Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1987, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1987. 15 Málfríður Eiríksdóttir. -„Ég ertrúlaus og fer aldrei í kirkju.“ DV-mynd GVA flokka. Ég syngi þeim lof og prís sem láta mig hafa kort en bölvi hinum. En ég get sagt þér að þetta er helvít- is lygi en að sjálfsögðu er ég mjög þakklát þeim er aðstoða mig við kortasöfnunina. Vantar fleiri póstkort Ég vonast til að koma kortunum í 22.000 en það virðist erfitt að fá ein- stök kort. Ég fæ mikið af eins kortum en þau teljast ekki með í safninu. Gömlu kortin, sem gengu manna á milli á fyrstu áratugum aldarinnar, þykja mér skemmtilegust. En þau eru orðin sjaldséð nú til dags. Þau voru meira í fagurfræðinni þá heldur en kortin eru nú. Nýlega fékk ég kort frá syni mínum í Danmörku. Það er verst að nú er hausinn farinn að bresta. Ég man ekki orðið hvort ég á fyrir afbrigði sumra kortanna sem ég fæ send. Það getur tekið marga daga að finna örfá eintök. Sum kortin eru komin í möppur. En það er alveg óþolandi kostnaður að koma öllu safninu fyrir í möppum. Plasthólfin eru nánast bara fáanleg fyrir tvær stæröir korta en kortin eru jú misjöfn að stærð. Að sjálf- sögðu þyrfti ég að eiga miklu meira af möppum en þær eru bara svo hel- víti dýrar. Ég má ekki við að eyða svo miklu í óþarfa. Öll söfnun er jú óþarfi.“ - Hefur þú aldrei komið út fyrir landsteinana? „Nei, og aidrei langað til þess. Ég segist vera svo mikill ættjarðarvinur að ég geti ekki fariö til útlanda og orðið ættjörðinni til skammar. Ég fer stundum að heiman að heimsækja kunningja en stoppa aldrei lengi. Ég fer aldrei á mannamót og aldrei i kirkju því ég er trúlaus og hyski eins og ég hefur ekkert að gera í kirkju. Ég fylgi sjaldan kunningjunum til grafar en hef þó verið þvinguð til aö fara í kirkju. Dauðir eru dauðir og hvernig ættu þeir að vita hvort ég fylgi þeim til grafar? Ég trúi ekki á líf eftir þetta líf.“ Ferallt gangandi - Nú ert þú búlaus og býrð um 16 kílómetra frá Egilsstöðum. Hvernig nærö þú í þínar nauðsynjar? „Ég geng venjulega en þó þarf ég ekki oft að ganga alla leið því það keyrir alltaf einhver fram á mig. Ég hef alltaf verið gefin fyrir göngur. Örorkan kemur ekki að sök í þeim efnum. Að vísu er ég ekki eins fljót að aflýjast ef ég geng mig þreytta eins og áður. En ég geri innkaupin mín sjálf því mér leiðist að rella í öðrum og bíða eftir þeirra hentugleikum. Það þoli ég ekki. Ekki þar fyrir að það sé tek- iö illa undir þá sjaldan ég bið um farargreiða." - Leiðist þér aldrei? „Nei, mér leiðist ekki oft eða ekki að staöaldri. Áður var ég mikið fyrir bækur en ég hef lesiö minna á seinni árum. Þetta bókarusl, sem ég hef hér heima, er marglesið. Ég get þó fengið lánaðar hækur en þá er að bera þær heim og skila. Nei, póstkortin eru óþrfótandi tómstundagaman. Svo hef ég tvo ketti. Mér þykir gaman að dýrum. Ég treysti mér þó ekki til þess að hafa hund. Ég veit ekki hvað fólk segði ef það sæi mig með hund. Trúlega mundu menn annaðhvort skjóta mig eða loka hundinn inni eða skjóta hundinn og loka mig inni. (Já, láttu það hara koma.)“ Langaði að kjósa þrjá flokka - Fylgist þú með stjórnmálum? „Ég er pólitískt viðrini - sit alltaf heima á kjördag. Áður kaus ég til skiptis Sósíalista- og Sjálfstæðis- flokkinn. Það hðu aldrei nema nokkrar vikur frá því að flokkurinn, sem ég kaus, gerði eitthvað sem ég var hundóánægð með. Loksins komst ég að þeirri vísindalegu niður- stöðu að kjósa ekki. Ég kaus Vigdísi á sínum tíma og þótti vel við hæfi að kjósa konu. í síðustu kosningum langaði mig að kjósa þrjá flokka. Ég var hlynnt málefnum Kvennalistans en ég vissi ekkert um konuna sem var efst á lista hér eða hverra manna hún er. Mér leist vel á málefni Þjóðarflokks- ins en var ekki sátt við hstann. Svo þóttu mér alþýöubandalagsmenn ekki harðir í stjórnarandstöðu og of linir í verkalýðsbaráttunni. Ég sat því bara heima. Það er svo mikið fals í flokkapóli- tíkinni sem meira að segja ég sé í gegnum en það er sennilega af þvi að mig skorti trúna.“ Þar með var spjallinu við Málfríði lokið. Hún þáði bilfar með blaða- manni að næsta bæ, Rangá, en þangað sækir hún mjólkina í gamla málningardós með loki. -GK Það er sko leikfanga- úrval Berjuáa INNKAUPASTJÓRAR, PANTIÐ TÍMANLEGA FYRIR JÓLIN INGVAR HELGASON HF. Vonarland v/Sogaveg, sími 37710
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.