Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
Fréttir
Þorsteinn Þorsteinsson:
Sinnuleysið er
algert í
Fríkirkjunni
„Viö höfum gert ótal tilraunir
til aö ná eyrum stjómarmeðlima
undanfama sex mánuði án nokk-
urs árangurs. Sinnuleysiö er yfir-
gengilegt og manni finnst eins og
að stjórn Frikirkjunnar, eöa leif-
amar af henni, hafi hafnað allri
kristni. Dregiö er aö halda aðal-
fund og visaö til fyrri aðalfunda
sem hafa dregist fram á sumar.
Nú er mikil þörf á aðalfundi til
að koma hlutunum á hreint í
söfiiuöinum,“ sagöi Þorsteinn
Þorsteinsson, formaður Safnaö-
arfélags Frikirkjunnar, við DV.
Þorsteinn var, ásamt nokkrum
stuðningsmönnum séra Gunnars
Bjömssonar, mættur í messu í
Fríkirkjunni í gær. Eftir messuna
stóö Þorsteinn upp og las yfirlýs-
ingu frá safnaöarfélaginu. Að
sögn Þorsteins urðu engin við-
brögð viö tölu hans þar sem
áskorun um aö safnaðar- og aðal-
fundur skuli haldnir var ítrekuö.
„Það er kominn tími tii að eitt-
hvað gerist. Við höfum margoft
beðið um safhaðarfund en verið
neitað í hvert skipti. Stjórnin
hundsar að hafa samband við
söfnuðinn í lengstu lög og snýr
út úr safnaðarlögunum eftir þvi
hvernig vindamir blása. Þetta er
eins og þaulskipulegt valdarán."
-hlh
Skattlagning dagblaöa:
Fráleit
hugmynd
- segir Indriði G.
„Það er nú ósköp mikið fár að
fara að leggja 12% skatt á dag-
blöðin sem hafa verið skrifuð á
íslensku frá upphaf. Þessi hug-
mynd er í raun fráleit og sérstak-
lega af þvi að maður finnur svo-
litla lykt af þessu,“ sagði Indriði
G. Þorsteinsson ritstjóri þegar
hann var spurður álits á drögum
að nýjum útvarpslögum sem hef-
ur nú verið skilað til mennta-
málaráðherra.
Indriði sagöist tefja út í hött að
vera úthluta blööunum styrkjum
um leið og þau væru skattlögð
með þessum hætti.
„Það er Ijóst að þessi skattlagn-
ing verður aldrei heimiluð. Það
er ekki um þaö að ræða fyrir
þessa menn aö ætla að koma með
svona tillögur. Þó að mennta-
málaráöherra sé afskaplega hrif-
inn af þessu þá ræður hann engu
um úrsht þessa máls.
Annars er þetta allt saman út
úr kú. Það getur vel verið aö það
fólk sem vinnur á ljósvakafjöl-
miðlunum og telur þá nafla al-
heimsins geti lagt eitthvað til
mála þar. En að ætla aö verðjafna
við dagblöð á þeirri forsendu að
það geti styrkt íslenSkuna er fár-
ánlegt,“ sagöi Indriði. -SMJ
Norðurland:
Snjókoma
og ófærð
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyn;
Snjókoma og skafrenningur var
á Norðurlandi í morgun og mikil
ófærð.
Segja má að flestar leiðir út frá
Akureyri hafi verið ófærar og
ekki útht fyrir það'í morgtm að
mikil breyting yrði þar á í dag.
Þá leit illa út meö flug vegna
veðursins. Flugleiðir áformuöu
fimm ferðir milh Reykjavíkur og
Akureyrar í dag og má segja aö
páskaferðalög heföu hafist fyrir
alvöru í dag ef gefiö hefði til flugs.
Spáð er norðan- og norðaustanátt
á Norðurlandi í dag og á morgun
og útht varðandi ferðalög því
slæmt framundan.
Kj arasamningarnir:
Öllu velt yfir til
ríkisstjórnarinnar
- útflutningsgreinamar vilja fá gengisfellingu
Segja má að flest varðandi kjára-
samningana sé nú í höndum ríks-
stjómarinnar. Atvinnurekendur eru
ekki einhuga varðandi samninga nú,
hvorki iðnrekendur og fiskvinnslan
treysta sér til samninga eins og staða
þeirra er. í viðræðum talsmanna
iiskvinnslunnar og ráðherra um
helgina hefur komið fram krafa fisk-
vinnslumanna um gengisfelhngu
þegar verðjöfnunargreiðslum til
frystingarinnar lýkur í vor. Atvinnu-
rekendur hafa sett fram ýmsar fleiri
kröfur á hendur ríkisstjórninni en
það er krafan um gengisfellingu sem
er mestur þrándur í götu eins og er.
Menn eru enn að tala um skamm-
tímasamninga og hvað varðar verka-
lýðshreyfmguna vill hún fá trygg-
ingu fyrir því að það sem samiö verði
um fari ekki beint út í verðlagið. Eins
benda talsmenn hennar á að boðuð
hafi verið vaxtahækkun í ríkisbönk-
unum og að von sé á enn frekari
hækkun landbúnaðarafurða. Með
þetta yfir höfði sér og án nokkurra
trygginga um að þaö haldi sem samið
verði um eru margir verkalýðsfor-
ingjar tregir til samninga. Þá hefur
verkalýðshreyfmgin sett fram kröfur
um hækkun skattleysismarka og
hækkun barnabóta og fengið mjög
dræm svör frá ríkisstjórninni, sem
segir slíkt kosta 1 til 2 mihjarða
króna.
Eins og máhn standa nú eftir
fundahöld helgarinnar eru samning-
amir á mjög viðkvæmu stigi, eins og
einn samningamanna orðaði það í
samtali við DV.
Þá gerðist það á stjórnarfundi
Dagsbrúnar um helgina aö ákveðið
var að ef ekki yrði gengið að ákveðn-
um skilyrðum félagsins í hugsanleg-
um samningum myndi félagið kippa
fohmanni sínum, Guðmundi J. Guð-
mundssyni, út úr samninganefnd-
inni og ekki taka þátt í samningun-
um. Kröfur Dagsbrúnar eru meðal
annars að trygging fáist fyrir því aö
landbúnaðarafurðir hækki ekki,
vextir hækki ekki og að full trygging
fáist fyrir því að því sem samið verði
um verði ekki velt út í verðlagið.
Fundur stóru samninganefndanna
hófst klukkan 10.30 í morgun og voru
menn almennt ekki bjartsýnir á ár-
angur og sögðu að framhaldið væri
í höndum ríkisstjómarinnar. Ráð-
herrar vom fámálir um stöðuna og
sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra til að mynda að þetta mál yrði
ekki leyst með samtölum í gegnum
fiölmiðla. S.dór
Harður árekstur varö á móts við Alaska i Breiðholti um klukkan 21 á laugar-
dagskvöidið. Ekið var aftan á Daihatsu bifreið og skemmdust báöir bilarnir
talsvert. Ökumaður annars bilsins var fluttur á slysadeild en meiðsl hans
voru ekki talin alvarleg. DV-mynd S.
Gæðavandamál í
íslenska lagmetinu
Leiöari Jyllands Posten um Greenpeace:
Gaf Kohmeini tóninn?
Leiðari danska dagblaðsins Jyl-
lands Posten, undir nafninu „Det
grönne ridderskab" eða „hinir
grænu riddarar", fiallar í gær um
Greenpeace. Leiðaraskrifarinn byrj-
ar að fialla um hvernig Greenpeace
hafi árum saman slegiö sig til riddara
í baráttunni gegn kópadrápi. Sá
hængur var hins vegar á þessari bar-
áttu Greenpeace að Grænlendingar
geta ekki drepið kópa þar sem selirn-
ir kæpa ekki við Grænlandsstrendur.
Þaö vissi áróðursmaskína Greenpe-
ace ekki. Fyrst eftir að heimastjórn
Grænlendinga hafði lesið yfir þeim
svaraði Greenpeace með því að biðj-
ast afsökunar. Það gerðist þó í hljóði
og án nokkurra bóta. Grænlenskir
veiðimenn sátu eftir með sárt ennið
meðan Greenpeace hrósaði sigri á
vettvangi fiölmiðlanna.
Annað dæmi sem leiðaraskrifari
fiallar um er dómur yfir skipstjóra
frá Esbjerg sem reyndi að hindra
starfsemi úrgangsbrennsluskipsins
Vulcanus 2 í Norðursjó. Skipstjórinn
stendur frammi fyrir refsingu fyrir
skemmdaverk og allt aö 80 milljón
króna bótakröfu. í þessu tilfelli hafði
Greenpeace náð upp stemningu með-
al fiskisjómanna í Esbjerg og leitt þá
til brennsluskipsins með hjálp flug-
vélar. „Við spyrjum aftur: Hver fékk
fiölmiðlavinninginn? Það gerði Gre-
enpeace! Hver borgar reikninginn?
Örugglega ekki Greenpeace!"
Loks kemur leiðarinn að mynd
Magnúsar Guðmundssonar og
hvernig Greenpeace reyndi að fá
sýningu hennar bannaða hér heima,
hvemig Greenpeace vinnur gegn
sölu íslenskra afurða í Bandaríkjun-
um og hvernig hótanir um máls-
höíðun hanga yfir sjónvarpsstöövum
er voga sér að sýna myndina. „Skyldi
Kohmeini hafa gefið tóninn?" spyr
leiðarinn.
„Það er ástæða til að vara sig á
þessari tælandi grænu bókstafstrú.
Hún er oft ekki í takt við lífið á jörð-
inni. Það vita grænlenskir veiöi-
menn. En þessi bókstafstrúarfiöl-
miðiamaskína rúllar yfir þá sem vita
eitthvað um hlutarins eðli og læðir
boðskapnum um eigin trýuverðug-
heit inn í vitund þeirra sem ekki vita
betur. Þegar þeim boðskap er mót-
mælt er gripiö til hótana. Það er ekki
allt sem sýnist með riddaramennsk-
unaogfrelsið." -hlh
„Það var röð af gæðavandamálum
frá því í ágúst og fram í október auk
nýs tilfellis sem kom upp í janúar
og er enn í gangi sem olli því að þýska
verslunarkeðjan Aldi suður ákvaö
að hætta að kaupa rækjur af íslend-
ingum,“ segir Jón Sæmundur Sigur-
jónsson alþingismaður en hann er
nýkominn heim frá Þýskalandi þar
sem hann ræddi við forráðamenn
þýskra fyrirtækja sem hafa verið í
viðskiptum við Islendinga.
„Innkaupastjóri Aldi suður hélt því
fram í samtali við mig að þeir hefðu
hætt við alla sölusamninga við ís-
lendinga eingöngu vegna gæða-
vandamála en ekki vegna hvalveiða
íslendinga eins og hingað til hefur
verið látið liggja að.
Ég átti hálftíma samtal við inn-
kaupastjóra Aldi suður þar sem þetta
kom fram. Það voru ekki lagðir fram
neinir pappírar eða fyllilegri upplýs-
ingar.
Þaö var þrennt sem ég vildi frá
fram áður en ég hélt til Þýskalands;
í fyrsta lagi að Aldi hefði keypt rækju
eftir að þeir heföu rift samningunum,
í öðru lagi að þeir myndu standa við
samninga fram í maí og að birgðir
af rækju hér á íslandi væru ekki eins
miklar og menn vilja vera láta hér á
landi.
Þegar ég spurðist fyrir um birgð-
irnar þá sagðist innkaupastjórinn
ekkert vita um þær, annars vegar
gæti verið um vöru aö ræða sem
hefði verið endursend eða það sem
lagmetisframleiðendur hefðu tekið
áhættuna á að framleiða rækju með
tilliti til þess að þeir gætu selt hana
síðar.“
Það kom einnig fram hjá Jóni að
það væri ekkert í vegi þess að Aldi
keypti rækju af íslendingum í fram-
tíðinni svo framarlega sem gæði
rækjunnar væru viðunandi.
-J.Mar
Mörg innbrot og líkamsárás
Helgin var mjög annasöm hjá lög-
reglunni. Fjöldi innbrota var fram-
inn og eins var kærð líkamsárás að-
faranótt laugardags. Ráðist var að
manni í Lækjargötu og hann sleginn
í andlit. Maöurinn netbrotnaði og
eins brotnuðu tennur. Lögreglan hef-
ur handtekiö árásarmanninn.
Meðal þeirra innbrota, sem framin
voru, var innbrot í verslunina Ama-
son. Þaðan var fugli ef tegundinni
caccatou stolið. Fuglinn, sem er hvít-
ur með gula fiöður upp úr höfðinu,
er metinn á um 35 þúsund krónur.
-sme
Færeyjar:
Mjög góðar viðtökur
Heimildakvikmyndin Lífsbjörg í
noröurhöfum var sýnd í færeyska
sjónvarpinu á fóstudagskvöld. í við-
tali við DV sagði talsmaður færeyska
sjónvarpsins að myndinni hefði verið
mjög vel tekið. „Það er fullur stuðn-
ingur viö það sem fram kemur í
myndinni af hálfu Færeyinga," sagði
talsmaöurinn. Hann sagði ennfrem-
ur að engin viðbrögð hefðu enn kom-
ið frá Greenpeace.
Færeyska sjónvarpið auglýsti
myndina ekki sérstaklega fyrir sýn-
ingu hennar. Tilkynning um sýning-
una kom fyrst fram í kvöldfréttum á
fóstudagskvöld. Var það gert til að
losna við mögulegar aðgerðir af hálfu
Greeenpeace. Talsmaðurinn sagði
ekki loku fyrir það skotið að myndin
yrði sýnd aftur innan skamms. -hlh
„Lífsbjörg“ sýnd í TV-2:
Greenpeace fær ekki
að birta yfirlýsingu
Myndin Lífsbjörg í norðurhöfum
veröur sýnd í danska sjónvarpinu,
TV-2, annað kvöld. í samtali DV við
við dagskrárdeild TV-2 kom fram að
Greenpeacemenn hafa beðið um tíma
eftir sýningu mmyndarinnar til að
lesa upp yfirlýsingu. Var þeim neitað
um það. Ekki er gert ráð fyrir um-
ræðuþætti eftir myndina.
Sýningar hennar mun vera beðið
með talsverðri eftirvæntingu. Var
dagskrá TV-2 annað kvöld hliðrað til
svo hægt væri að sýna myndina um
tíuleytiö.
Eins og hér á íslandi hafa Green-
peacemenn hótað málssókn á hendur
TV-2 vegna sýningarinnar. Þeir
munu ekki hafa reynt að fá bann
fógeta við myndinni þar sem sú til-
raun mistókst hjá borgarfógetanum
í Reykjavík.
-hlh