Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Side 36
36
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
Fréttir
Islandsmeistaramótið í vaxtarrækt
„Þetta útlit er mér að skapi,“
segir Valbjörn Jónsson vaxtarrækt-
armaður sem hefur nú unnið af
hörku í þijá mánuði að lokaundir-
búningi sínum fyrir íslandsmeist-
aramótið í vaxtarrækt. Mótið verður
í Háskólabíói laugardaginn 25. mars
og hefst forkeppnin klukkan 9 um
morguninn.
Lokaundirbúningur Valbjarnar
hefur fahst í því að skafa sem mest
af fitu af líkamanum til að vöðvamir
njóti sín sem best í sjálfri keppninni.
Álagið við lokaundirbúninginn segir
hann vera gífurlega mikið og er hann
vart viðmælandi þann tíma.
Þegar Valbjöm var spurður að því
hvort það væri rétt að vaxtarræktar-
menn sveltu sig fyrir keppni sagði
hann að það væri alrangt. Sagðist
hann hafa neytt um 3600 hitaeininga
á dag þessa þrjá mánuði sem loka-
undirbúningurinn hefur staðið yfir
en vanalega neytir hann 5000 til 6000
hitaeininga á dag þegar hann er ekki
að búa sig undir keppni. „Við keppn-
isundirbúninginn reyni ég að velja
fæðuna vel og forðast ailan óhollan
mat,“ segir Valbjöm. „Ég borða mest
soðinn fisk, hýðishrísgrjón, gróft
brauð, ferskt grænmeti og ávexti og
örlítið af kartöflum. Auk þess drekk
ég 7 til 10 lítra af vatni á dag. Ég reyni
að halda hlutfalli fæðunnar þannig
að 65% hennar séu kolvetni, 30 til
35% séu eggjahvítuefni og 5 til 10%
fita, til að fæðan nýtist líkamanum
sem best.“
Valbjörn byrjaði að æfa vaxtar-
rækt fyrir átta árum og þá vó hann
72 kg. Árið 1983 setti hann sér það
markmið að keppa í vaxtarrækt inn-
an þriggja ára og má e.t.v. segja að
við þá ákvörðun hafi undirbúningur
hans undir keppni hafist. Það var svo
á íslandsmeistaramótinu, sem haldið
var í Broadway 1986, sem hann
keppti í fyrsta sinn og lenti þá í +
90 kg flokki, þá 100 kg þungur, reynd-
ar segist hann hafa verið illa skafinn
í þeirri keppni. Þar keppti Valbjörn
á móti Jóni Páh Sigmarssyni og varð
að láta sér lynda annað sætið. 1987
keppti Valbjöm aftur á íslandsmeist-
aramótinu, sem þá var haldið á Ak-
ureyri og varð þar íslandsmeistari í
+ 90 kg flokki. I fyrra varð Valbjörn
hins vegar að hætta við keppni stuttu
fyrir íslandsmeistaramótiö þar sem
hann sleit hluta vinstri brjóðstvöðv-
ans í sundur og varð að hætta æfing-
um um tíma.
íslandsmeistaramótið núna verður
þriðja íslandsmeistaramótið sem
Valbjörn tekur þátt í og þegar þessar
myndir vom teknar af honum, hálf-
um mánuði fyrir mótið, var hann 107
og Vi kg og taldi þá að hann ætti eft-
ir að léttast um eitt tii tvö kíló fram
að mótinu.
Valbjörn æfir að jafnaði eina og
hálfa til tvær klukkustundir á dag,
sex daga vikunnar, allan ársins
hring. Hann segir að allt lífið gangi
út á vaxtarræktina og hann fómi
öllum öðram áhugamálum fyrir
hana.
Aðspurður hvers vegna hann legði
á sig alla þessa vinnu og það harð-
ræði sem fylgdi vaxtarræktinni,
svaraði Valbjörn því til að það væri
til að fullnægja áhugamáli sínu.
Hann sagði að hann fyndi hvað
skrokkurinn hefði gott af þessu og
vellíðanin eftir erfiða æfingu væri
mikil. „Því fylgir líka mikil ánægja
að hta betur og öðruvísi út en annað
fólk og er þetta útht mér að skapi.“
Þá segist Vaibjörn vera sannfærður
um að hann eigi eftir að stunda vaxt-
arrækt það sem eftir er enda setur
vaxtarræktin mönnum engin aldurs-
mörk og eru margir bestu vaxtar-
ræktarmenn heimsins mihi 50 og 60
ára gamhr. -J.A.K.
Valbjörn Jónsson tók vel á lóðunum
þar sem hann var við æfingar í
World Class heilsustúdíóinu en
segja má að undirbúningur hans
fyrir íslandsmeistaramótið hafi tekið
átta ár.
Á þessum átta árum sem Valbjörn
hefur lagt stund á vaxtarrækt hefur
hann þyngst um 35 kg enda er hann
orðinn, eins og vaxtarræktarmenn
segja, „alveg hrikalegur".
„Ég er mjög ánægð með hann svona,“ segir Margrét Ástrún Einarsdóttir, eiginkona Valbjarnar, sem hann hefur
hér snarað, án nokkurrar fyrirhafnar, upp á öxlina. DV-myndir Jóhann A. Kristjánsson
Englakroppar á Selfossi
Kristján Einaisson, DV, Selfoesi:
Á Selfossi er ekki slegið slöku við
að rækta hkamann og ýmis brögð
notuð í þeim tilgangi. I glugga í húsi
við Eyrarveg 27 stendur skýram stöf-
um „Englakroppar" og þetta skilti
vakti áhuga fréttaritara DV. Hann
knúði dyra. Fyrir hitti hann Nönnu
Finnbogadóttur sem rekur þama lík-
amsræktarstöð.
„Ég sá tæki fyrir þessa leikfimi
auglýsta í blaði og fékk áhuga. Þetta
er það sem ég hef gaman af. Hús-
næði fékk ég leigt á góðum stað og
lán til tækjakaupa og skellti mér út
í þetta,“ sagöi Nanna.
„Slender yöu“ heita þessir bekkir
og sex slíkum hefur Nanna komið
fyrir í vistlegu umhverfi. Bandarísk-
ur maður fann þá upp til að styrkja
lamaða dóttur sína. Árangurinn þótti'
svo góður að hafist var handa við
fjöldaframleiðslu. Bekkimir vinna
þannig að að hinir ýmsu vöðvar
vinna á móti vélknúnum hreyfingum
bekkjarins. Leikfimin er jafnt fyrir
konur sem karla og er hver þátttak-
andi 10 mínútur í hveijum bekk.
Nanna Finnbogadóttir við vélknúnu bekkina. DV-mynd Kristján
„Nafnið kom að himnum ofan,“ englakroppar, bara örlítið mismun-
sagði Nanna, „eram við ekki öll andi í laginu.“
Bifreiðaskoðun
í Borgarnesi
Steíán Haialdsson, DV, Borgamesi:
Bifreiðaskoðun íslands opnaöi
skoðunarstöð í Borgarnesi 3. mars
og er hún í bráðabirgðahúsnæöi í
byggingu BTB í Brákarey. Áætlað
er að stöðin verði flutt í annað hús-
næði á næsta ári þar sem komið
verður upp fullkomnum skoðunar-
tækjum. Kristján Björnsson hefur
verið ráöinn forstöðumaður stöðv-
arinnar og mun hann sjá um skoð*
un bíla fyrir Mýra-og Borgarfjarð-
arsýslu.
Kristján mun einnig fara vestur
á Snæfellsnes og víðar með sérút- Krlstján Björnsson í skoöunar-
búna skoðunarstöð en stefnt er aö stöðinni í Borgarnesí.
þvi að hafa skoðunarstöðina í Borg- DV-mynd Stefán
arnesi opna minnst 1-2 daga í viku
meðan á þessum ferðum stendur. til kynna skoðunarmánuð bílsins
Upplýsingar um hvenær opið er að viðbættum 4 mánuöum sem eig-
era gefnar í stöðinni eða í síma endur hafa til skoðunar bíla sinna.
hennar. Til dæmis M 916 er júní + 4 mánuð-
Hvað skoðun snertir má geta þess ir. Október er þá síðasti skoðunar-
að síðasti stafur í númeri bils gefur mánuður M 916.