
innar íjallar síðan um það hvernig
hægt sé að nýta þá kunnáttu, sem
fengist hefur við þjálfunina, viö ýmis
verkefni í daglegu lífi og starfi.
Ekki skal ég um það dæma hvort
þetta kerfi skilar þeim árangri sem
lofað er. Hinu er ekki að leyna að
óneitanlega er hér margt skynsam-
lega sagt.
Metsölubækur
Bretland
1. Stephen King:
IT.
2. Jack Higgins:
NIGHT OF THE FOX.
3. Jeffrey Archer:
A MATTER OF HONOUR.
4. Catherine Cookson:
BILL BAILEY.
5. Jackie Collins:
HOLLYWOOD HUSBANDS.
6. Lena Kennedy:
DOWN OUR STREET.
7. Patrick Suskind:
PERFUME.
8. Paul Theroux:
O-ZONE.
9. Howard Jacobson:
REDBACK.
10. Danielle Steel:
WANDERLUST.
Rit almenns eðlis:
1. Keith Floyd:
FLOYD ON FRANCE.
2. Dirk Bogarde:
BACKCLOTH.
3. Mike Wilks:
THE ULTIMATE ALPHA
BET.
4. Lionel Blue:
BOLTS FROM THE BLUE.
5. Gerald Durrell:
MY FAMILY AND OTHER
ANIMALS.
(Byggt á The Sunday Times.)
Bandaríkin:
1. P.D. James:
A TASTE FOR DEATH.
2. Stephen King:
IT.
3. Belva Plain:
THE GOLDEN CUP.
4. Isaac Asimow:
FOUNDATION AND EARTH.
5. Stephen Coonts:
FLIGHT OF THE INTRUDER.
6. Tom Clancy:
RED STORM RISING.
7. Sally Quinn:
REGRETS ONLY.
8. Piers Anthony:
VALE OF THE VOLE.
9. Jacqueline Briskin:
DREAMS ARE NOT ENOUGH.
10. Karleen Koen:
THROUGH A GLASS
DARKLY.
Rit almenns eðlis:
1. Joseph Wambaugh:
ECGHOES IN THE
DARKNESS.
2. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS
TRAVELED.
3. Beryl Markham:
WEST WITH THE NIGHT.
4. Judith Viorst:
NECESSARY LOSSES.
5. M. Mathabane:
KAFFIR BOY.
(Byggt á New York Times Book Re-
view.)
Danmörk:
1. John Mortimer:
PARADIS I MORGEN.
2. Isabel Allende:
ÁNDERNES HUS.
3. Jean M. Auel:
HULEBJ0RNENS KLAN.
4. Jean M. Auel:
HESTENES DAL.
5. Karen Blixen:
BABETTES GÆSTEBUD.
6. Elsa Morante:
HISTORIEN.
7. Inge Eriksen:
VICTORIA OG VERDENS-
REVOLUTIONEN.
8. Isabel Allende:
KÆRLIGHED OG M0RKE.
9. Umberto Eco:
ROSENS NAVN.
10. Gabriel G. Marquez:
HISTORIEN OM ET
BEBUDET MORD.
(Byggt á Politiken Sondag)
Umsjón Elías Snæland Jónsson
Einkaspæjari
í Detroit
SUGARTOWN.
Höfundur:
Penguin Books, 1987.
Amos Walker er einkaspæjari í
Detroit í Bandaríkjunum. Sér-
grein hans er að finna fólk sem
hefur týnst eða látið sig hverfa
af einhverjum ástæðum.
Amos virðist það fremur auð-
fenginn peningur þegar gömul
kona býður honum þúsund dali
fyrir aö hafa upp á sonarsyni sem
hún hefur engar spurnir haft af
í nítján ár - eða allt síðan fjöl-
skylda drengsins, foreldrar og
systir, lét lífið af skotsárum. Hún
vill endilega fá að vita hvað varð
um drenginn og Amos tekur að
sér að komast að því.
Samtímis er honum boðið ann-
að verkefni: að gæta útlægs
rússnesks rithöfundar sem er að
semja umdeilda skáldsögu og hef-
ur af þeim sökum orðið fyrir
aðkasti.
Brátt leiðir rannsókn þessara
tveggja mála Amos í miklar hætt-
ur en um síðir tekst honum að
komast til botns í þeim.
Amos Walker er einn þessara
harðsoðnu eir.kaspæjara sem
margir amerískir rithöfundar
hafa skrifað um á liðnum áratug-
um, oft með góðum árangri. Og
Amos er alls ekki þeirra lakastur.
JAMES S.ACKERMAN
'lí ! ILL/'. I « rlJ
NK W i:i)MiON
Byggingaiiist
Michelangelos
THE ARCHITECTURE OF MICHEL-
ANGELO.
Höfundur: James S. Ackerman.
Pcnguin Books, 1986.
Michelangelo, sem fæddist árið
1475, er einn mesti snillingur
myndlistarsögunnar. Hann lærði
höggmyndahst og málaraUst á
yngri árum og vakti fyrst athygli
fyrir afreksverk sín í þeim list-
greinum.
Á síðari árum ævinnar fékkst
Michelangelo mikið viö bygging-
arUst þótt hann héldi því gjarnan
fram að hann væri enginn arki-
tekt. Og þessi bók fjallar um þá
hlið ævistarfs þessa mikla meist-
ara.
Hér er lýst ítarlega í máU og
myndum helstu byggingum sem
Michelangelo hannaði, svo sem
Medici-kapeUunni, bókasafninu í
San Lorenzo og Basiliku heilags
Péturs. Þá er í síöari hluta bókar-
innar nákvæm skrá yfir verk
Michelangelos með tiltækum
upplýsingum um tilurö þeirra.
Þetta er önnur og endurbætt
útgáfa bókar sem hefur hlotið
mikið lof sérfræðinga.