Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
Fréttir
„Bíðum eftir niður-
stöðum Hæstarettar'
„Við munum bíða eftir niðurstöð-
um Hæstaréttar áður en við ræðum
þetta mál í fjölmiðlum," sagði Bogi
Nilsson rannsóknarlögreglustjóri
þegar hann var inntur álits á kröfu
Ragnars Aðalsteinssonar hæstarétt-
arlögmanns um dómsúrskurð vegna
opinberrar rannsóknar RLR á hend-
ur Svani Elí Elíssyni.
Eins og fram hefur komiö áður
kærði Ragnar til Sakadóms Reykja-
víkur þá skoðun RLR að hann mætti
, ekki ræða við skjólstæðing sinn vitn-
eskju sem hann hafði frá Sakadómi
Reykjavíkur og skiptir rannsókn
málsins máli. Sakadómur úrskurð-
aði á þá leið aö Ragnari væri óheimilt
að ræða þessi atriði við skjólstæðing-
inn og hefur hann nú áfrýjað
úrskurðinum til Hæstaréttar.
Bogi Nilsson tók fram að hann teldi
ekki að RLR ætti í útistöðum við
nokkum mann vegna þessa máls.
Hann myndi bíða eftir niðurstöðum
Hæstaréttar og taka niðurstöðunni
hver sem hún verður.
-sme
25
Polaroid - Myndavél og vasadiskó
SAMAN í PAKKA
á aðeins kr. 3.350,-
Myndavélin er með
innbyggt eilífðarflass.
Rafhlaðan er í
filmupakkanum.
Sem sagt, filman í,og
myndavélin ér tilbúin
Vasadiskóið
er eitt hið
minnsta
á markaðinum.
Cr02 metal.
Á skátamöt í Ástralíu
í morgun hélt 113 maima hópur íslenskra skáta áleiðis til Ástraliu þar sem
hann mun taka þátt í alþjóðlegu skátamóti. Yfir hátíðarnar mun hópurinn
dvelja í Melboume en skátamótið verður haldið í Sydney og hefst um áramót-
in og stendur í 10 daga. Skátarnir koma svo heim til íslands 20. janúar.
DV-mynd BG
Árekstrar í Kópavogi
Sex árekstrar urðu í Kópavogi í
fyrradag. Flestir vom þeir minni
háttar. Sá harðasti var á mótum
Nýbýlavegar og Dalbrekku. Ekki
urðu slys á fólki þrátt fyrir harðan
árekstm1. Báðir báamir skemmdust
mjög mikið og varö að flytja annan
þeirra á brott með krana.
Á gatnamótum Nýbýlavegar og
Dalbrekku hafa orðið margir
árekstrar á þessu ári og em þessi
gatnamót einna erfiðust í Kópavogi
hvaö tíðni árekstra varðar.
-sme
gamlársdag og nýársdag.
Óskum öllum vidskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsœls komandi
árs.
Þökkum viðskiptin á liðnum árum.
KENTUCKY FRIED CHICKEN,
Hjallahrauni 15, Sími 50828.
wm
■
■