Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Blaðsíða 56
F R ÉTTAS l< O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháö dagblað
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
Opna mótið í New York:
Margeir og
-Helgi unnu
Jón L. Ámason, DV, New York:
Fyrsta umferð í opna mótinu í New
York var tefld í gær. Á rnótinu tefla
89 skákmenn. þar af eru tólf sovéskir
skákmeistarar. Mesta athygli vekja
þó Polgar-systur og var viðtal við
móöur þeirra á einni sjónvarpsstöö-
inni hér. íslensku stórmeistararnir
Jón L. Árnason. Helgi Ólafsson og
Margeir Pétursson eru meðal þátt-
takenda á mótinu ásamt Karli Þor-
steins og Hannesi Hlífari Stefáns-
syni. í fyrstu umferð sigraði Margeir
stórmeistarann Balinas. Helgi sigr-
aði Svíann Carleson og Jón gerði
'•^hfntefli við Heberp frá Kanada. Karl
Þorsteins geröi einnig jafntefli en
Hannes Hlifar tapaði fyrir sovéska
stórmeistaranum Tsérnin.
Reykjavík í nótt:
Þrír teknir
við innbrot
•t
Þrír menn. einn þrítugur og tveir
fimmtán ára, voru handteknir er
þeir reyndu að brjótast inn í verslun-
ina Sportval við Hlemmtorg um
klukkan þrjú í nótt. í bíl þeirra, sem
lagt hafði verið skammt frá innbrots-
staðnum, fannst varningur sem talið
er að þremenningamir hafi náð til
sín í öðrum innbrotum.
Sá þrítugi gisti fangageymslur lög-v
reglunnar í nótt en hinir voru vistað-
ir í skammtímageymslu Unghnga-
heimilis ríkisins.
Rannsóknarlögreglan fer með
rannsókn málsins sem er á frumstigi.
-sme
Loðna í sjóinn
Um 300 tonn af loðnu runnu í sjóinn
er buröarveggur í þró loðnubræðsl-
unar á Neskaupstað gaf sig um helg-
ina. Veggurinn gaf sig undan miklum
þunga. Talsvert magn af loðnu var í
þrónni. -sme
Ijftrjggingar
ili
ALÞJÓÐA
•^LÍFTRYGGINGARFEIAGIÐ HF.
LÁGMÚ.15 - RKYkJAVÍK
Smii f»NIÍ»44
LOKI
Var bjargvættur Stoltenbergs
á bragganum?
Norski utanríkisráðheirann í hörðum árekstri í Brussel:
Viðsjárvert að aka
hér um stræti og torg
- segir Jón Baldvin Hannibalsson sem var fyrstur á vettvang
„Við vorum fyrstu menn á vett-
vang og komum að rétt eftir að
ekiö hafði verið á Norðmennina.
Bflinn var fjandi illa leikinn. Þaö
var auðséð að það hafði verið ekiö
á hann á miklum hraða. En þeir
báru sigkarlmannlega, Norðmenn-
irnir,“ sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanrikisráöherra en hann
kom að bifreiö norska starfsbróður
síns, Thorvald Stoltenberg, eftir aö
drukkinn ökumaður hafði ekiö
harkalega á hana í Brussel í gær.
Auk Stoltenberg voru í bílnum
Jan Balstad, viðskiptaráðherra
Norðmanna, og sendiherra þeirra
hjá Evrópubandalaginu. Þeir
ketmdu sér ekki meins utan hvað
þeir kvörtuöu yfir verk í höfði og
hálsi.
„Þaö var svo til skamms tima að
menn þurftu ekki að taka bílpróf
hér í Brussel. Það er tiltölulega
nýskeð. Það var álitinn náttúruleg-
ur hæffleiki að aka bíl. Þar að auki
eru hér raargar fyllibyttur sem
drekka mikinn bjór og þaö er því
viðsjárvert að aka hér um stræti
og torg,“ sagði Jón Baldvin.
Jón settást í morgun á fund með
utanríkisráöherrum EFTA-ríkj-
anna og Efnahagsbandalagsins. Á
þeim fundi er ekki búist við stórtíð-
indum þar sem utanríkisráðherrar
Efnahagsbandalagsins hafa ekki
enn rætt Osló-samþykkt EFTA í
sínum hóp.
Um helgina sat Jón síðan fundi
með fulltrúum atvinnulifsins i
EFTA-ríkjunum þar sem farið var
yfir stööu mála í samningum milli
EFTA og Evrópubandalagsins. Þá
funduðu utanríkisráðherrar EFTA
einnigígær. -gse
Guðrún Eyjólfsdóttir fegurðardrottning Vesturlands. Það er Halldís Hörn
Höskuldsdóttir, fegurðardrottning Vesturlands 1988, sem krýnir hana.
DV-mynd Róbert
Feguröardrottning Vesturlands:
Guðrún Eyjólfs-
dóftir hlutskörpust
Róbert Jörgensen, Stykkishólmi:
Fegurðarsamkeppni Vesturlands
var haldin í Stykkishólmi síðastlið-
inn laugardag. Saíarkynni hótelsins
voru komin með ævintýrablæ enda
vel við hæfi í tilefni sem þessu. Það
var mikil spenna og eftirvænting
meðal hinna sex glæsilegu þátttak-
enda og ekki var hún minni spennan
í salnum. Milli umferða í keppninni
dönsuðu dansarar frá dansskóla
Auðar í Reykjavík og var þeim ós-.
part klappað lof í lofa.
Þátttakendur í fegurðarsamkeppni
Vesturlands 1989 voru: Dísa Lind
Tómasdóttir, Akranesi, Elín Jóns-
dóttir, Borgarnesi, Eydís Eyþórs-
dóttir, Stykkishólmi, Guðrún Eyj-
ólfsdóttir, Akranesi, Rannveig Anna
Ólafsdóttir, Akranesi, og Vigdís Stef-
ánsdóttir, Akranesi.
Úrslit urðu þau að Guðrún Eyjólfs-
dóttir frá Akranesi var kjörin fegurð-
ardrottning Vesturlands, Halldís
Hörn Höskuldsdóttir, fegurðar-
drottning Vesturlands 1988, krýndi
Guðrúnu. Dísa Lind Tómasdóttir var
hvorutveggja valin vinsælasta stúlk-
an, það eru þátttakendur sjálfir sem
dæma um það, og ljósmyndafyrir-
sæta Vesturlands sem dómnefnd vel-
ur. í lok keppni var haldinn dansleik-
ur og lék hljómsveitin Klakabandiö
úr Ólafsvík fyrir dansi.
Fjölskylda sótt í
Hvalnesskriður
Björgunarsveitin á Höfn var kölluö
út í nótt til að sækja tvennt fullorðið
og tvö börn sem voru í biluðum bíl
í Hvalnesskriðum. Fólkið lagði af
stað frá Keflavík klukkan fjögur í
gærdag og var fór þess heitið til
Djúpavogs. Þegar fólkið var ekki
komið þangað um miðja nótt var ósk-
að eftir því viö lögreglu að svipast
yrði um eftir fólkinu. Vegna veðurs
og frétta um að snjóskriður hefðu
fallið í Þvottárskriðum var óskað
aðstoðar björgunarsveitar.
Bill fólksins hafði bflað og fundu
björgunarsveitamenn fólkið fljót-
lega. Komið var með það, en allir
voru við bestu heilsu, til Hafnar um
klukkan hálfátta í morgun.
í morgun var hafist handa við að
moka Þvottárskriður. Slæmt veður
var í Hornaflrði í nótt - skafrenning-
urogsnjókoma. -sme
Veðrið á morgun:
Snjókoma
fyrir
norðan
Á morgun veröur noröaustan-
og norðanátt á landinu. Snjó-
koma eða éljagangur með skaf-
renningi verður um allt norðan-
vert landið en þurrt syðra. Frost-
laust að deginum sunnanlands en
annars 1-6 stiga frost.
Vaxtahækkun
ríkisbankanna
Landsbankinn og Búnaðarbankinn
hækka nafnvexti sína í dag á óverð-
tryggðum inn- og útlánum. Vaxta-
hækkun Landsbankans er meiri, eða
allt að 6 prósent, enda hafa vextir
bankans hafa verið lægri en hjá Bún-
aðarbankanum. Engin breyting
verður á vöxtum verðtryggðra lána.
Einkabankarnir taka ákvörðun um
vaxtahækkun í dag.
Víxilvextir Landsbankans eru 23,5
prósent en voru 17,5 prósent. Vextir
á Kjörbók verða 23 prósent en voru
17 prósent. Vextir á óverðtryggðum
skuldabréfum hækka úr 18 prósent-
umí24prósentl. apríl. -JGH
\
\
\
\
\
\
\
í
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
I
I
I
I
I
I
I
I
I