Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1987, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1987.
Sérstæd sakamál
Fjarvistarsönnunin átti
að taka fram öllu sem
þekktist í málum af
þessu tagi enda var hún
ákaflega sérstæð. En
það fór ýmislegt á ann-
an veg en Mitch
Robinson og félagi hans
höfðu gert ráð fyrir.
Vafasamur tengdasonur
Frank Avery var kominn á miðjan
aldur og honum og konu hans, Marc-
ia, leist alls ekki á tengdasoninn sem
þau höfðu eignast. í raun höfðu þau
hreinustu andstyggð á honum. Hann
hét Mitch Robinson, var tuttugu og
fimm ára og mjög ruddalegur í fram-
komu. Hann hafði lært bardagalist
sem hann var talinn leikinn i. Reynd-
ar svo leikinn aö hann var ráðinn
dyravöröur í diskóteki í Worchester
á Englandi þar sem þeir atburðir
gerðust sem hér segir frá. Frank
Avery og kona hans þóttust þó sann-
færð um að dyravarðarstarfið væri
ekki allur starfi Mitch og notaði hann
þaö til að fela annan starfa sem væri
ólöglegur.
Dóttirin á öðru máli
Dóttir Averyhjónanna, Júlía, sem
var nítján ára, var ekki á sama máli
um Mitch og foreldrar hennar. Hún
var mjög hrifin af honum og hafði
nýlega fætt dóttur. Mitch hafði lítt
sinnt konu sinni á meðgöngutíman-
um og oft sést í félagsskap annarra
kvenna. Er Júlía hafði haft uppi
mótmæli vegna þessa lét hrottaskap-
urinn ekki standa á sér og fékk Júlía
að kenna á því. Það var þó eins og
hún væri slegin blindu þegar innri
maður Mitch Robinson var til um-
ræðu. Þó komst máhð á það stig að
Júlía, sem haföi ásamt manni sínum
fengið íbúð til umráða, kom grátandi
heim til foreldra sinna meö Mitch
Robinson á hælunum.
Þá hafði reiði hans verið svo mikil
að hann kastaði bensínsprengju und-
ir bíl Franks Avery.
Óttaðist öryggi foreldra sinna
Það var fyrst er hér var komið að
Júlía fór að óttast að maður hennar
kynni að vera annar og hættulegri
maður en hún hafði talið fram að
Mitch Robinson.
þessu. Eftir skemmdarverkið hafði
hún látið undan hótunum Mitch og
flust á ný með honum í íbúðina því
hún var nú farin að óttast um hf for-
eldra sinna. Það var því greinilegt
að Averyhjónin höfðu haft fyllilega
rétt fyrir sér er þau héldu því fram
•rQn
að tengdasonur þeirra væri í hæsta
máta vafasamur maður.
Óvænt símhringing
Svo gerðist það skyndilega í fyrra-
vetur, nánar tiltekiö 1. febrúar 1986,
að Mitch Robinson hringdi heim til
tengdaforeldra sinna.
Sagði hann tengdaföður sínum,
Frank Avery, að hann hefði verið
handtekinn fyrir þátttöku í slagsmál-
um á götu úti. Taldi hann litlar líkur
til þess að hann yrði látinn laus
morguninn eftir og bað Frank um
að fara heim til Júlíu og róa hana.
Það væri ástæðulaust aö láta hana
bíða alla nóttina.
Ohugnanleg sýn
Frank Avery sagðist strax skyldu
fara heim til Júlíu sem bjó í Tunnel
Hillhverfinu. Var hann á vissan hátt
feginn yfir því að Mitch skyldi hafa
verið stungið inn því það gæti táknað
að Júlía fengi stundarfrið.
Frank Avery sá strax er hann kom
heim til dóttur sinnar að hún haföi
fengið friö en á annan hátt en hann
hafði haldið. Hann var vart fyrr kom-
inn inn um dyrnar en hann sá Júlíu
í stiganum upp á efri hæðina. Var
hún í sundurtættum náttkjól og hafði
verið kyrkt.
Avery brá að vísu óskaplega en
hafði þó það mikla sjálfsstjórn að
hann flýtti sér að athuga hvað hefði
orðið um dótturdóttur sína, Sófíu, og
fann hana heila á húfi á efri hæð-
inni. Svaf hún þar fastasvefni. Hann
megnaði að fara að símanum og
hringja á lögregluna en þegar hún
kom var hann svo illa á sig kominn
að hann fékk taugaáfall og varð að
flytja hann í sjúkrahús.
Mitch grunaður
Frumrannsókn leiddi í ljós að Júlía
hafði verið kyrkt með leöurreim, ef
til vill mjórri mittisól. Greinilegt var
að hún var mynstruð því greina
mátti mynstrið á hálsi fórnardýrsins.
Grunur féll þegar í stað á Mitch
Robinson. Lögreglan varð hins vegar
að viðurkenna að ekki kæmi til
greina aö hann væri morðinginn því
nær strax kom í ljós að hann hafði
setið í fangaklefa þegar morðið var
framið. Hafði hann verið handtekinn
fyrir slagsmál daginn áður og setið í
klefa á lögreglustöðinni síðan.
Hann háfði með öðrum orðum full-
komna íjarvistarsönnun. Það leiö
hins vegar ekki á löngu þar til lög-
reglan komst á snoðir um ýmislegt
sem virtist ekki styðja þá hugmynd
að þjófur hefði brotist inn til Júlíu
og hefði hann, auk þess að stela,
misþyrmt henni kynferðislega en
síðan myrt hana.
Illa skipulagt leigumorð
í ljós kom nefnilega að engu hafði
verið stolið. Þá leiddi skoðun lækna
í ljós að Júlíu hafði ekki verið mis-
þyrmt kynferislega. Einnig varð ljóst
að náttkjóll hennar hafði verið rifinn
í sundur eftir að hún var myrt.
Lögreglan fann brotna rúðu í bak-
hurð hússins. Var gengiö út frá því
að morðinginn hefði getaö opnað
dyrnar með því að teygja sig inn fyr-
ir eftir að hafa brotið rúðuna. Svo
kom í ljós að lykill stóð í lásnum á
bakhurðinni.
Hverjir áttu lykla?
Þetta var spurning sem lögreglan
vildi nú sem fyrst fá svar við. í ljós
kom að aðeins þau Júlía og Mitch
Robinson höfðu átt lykla að íbúð-
inni. Og lykill Júlíu fannst i tösku
hennar. Lykil Robinson hafði lög-
•nyl ns m/r.l Tism nniö sfe tasí rtoiiM