Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Side 26
26
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
íþróttir
¥ Körfuboltí
* staðan
J
l.deild karla
Laugdælir-Léttir.........71-47
Víkverji-Skallagrímur....82-77
Reynir-UBK...............52^19
Snæfell-Skallagrímur.....78-65
UBK-Laugdælir............61-71
Skallagrímur-Reynir......70-74
UÍA-Víkverji.............69-47
UBK-Vikverji.............79-59
Lokastaðan:
Reynir.....14 13 1 955-756 26
Laugdælir... 14 10 4 961-799 20
UÍA.........14 9 5 970-845 18
UBK.........14 8 6 966-923 16
Snæfell....14 7 7 1023-1044 14
Léttir.....14 4 10 895-1032 8
Skallagr...14 4 10 889-1011 8
Víkverji....14 1 13 783-1032 2
1. deild kvenna
KR-Haukar..................54-51
Keflavík-ÍR ...71-62
ÍS-Grindavík ...55-24
Haukar-ÍR ...52-68
Njarövík-ÍR ...53^2
KR-Keflavík ...55-57
Niarðvík-fS ...43-53
Keflavík..18 16 2 981-744 32
ÍR........18 12 6 1032-908 24
KR.......18 11 7 '901-901 22
ÍS.......18 11 7 869-797 22
Njarðvík.18 7 11 724-762 14
Haukar....17 5 12 719-810 10
Grindavík.17' 0 17 642-945 0
Þórhélt
sæti sínu
- vann Laugdæli, 89-53
Þórsarar tryggðu sér áfram-
haldandi sæti í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í gær þegar þeir
sigruðu Laugdæli, 89-53, í úrslita-
leik liöanna í Hagaskólanum í
Reykjavík. Úrslitin opinbera
glögglega muninn á deildunum
tveimur en Þór tapaði 23 af 26
leikjum sínum í úrvalsdeildinni í
vetur.
Laugdælir náðu öðru sæti 1.
deildar á föstudagskvöldið þegar
þeir unnu Breiðablik í Kópavogi,
71-61, en það var hreinn úrslita-
leikur um hvort liðið skyldi mæta
Þór. Tapið þýddi hins vegar fyrir
Blikana að þeir enduðu í fjórða
sæti.
-VS
KR-ÍBK
í kvöld
Annar úrslitaleikur Keflvík-
inga ogKR-inga um íslandsmeist-
aratitilinn í körfuknattleik fer
fram á heimavelli KR í Hagaskól-
anum í kvöld og hefst kl. 20. Kefl-
víkingar geta tryggt sér titilinn
með sigri en vinni KR-ingar eig-
ast liðin við í þriðja skipti í Kefla-
vík á miðvikudagskvöldið.
Bikarinn
kom einn
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Reynismenn úr Sandgerði tóku
við sigurlaunum 1. deUdar karla
í körfuknattleik á laugardaginn,
eftir að hafa sigrað SkaUagrím,
74-70, í síðasta leU( sínum. Þeir
unnu 13 leUd af 14 og hlutu sex
stigum meira en Laugdæiir sem
hrepptu annað sætið.
En heldur þótti Sandgerðingtun
sem Körfuknattieikssamband ís-
lands sýndi þeim iitla virðingu
viö afhendingu bikarsins. Enginn
frá KKI kom tU að afhenda hann,
bikarinn var einfaidlega sendur
á staöinn! Þetta er vafaiítið eins-
dæmi þegar um er að ræöa sigur-
laun á ísiandsmóti.
• Guðjón Skúlason, Keflvíkingur, lék stórt hlutverk að vanda þegar lið hans vann KR á laugardaginn. Hér skorar
hann körfu og ívar Webster, KR-ingur, kemur ekki neinum vörnum við þótt stærðarmunurinn á þeim sé Guðjóni
mjög í óhag. DV-mynd GS
Sagt
eftir
leikinn
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Áhorfendur voru stórkostlegir
og eiga þakkir skildar og þeir eiga
svo sannariega sinn þátt í þessum
sigri. Það sannaðist enn einu
sinni, þegar við misstum Guðjón
af leikvelli, að það kemur maöur
í manns stað. Við ætlum okkur
að klára dæmið á mánudags-
kvöldið. Sá leikur verður erfiður
en það mun takast," sagði Jón
Kr. Gíslason, þjálfari Keflvík-
inga, í samtali við DV eftir úr-
siitaieikinn á laugardag.
Axel Nikulásson
„Við gáfúmst aldrei upp þó við
værum undir. Það er mjög góð
stemmning í liðinu, ef einhverj-
um leikmanni gengur flla er hann
hvattur áfram. KR-ingar press-
uðu mjög illa, þeir voru kannski
hræddir við villur, en þeir munu
örugglega pressa okkur stíft í
leiknum í Hagaskóia,“ sagöi Axel
Nikulásson, leikmaður Keflavík-
ur.
Birgír Mikaelsson
„Viö töpuðum boltanum of oft
til þeirra, vorum klaufar í leikn-
um. Það var mjög svekkjandi að
tapa þar sem við vorum yfir mest-
an hluta leiksins, en viö gefumst
ekki upp - seijmi leikurinn verð-
ur mjög erfiður en við erum mjög
sterkir á heimavelli, ætlum okk-
ur að sigra og ná fram þriðja
leiknum," sagði Birgir Mikaels-
son, fyrirliöi og stigahæsti leik-
maður KR-inga.
Laszlo Nemeth
„Viö misstum boltann of oft,
þar af leiðandi skoruðum viö ekki
dýrmæt stig úr þeim sóknum. En
Keflvíkingar standa mjög vel að
vígi því þeir fá þriöja leikinn á
heimavelli ef við sigrum þá næst.
Leikurinn í Hagaskóla verður
erfiður en það ætti að takast að
sigra og því verður hreinn úr-
slitaleikur á miðvikudaginn,“
sagði Laszlo Nemeth, þjálfari
KR-inga.
KR-ingar þoldu ekki
pressuna undir lokin
- og Keflavlk hefur undirtökin 1 einviginu eftir sigur, 77-74
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
Keflvíkingar sigruðu KR-inga í
æsispennandi úrslitaleik um íslands-
meistaratitilinn sem fram fór í Kefla-
vík á laugardaginn. Leikurinn end-
aði 77-74, eftir aö staðan hafði verið
33-37, KR í hag, í hálfleik. Liðin leika
öðru sinni í Hagaskólánum í kvöld
og sigri Keflvíkingar aftur hafa þeir
tryggt sér meistaratignina í fyrsta
skipti. Annars verður þriðji leikur í
Keflavík á miðvikudagskvöldið.
KR-ingar fórum hamförum í byrj-
un og voru komnir í 10-20 þegar tíu
mínútur voru liðnar. Fjórum mínút-
um síðar, þegar staðan var 18-26,
fóru Keflvíkingar að pressa stíft og
stálu boltanum hvað eftir annað af
KR-ingum. Þeir skoruðu tíu stig í röð
og sneru leiknum sér í hag, 28-26.
En á lokakaíla hálfleiksins náðu
KR-ingar að skora 11 stig gegn fimm
stigum heimamanna og ná foryst-
unrú á ný.
Á fyrstu mínútum síöari hálfleiks
náðu Keflvíkingar að jafna, 39-39.
Eftir það voru KR-ingar með 4-6 stiga
forystu þar til á 8. mínútu. Þá var
staðan 49-55 en heimamenn skoruðu
þá sex stig í röð og jöfnuðu. Þeir kom-
ust síðan yfir í fyrsta skipti í hálf-
leiknum, 59-57, og leikurinn var
hálfnaður.
Guðjón meiddist
Fimm mínútum fyrir leikslok var
staðan 68-68. Þá náði Guöjón Skúia-
son aö skora þriggja stiga körfu en í
næstu sókn uröu Keílvíkingar fyrir
því áfalli að missa hann meiddan út
af. KR jafnaði, 71-71, þegar tvær mín-
útur voru eftir. Axel kom Keflavík
yfir, 73-71, og síðan misstu KR-ingar
boltann. Falur Haröarson, sem kom
inn á fyrir Guðjón og var að leika
sinn 100. leik fyrir félagið, jók mun-
inn í fjögur stig, 75-71. Enn misstu
KR-ingar boltann og aftur var það
Falur sem skoraöi, 77-71, og ein mín-
úta eftir. Þá geröi Birgir þriggja stiga
körfu, 77-74, en Keflvíkingar náðu
að halda boltanum til leiksloka, við
mikinn fögnuð áhorfenda.
Keflavík vann á liðsheildinni
Keflvíkingar unnu þennan leik
fyrst og fremst á liðsheildinni. Þeir
spiluðu mjög skynsamlega og vel,
mikil barátta og leikgleði færði þeim
þennan sigur. Allar innáskiptingar
voru mjög vel skipulagðar af Þor-
steini Bjarnasyni liðsstjóra. Jón Kr.
og Axel náðu ótrúlega vel saman og
allir áttu sinn þátt í sigrinum.
KR-ingar eru með mjög gott og
sterkt lið en þoldu greinilega ekki
pressuna á lokamínútunum og
misstu boltann oft klaufalega. Bestir
voru þeir Birgir Mikaelsson og Matt-
hías Einarsson og Guðni Guðnason
átti ágæta spretti. Einnig var ívar
Webster sterkur í vörninni en það
er galli fyrir iiðið hve seinn hann er
í sóknina og nær þess vegna ekki
eins mörgum sóknarfráköstum og
skyldi.
Kristinn enn á KR-leik
Dómarar voru þeir Leifur Garðars-
son, sem stóð sig mjög vel, og Krist-
inn Albertsson. Það verður að segjast
eins og er að það er einkennilegt að
Kristinn skuli áfram vera látinn
dæma leiki KR-inga þegar margoft
hefur komið fram að tengsl hans við
leikmenn liðsins séu meiri en svo að
vel geti verið. Þetta hlýtur að
skemma fyrir Kristni sjálfum því
hann er að öilu jöfnu mjög góður
dómari.
Stig Keflavíkur: Axel Nikulásson
24, Guðjón Skúlason 23, Jón Kr.
Gíslason 8, Sigurður Ingimundarson
8, Nökkvi Jónsson 6, Falur Harðar-
son 4, Magnús Guðfinnsson 4.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 26,
Matthías Einarsson 20, Guðni
Guðnason 16, ívar Webster 7, Jó-
hannes Kristbjörnsson 3, Hörður
Gauti Gunnarsson 2.