Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Síða 52
76
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
Sjúkrahús
HEIMSÓKNARTÍMISJÚKRA-
HUSA:
. Borgarspítalinn, sími 696600.
Aðfangadagur: 13-22.
Jóladagur: 14-20.
Annar í jólum: 14-20.
Gamlársdagur: 13-22.
Nýársdagur. 14-20.
Grensásdeild, sími 685177.
Aðfangadagur. 13-22.
Jóladagur: 14-20.
Annar í jólum: 14-20.
Gamlársdagur: 13-22.
Nýársdagur: 14-20.
Hafnarbúðir, sími 14182,
29460.
Fijáls heimsóknartími alla dagana.
Heilsuverndarstöðin, sími
22400
Aðfangadagur: 13-22.
Jóladagur: 14-20.
Annar í jólum: 14-20.
Gamlársdagur: 13-22.
Nýársdagur: 14-20.
Kleppsspítalinn, sími 38160.
Heimsóknartími alla dagana kl. 15-21 o
eftir samkomulagi á öðrum tímum.
Kópavogshæli, sími 41500.
Heimsóknartími eftir hádegi alla daga o
eftir umtali.
Landspítalinn, sími 29000.
Aðfangadagur: 18 21.
* Jóladagur: 15-16 og 19-20.
Annar í jólum: 15-16 og 19-20.
Gamlársdagur: 18-21.
Nýársdagur: 15-16 og 19-21.
I gærkvöldi
Ásta Erlingsdóttir grasalæknir:
Dagskráin óvenjuróleg
Gamanþættinum um Staupa-
stein missti ég af og hef engan
sérstakan áhuga á þeim þáttum.
Ég horföi aftur á móti á fréttir Rík-
issjónvarpsins eins og-ég geri alltaf.
Ég verð að segja það að mér finnst
yfirleitt gert allt of mikið að því að
sýna frá slysum og hörmungum
eða stríðsátökum. Að mínu áliti
getur fólk alveg verið án þess að
sjá þessar hörmungar. Fréttaþátt-
inn á Stöð 2 sé ég sjaldan, ekki af
þvi að hann sé eitthvað lélegri held-
ur af þvi að ég læt hinn fréttatím-
ann ganga fyrir af gömlum vana.
Auk þess er sýningartími hans
hagstæðari.
Næst á eftir fréttum horfði ég á
íþróttaþáttinn. Birgir ísleifur
Gunnarsson flutti ræðu í tilefni 30
ára afmælis HSÍ og síðan var sýnd-
ur seinni hálfleikur í leiknum við
Suður-Kóreu. Ég hef yfirleitt gam-
an af íþróttaþáttunum, sérstaklega
ef það er leikfimi í þeim.
Arfur Guldenbergs er góður
framhaldsþáttur og lét ég hann
ekki fram hjá mér fara í gær-
kvöldi. Annars bindur enginn
framhaldsþáttur mig yfir sjón-
varpinu og ég á auðvelt með að
sleppa þeim. Besta efni, sem maður
sér yfirleitt í sjónvarpinu, er
fræðsluþættir. Það er aldrei of mik-
ið af þeim.
Almennt séð er of mikið af of-
beldi í sjónvarpinu, bæði í fréttum
og fréttaþáttum. Bíómyndir sjón-
varpsins eru einnig oft ansi svaka-
legar. Þó verð ég að segja aö
dagskrá gærdagsins var óvenjuró-
leg og lítið um ofbeldissýningar.
Fréttir
Ríkisútvarpið sjónvarp:
Draga verður saman
seglin á næsta ári
- fækkun á staifsfólki og stytting dagskrár
Barnaspítali Hringsins, sími
29000.
Aðfangadagur: 18-21.
Jóladagur: 15-16 og 19-20.
Annar í jólum: 15-16 og 19-20.
Gamlársdagur: 18-21.
Fæðingardeild Landspítalans,
sími 29000.
Aðfangadagur: 18-21.
Jóladagur: 15-16 og 19-20.
Annar í jólum: 15-16 og 19-20.
Gamlársdagur: 18-21.
Nýársdagur: 15-16 og 19-21.
„Við vitum ekki enn hvernig fjár-
lögin muni endanlega verða en eins
og þau líta út núna sjáum við ekki
fram á annað en að við verðum að
draga saman seglin,“ sagði Pétur
Guðfmnsson, framkvæmdastjóri rík-
issjónvarpsins, í samtali við DV í
morgun.
Pétur sagði að ef svo héldi fram sem
horfði yrði ekki komist hjá því að
fækka starfsfólki og yrði það þá
sennilega gert með því að ráða ekki
nýtt fólk í stöður sem losna, en all-
mikil hreyfing er á starfsfólki hjá
sjónvarpinu.
Þýðendur sjónvarpsins vinna eftir
ákveðinni gjaldskrá. Boðuð hefur
verið lækkun á henni og sagöi Bogi
Amar Finnbogason, formaður sam-
taka þýðenda, að hann gæti varla
ímyndað sér að fólk ynni hjá sjón-
varpinu eftir allt að 30% lækkun á
gjaldskrá. Lækkunin var boðuð 1.
janúar en henni hefur verið frestað
til 1. febrúar.
Pétur Guðfinnsson sagði að verið
væri að gera róttækar breytingar á
gjaldskránni og vart hægt tala um
lækkun. Ýmsar tækninýjungar
breyttu mjög störfum þýðenda.
Nefndi hann sem dæmi að ný tækni
gerði það að verkum að þýðendur
þyrftu ekki að sitja við á kvöldin
þegar efni væri sent út eins og áður
var.
Elfa-Björk Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri útvarpsins, sagði að
þar væri verið að vinna áætlanir sem
gerðu ráö fyrir ýmsum sparnaði og
hagræðingu í rekstrinum. Nefndi
hún sem dæmi að í framtíðinni væri
gert ráð fyrir að fastráðiö starfsfólk
útvarpsins sæi um kvölddagskrár-
gerö rásar 2 í stað lausafólks eins og
veriö hefur. Hún boðaði ekki stytt-
ingu dagskrár útvarpsins.
-S.dór
Landakotsspítali, sími 19600.
Aðfangadagur: 14-16 og 18-20.
Jóladagur: 14-16 og 18-20.
Annar í jólum: 14-16 og 18-20.
Gamlársdagur: 14-16 og 18-20.
Nýársdagur: 14-16 og 18-20.
*■. Skálatún, sími 66249.
Frjáls heimsóknartími.
Vífilsstaðir, sími 42800.
Frjáls heimsóknartími.
Reykjalundur, sími 66200.
Fijáís heimsóknartími.
Fæðingarheimili Reykjavíkur,
sími 22544.
Aðfangadagur: 15.30-16 og 19-21.
Jóladagur: 15.30-16.30 og 20-21.
Annar í jólum: 15.30-16.30 og 20-21.
Gamlársdagur: 15.30-16 og 19-21.
Nýársdagur: 15.30-16.30 og 20-21.
Sjúkrahúsið á Akureyri, sími
96-22100.
Aðfangadagur: 18-21.
Jóladagur: 14-16 og 19-20.
Annar í jólum: 14-16 og 19-20.
Gamlársdagur: 18-21.
Nýársdagur 14-17 og 19-20.
Nýstárleg uppákoma var í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
í gær. Þangað mættu tveir leikarar, Hjálmar Hjálmarsson og
Árni Pétur Guðjónsson, og settu á svið nokkur atriði úr leikritum
Samuels Becket. Var þetta gert til að vekja athygli á nýútkom-
inni bók Beckets, Sögur, leikrit, Ijóð, í þýðingu Árna Ibsen.
Virtist uppákoman mælast vel fyrir hjá viðskiptavinum verslunar-
innar enda ekki á hverjum degi sem leikhús er fært inn í
bókabúðir. DV-mynd GVA
Hrapaði
JNjj
nmm-
tán
ItUltKI
mtrua
af þaki
Maður féll af þaki á íbúðar-
húsi í Hlíðahverfi 1 Reykjavik í
fyrrinótt. Fallið mun vera um
fimmtán metrar. Maöurinn
lenti á grasi. Hann slasaðist
verulega.
Maðurinn féll af þakinu er
hann var að reyna aö komast á
svalir á íbúð sinni sem er á
íjóröu hæö. Hann haföi gleymt
lyklinum heima og hugðist fara
út um þakglugga og þaöan niö-
ur á svalirnar. Ekki tókst betur
til en svo aö maðurinn lirapaði.
Maðurinn mun hafa farið inn
í íbúð sína áður á sama hátt og
hann reyndi er hann féll. Ekki
fékst uppgefið hve mikið mað-
urinn slasaöist.
-sme
Veistufyrr
en í fimmtu tilraun?
Svör við spumingaleik
Giljagaur sagði þetta.
Betlehem.
Kjötkrókur.
Bing Crosby syngur White Christmas.
Megringur.
Þorsteinn Pálsson.
Jóhannes úr Kötlum.
Búðir opnar til ellefu í kvöld
Verslanir verða opnar til klukkan
23.00 í kvöld, Þorláksmessukvöld. Á
morgun, aðfangadag, verða verslanir
opnar til klukkan tólf á hádegi.
Verslanir ÁTVR verða lokaðar á
- Ríkið lokað á morgun
morgun. Laugavegurinn verður lok-
aður fyrir allri bílaumferð frá
klukkan eitt í dag til ellefu í kvöld.
Þvergötur verða samt opnar og má
því aka þvert yfir Laugaveginn.
Verslanir verða svo opnaðar klukk-
an tíu aö morgni fyrsta vinnudag
eftir jólin og er það að sjálfsögðu
mánudagurinn í flestum tilvikum.
-JGH