Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 20. MARS 1989. jþróttir Landsliðið: Sundmenn fara til N-írlands - í keppnisferð íslenska landsliöiö í sundi mun halda utan 1. apríl næstkomandi og keppa á tveimur flrnasterkum sundmótum í Belfast á Norður- írlandi. Þátttökuþjóðir auk íslendinga og heimamanna veröa Sovét- menn, Skotar og Walesbúar. Ekki er Jjóst enn hversu stór hópur heldur utan en að sögn Guðmundar Ámasonar hjá Sundsambandinu setti Conrad Cawley landsliðsþjáifari ákveöin lágmörk ásamt landsliðsnefnd- inni fyrir meistaramótiö. Það fór fram í Sundhöllinni í Reykjavík um helgina eins og fram kemur annars staðar á síöunni. Þess má geta aö þegar hafa fjórtán sundmenn náö þessum lágmörkum. Sagöi Cawley lands- liðsþjálfari að sá hópur væri nokkum veginn af þeirri stærð sem hann hefði gert sér í hugar- lund áður en meistaramótið hófst. íslenska sundliðiö mun dvelja ytra í 11 daga og veröur það í æfingabúðum á milli mótanna tveggja. JÖG Starfsfólk sundmóta: Námskeið lllct sundfólki - Breti leiðbeindi Um helgina var hér staddur breskur leiðbeinandi, John Cart- er að nafhi. Hélt hann námskeið fyrir starfsmenn sundmóta þá er sinna tímavörslu og dómgæslu hér á landi. Aö sögn Guðmundar Ámason- ar hjá Sundsambandinu var Inn- anhússmeistaramót íslands haft sem prófverkefhi fyrir þá sem þreyttu próf á þessu námskeiöi Bretans. JÖG Handknattleikur: ÍR aftur í 1. deildina ÍR endurheimti á föstudags- kvöldið sæti sitt i 1. deild karla í handknattleik eftir eins árs fjar- vem. Breiöholtsliðið sótti þá Njarðvíkinga heim og sigraði, 25-21. HK hafði áður tryggt sér 1. deildar sæö og liöin tvö eiga nú aðeins eftir að kljást um sigur- inn í deildinni. Staöan í 2. deild er þannig: HK.....16 14 1 1 424-317 29 ÍR.....16 13 1 2 424-321 27 Haukar.....17 11 2 4 406-332 24 Ármann.... 16 10 1 5 374-373 21 Selfoss....16 7 0 9 409-411 14 Njarðvík... 16 6 1 9 395-389 13 Þór........17 6 0 11 363-419 12 Keflavík.... 16 5 0 11 355-389 10 Aftureld.... 16 4 0 12 350-392 8 ÍH.........16 2 0 14 302-459 4 -vs ____________________PV Sex íslandsmet hjá Ragnheiði - enn einu sinnl metaskúr á meistaramótinu í sundi Níu íslandsmet voru sett á innan- hússmeistaramóti íslands í sundi um helgina og 13 unglingamet að auki. Ragnheiður Runólfsdóttir frá Akranesi setti sex íslandsmetanna enda fór hún á kostum og virðist vera í góðri æfingu. Ragnheiður hóf mótiö á íslands- meti í 200 metra fjórsundi, fór vega- lengdina á tímanum 2:21,07 mínút- um. Gamla metið átti hún sjálf, 2:22,32 mínútur, setti það i nóvember 1988. í undanrásum á laugardag setti Ragnheiöur síðan met í 100 metra bringusundr, fór á 1:10,66 mínútum, en eldra metið átti hún sjálf, 1:11,76 mínútur. Þá var einnig millitími hennar í 50 metrum íslandsmet, fór hún þá vegalengd á 33,15 sekúndum. Eldra metið var 33,30 sekúndur. í úrshtum síðar um daginn bætti Ragnheiður síðan enn frekar þessi met er hún synti 100 metrana á 1:10,60 mínútum. 50 metrana synti hún þá á 32,93 sekúndum. Á sunnudaginn setti hún síðan enn eitt metið, þá í 200 metra bringu- sundi. Fór hún þá vegalengd á tíman- um 2:32,32 mínútum en eldra metið, sem Ragnheiður átti sjálf, var 2:32,99 mínútur. En þrátt fyrir hamfarir Ragnheiðar má á margan hátt segja að Birna Björnsdóttir, SH, haföi stolið sen- unni. Hún setti 5 stúlknamet og hafði nokkur þeirra af sunddrottningunni Guðrúnu Femu Ágústsdóttur. Bima setti fyrst met í 100 metra bringusundi, synti á tímanum 1:14,35 mínútum, en eldra metið var 1:14,44 mínútur. Milhtíminn í 50 metrum var einnig met, 35,37 sekúndur, eldra metið var 35,44 sekúndur. Bima lék sama leikinn og stalla hennar, Ragnheiður - bætti um betur í úrslitum. Þá var millitími hennar eftir 50 metra 34,24 sekúndur en alla vega- lengdina fór Bima á 1:13,14 mínút- um. Hafði hún þá bætt met Guðrúnar um rúma sekúndu sem er afar gott. Síðasta met sitt á mótinu setti Bima síðan í 200 metra bringusundi, synti vegalengdina á 2:38,08 mínút- um. Eldra metið átti hún sjálf, 2:40,42 mínútur. Þá setti Gunnar Ársælsson úr ÍA tvö piltamet í 400 metra fjórsundi. Fyrst synti hann í undanrásum á tímanum 4:52,39 mínútum og síðan í úrslitum á tímanum 4:50,52. Eldra metið var 4:55,07. Elín Sigurðardóttir úr SH setti einnig tvö met - bæði í stúlknaflokki. Fyrst setti hún met í 200 metra baksundi, fór vegalengdina á 2:31,50 mínútum en eldra metið átti Þórunn Kristín Guðmundsdóttir úr Ægi, sem var 2:32,22 mínútur. Síðan setti Elín met í 100 metra baksundi, fór þá vegalengd á 1:09,05 mínútum. Eldra metið átti Hugrún Ólafsdóttir úr Þorlákshöfn, sem var 1:09,3 sekúndur. Þá setti Ævar Örn Jónsson pilta- met í 50 metra baksundi er hann synti á tímanum 28,74 sekúndur, eldra metið átti þjálfari hans, Eðvarð Þór Eðvarðsson. Það var 29,13 sek- úndur. Setti Eðvarð það met árið 1984. Það er athyglisvert að Norður- landamethafmn í 200 metra baksundi sé farinn að sjá á bak piltametum sínum. Þá fékk stúlknasveit Vestra skráð stúlknamet í 4x200 metra skriðsundi. Sveitin fékk tímann 10:12,41 mínútur en metið í þeirri grein hafði ekki verið skráð áður. Fá félög um metin Þó aö breiddin hafi verið talsverð á þessu íslandsmeistaramóti voru það aðeins aðilar íjögurra félaga sem settu íslandsmet. Það var sundfólk úr SH, Vestra, ÍA og Ægi. Flesta titla í mótinu vann Ragnar Guðmundsson úr Sundfélaginu Ægi en hann sigraði í 100,200,400 og 1500 metra skriðsundi og var einnig i boð- sundsveitum Ægis í 4x100 og 4x200 metra skriðsundi. Þá sigraði Ragnar einnig í 400 metra fjórsundi. Það var einmitt sveit Ægis sem rak smiðshöggið á vel heppnað mót með góðu íslandsmeti, synti sveitin 4x200 metra skriðsund á tímanum 8:07,46 mín. í sveitinni voru Ragnar Guð- mundsson, Ólafur Einarsson, Karl Pálmason og Davíð Jónsson. Sveit Ægis átti eldra metið. Það var 8:14,78 mínútur. Þá setti karlasveit SH einnig ís- landsmet í boðsundi. Hún setti fyrst met í undanrásum á tímanum 4:08,11 mínútum. Metið var fyrir 4:13,30 mínútur. Síðan bætti sveitin metið enn frekar í úrshtum, fór þá tiltekna vegalengd á 4:05,63 mínútum. í sveit Hafníirðinga syntu Kristinn Magn- ússon, Arnþór Ragnarsson, Ingi Þór Einarsson og Alfreð Harðarson. JÖG Metsveit Hafnfirðinga Þessi sumdsveit, sveit SH, setti tvö íslandsmet í boðsundi á innanhússmeist- aramóti íslands. Sveitina skipuðu Kristinn Magnússon, Arnþór Ragnarsson, Ingi Þór Einarsson og Alfreð Harðarson. DV-mynd S Ragnheiður Runólfsdóttir snýr sér í einu metsundinu en hún setti sex ís- landsmet á innanhússmeistaramóti íslands í Sundhöllinni. DV-mynd S Margt þarf að bæta - segir landsliðsþjálfarinn í sundi „Það er alveg Ijóst að það þarf margt að bæta. Krakkamir geta margir hverjir gert miklu betur. Á svona móti ættu allir að vera í sínu besta keppnisformi en sú var ekki raunin í öllum tilfell- um,“ sagöi landsliðsþjáifarinn Conrad Cawley í samtali við DV í gær. Hann var þá nærri laugarbarminum í Sundhöllinni í Reykja- vík og fylgdist með úrslitum innanhússmeistaramóts íslands í sundi. „Að mínum dómi eru þjálfaramál hér á íslandi almennt í nyög góðu lagi en engu að siður þarf að lyfta grettistaki í þessari íþrótt. Setja þarf markiö miklu hærra en áður og allir þurfa að leggja miklu meira á sig til aö árangur verði jákvæðari. Gapiö milli þeirra góðu og hinna sem á eftir koma er ailtof mikiö. Hinir betri synda ekki undir nægjanlegri pressu frá keppinautunum. Við verðum að setja sundfólk okkar undir miklu meira álag svo að það nái betri árangri. Við þurfum frekari mót á erlendum vettvangi en slíkt er kostnaðarsamt og því kann ráðið að felast í mótum sem háö veröa hér á landi,“ sagöi Cawley. „islendingar búa við gríðarlega erfiðar aðstæður í sundinu enda er hér engin 50 metra laug undir þaki. Slíkt mannvirki er nauösyn- iegt ef betri árangur á að nást. Við getum mjög auðveldlega bent á þörfina með því að líkja þessu við handknattleikinn. Ætti ís- lenska landshðið í þeirri grein að búa við sömu aðstæöur og sund- fólkið þyrfti handknattleiksliöið að æfa inni í stofu hjá einhverjum landshðsmanninum. Þrátt fyrir þetta er ég fullviss um að okkur muni miöa áfram og ég hlakka raikið til starfsins hér á íslandi næstu árin,“ sagði Cawley. JÖG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.