Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Side 35
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
35
Kvikmyndir
Dirty Harry
enn á ferð
I djörfum leik (The Dead Pool)
Aðalhlutverk: Clint Eastwood, Liam Nee-
son
Leikstjóri: Buddy Van Horn
Handrit: Steve Sharon
Sýnd i Bíóhöllinni
Harry Callahan (Clint Eastwood)
hefur tekist að' koma stórkrimma
einum á bak við lás og slá. Fyrir vik-
ið er hann mikið í fjölmiðlum og fær
lof frá þeim í þetta sinn. Lögreglan
vill nota þessar vinsældir Harrys til
að bæta ímyndina en Harry er ekki
mikið gefinn fyrir fjölmiðla. Krimm-
inn sendir morðingja á Harry en
hahn hefur níu líf og með hjálp Smith
og Wesson hólksins tekst honum að
ráða niðurlögum þeirra. Peter Swan
(Liam Neeson) leikstýrir hryllings-
myndum og þegar aðalstjarna nýj-
ustu myndar hans finnst myrt bland-
ast Harry og nýi félaginn hans, A1
Quan (Evan C. Kim), í málið. Enn á
ný er fjölmiðlafólk að angra Harry
við rannsókn málsins og hann lendir
upp á kant við fréttakonuna Sam-
öntliu Walker (Patricia Clarkson).
Hún hótar málsókn á hendur lögregl-
unni en fellur frá henni gegn máls-
verði með Harry. Hún hefur áhuga
á að skrifa sögu „Skítuga" Harrys
en áhuginn er ekki gagnkvæmur.
Fyrir slysni komast Harry og A1 að
því að leikur er í gangi sem kallast
dauðapotturinn (The Dead Pool).
Peter Swan og fleiri hafa búið til lista
yfir frægar persónur sem þeir telja
að muni deyja innan ákveðins tíma.
Á þessum lista voru meðal annarra
hinn látni leikari og Harry Callahan.
Fjölmiðlar fá listann sendan og nöfn-
in á honum eru kunngerð. Harry
kemst að því hverjir standa að þess-
um leik og fer að þjarma svolítið að
Peter. Fyrr er varir bætast ný fórn-
arlömb í hópinn og Peter liggur und-
ir grun þrátt fyrir að hann hafi fjar-
vistarsönnun. Harry fær sent bréf
þar sem stendur að hann sé næstur.
Eftir æsilegan eltingarleik tekst hon-
um aö sleppa en A1 særist. Nú stytt-
ist í að upplýsist hver morðinginn
er en þá er eftir að ná honum. Harry
grunar hvar hann er og leggur af
stað í lokauppgjörið.
Clint Eastwood (Sudden Impact,
Pale Rider) leikur hér „Skítuga"
Harry í fimmta sinn. Þrátt fyrir að
hafa elst um 17 ár frá fyrstu mynd-
inni háir aldurinn honum ekki mikiö
og hann er jafnvel enn grimmilegri
svona gamall. Frethólkurinn frægi
fylgir honum sem fyrri daginn og er
óspart notaður. Aðrar persónur eru
meira til uppfyllingar og veldur hlut-
verk Liam Neeson (The Mission,
Suspect) svolitlum vonbrigðum.
Buddy Van Horn leikstýrir mynd-
inni af fagmennsku en án nokkurrar
áhættu. Helsti veikleiki myndarinn-
ar er handritið. Þegar um „fram-
haldsmyndir" er að ræða er erfiðara
að koma með eitthvaö nýtt. Handrit-
ið hefur yfir sér einkenni sjónvarps-
þáttar og á eiginlega betur við Hunt-
er en „Skítuga" Harry. Það vantar
ekki hasar, spennu og skotbardaga
heldur heilsteyptara yílrbragð, en
hver er að fárast yfir því þegar horft
er á „Skítuga" Harry taka til hend-
inni.
Mynd fyrir unnendur hasarmynda.
Stjörnugjöf: ** 1/2
Hjalti Þór Kristjánsson
%
o
Á 1
0
Maana
s r bœtiefni
velliðan og styrkur
■ ......■ ~.
Á O
mm
kvöldvonusíii10'10 too
töfKi,
60
hylki
/Magna
kvöldvorrósarolía
Óæskilegt matar-
æði, áfengisneysla,
kvef og streita geta
skért hæfni líkamans
til að umbreyta línól-
sýru í gammalínólen-
sýru, GLA. Skammtur
af Magna-kvöldvor-
rósarolíu hjálpar lík-
amanum til að hann
geti starfað eðlilega.
c
/Hagna
mk
Konur á með-
göngutíma eða með
barn á brjósti þurfa ríf-
legan skammt af kalki.
Einnig fólk um og yfir.
fimmtugt, einkum kon-
ur, til að hamla gegn
beinþynningu. Best er
að viðhalda kalkforð-
anum alla ævina.
Magna
B
Finnurðu til þreytu
eða sljóleika? Magna-
B gæti gefið þér styrk
til að standast erfiða
daga, vegna þess að
það inniheldur öll þau
B-vítamín sem líkam-
inn þarfnast. Nauð-
synlegt er að taka
Magna-B reglulega.
Vörn gegn kvefi
og smitsjúkdómum í
skammdeginu. Skort-
ur á C- vítamíni stuðl-
ar að eirðarleysi,
blæðingum I gómi og
tannlosi. Ef þú reykir,
þarftu meira af C-víta-
míni til að fullnægja
dagsþörfinni. Magna-
C er lausnin.
/Hagna
Það verndar önnur
vítamín og fjölómett-
aðar fitusýrur líkam-
ans og eykur þannig
vellíðan þína. Skortur
á E-vítamíni orsakar
eyðingu blóðkorna
og getur valdið blóð-
leysi. Láttu ekki deigan
síga. Taktu Magna-E.
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík.
L
HVERGI MEIRA URVAL
AF LJÓSMYNDAVÖRUM
f Tihalin
erniingargjöf
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HFl
Laugavegi 178 - Reykjavík - sími 685811
rm
D1