Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Qupperneq 48
48
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
Lífestm
Niðurstöður úr könnun á gæðum
nautahakks og kjötfars, sem Neyt-
endasamtökin framkvæmdu í liðinni
viku, hafa vakið mikla athygli. Ekki
síst fyrir þær sakir aö fjórðungur af
kjötfarsinu reyndist ósöluhæfur
vegna of mikils fjölda kólígerla og
saurkólígerlar voru í of miklum
mæli í átta sýnum af 32.
Neytendur
Nautahakkið kom heldur skár út
en þar reyndust aðeins sex af 32 sýn-
um vera ósöluhæf og þar af fjögur
vegna kólígerla.
í skýrslu Hollustuverndar ríkisins,
sem framkvæmdi rannsóknina fyrir
Neytendasamtökin, segir: „Tilvist
kóhgerla er talin óæskileg í flestum
matvælum þar sem þeir gefa til
Gerlarnir geta komist í vöruna strax í sláturhúsinu.
Hollustuvemd ríkisins:
Saurkólígerlar benda
til saurmengunar
kynna mengun sem ýmist er af saur-
uppruna eða frá umhverfmu. Þeir
benda einnig til hugsanlegrar meng-
unar af völdum sjúkdómsvaldandi
gerla sem tengdir eru saur manna
og dýra.“
Um saurkólígerla, sem fundust í
átta sýnum af kjötfarsi, segir í
skýrslu Holiustuverndar: „Saurkólí-
gerlar eru greindir frá öðrum kólí-
gerlum þar sem mengun af þeirra
völdum er yfirleitt mun alvarlegri
en af völdum annarra kólígerla.“
Ennfremur segir í skýrslunni að þar
sem fjöldi kólí- og saurkólígerla fer
yfir leyfileg mörk gefi það vísbend-
ingu um mjög lélegt hreinlæti og
jafnmvel sóðaskap við vinnslu, dreif-
Vestmannaeyjar:
Ekki rétt staðið
að sýnatökunni
- segir verslunarstjóri Kaupfélagsins
„Eg hef mjög miklar efasemdir
um að rétt hafi verið staðið að sýna-
tökunni hér í VesGnannaeyjum“
sagði Jón Karlsson, verslunarstjóri
í Kaupfélagi Vestmannaeyja við
Goðahraun, í samtali viö DV.
„Hingaö kemur heilbrigöisfuU-
trúi reglulega og gerir engar at-
hugasemdir og ég veit ekki annað
en þessi mál séu í góðu lagi hér
innanhúss. Það var ekki kvittað
fyrir neinni sýnatöku hér og við
vitum ekkert hvemig sýnin voru
meðhöndluð, við hvaða aðstæður
þau voru geymd þar til þau komust
í rannsókn og hvort þau uröu fyrir
skemmdum á leiðinni. Hér verður
ekki selt kjötfars fyrr en það er
komiö á hreint hver er skýringin á
þessari slæmu útkomu," sagði Jón
aö lokum.
Fyrirtækið Matargæöi framleiðir
kjötfars fyrir aQar verslanir í Vest-
mannaeyjum og er það rekiö af
Magnúsi Bragasyni kjötiðnaðar-
manni. Magnús sagöist í samtali
við DV vera mjög óánægður með
að engin sýni voru tekin hjá hon-
um. Hann lét í ljósi efasemdir um
að rétt hefði verið að sýnatökuhni
staðiö.
„Ég vil benda á að allar verslanir
hér fá kjötfars úr sömu lögun á
hverjum degi. Síöan kemur í ljós í
könnuninni aö í Tanganum er allt
í lagi en á fjórum öðrum stöðum í
ólagi. Þetta fmnst mér benda til
þess að annaöhvort hafi veriö fariö
illa með sýnin eða þá að þetta sé
innanhússmál hjá þessum verslun-
um.“
Magnús sagðist fa regluiegar
heimsóknir frá heilbrigðisfulltrúa
og hefði ávabt fengiö gott eða mjög
gottfyrirhreinlæti. -Pá
Jóhannes Gunnarsson:
ingu og sölu vörunnar.
Saurkólígerlar geta komist í kjöt-
vöru hvar sem er á leiðinni frá slát-
urhúsi og þar til hún lendir í kæli-
borði verslana.
„Hér er um grafalvarlegt mál að
ræða,“ sagði Jón Magnússon, stjórn-
armaður í Neytendasamtökunum,
þegar niðurstöður von’ kynntar
fréttamönnum. Jón taldi að sú stað-
reynd að kannanir af þessum toga
kæmu yfirleitt illa út sýndi að mikil
þörf væri á að leggja meira fé í kann-
anir af þessu tagi. Hann taldi að
nauðsynlegt væri að fylgjast mun
betur með ástandi almennra neyslu-
vara hér á landi en gert er í dag.
-Pá
Þrjú af fjórum sýn-
um frá Sambandinu
í fjórum verslunum á höfuðborg-
arsvæðinu dæmdist kjötfars ýmist
gallað eða ósöluhæft vegna hás inni-
halds saurkólígerla. Þrjár af þessum
fjórum verslunum fá kjötfars sitt frá
Afurðasölu Sambandsins.
„Þessi tíðindi komu eins og reiðar-
slag fyrir mig,“ sagöi Skæringur Sig-
uijónsson, kaupmaður í Brekkuvali
í Kópavogi, í samtah við DV. „Ég
hlýt að telja að þessar niðurstöður
megi rekja til framleiðanda. Ég vil
benda á að nautahakkið, sem ég sel
og framleiði sjálfur, er haft í bakka
við hhðina á kjötfarsinu. Ef um væri
að ræða sóðaskap hér innanhúss þá
hefði það komið fram í nautahakkinu
sem það geröi ekki“.
Skæringur sagði að hann væri
hlynntur könnunum af þessu tagi en
átaldi það að ekki skyldu hafa verið
tekin sýni frá framleiðendum sama
dag og sýnin voru tekin úr verslun-
unum.
Neytendasíðan veit dæmi þess að
yfirborðssýni, sem tekin voru af
nautakjöti frá Sambandinu við af-
hendingu í verslun, reyndust vera
ósöluhæf.
„Við erum hér með rannsóknar-
stofu þar sem vinna tveir matvæla-
fræðingar og dýralæknir. Það er
fylgst með öllu hráefni og sérstaklega
kjötfarsi og tekin sýni af því að jafn-
aði tvisvar th þrisvar í viku,“ sagði
Kristján Kristjánsson, framleiðslu-
stjóri hjá Afurðasölu Sambandsins,
í samtali við DV. Hann taldi þetta
eftirht fullnægjandi auk þess sem
fylgst væri með niðurstöðum af eftir-
liti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í
verslunum.
Miðað við umsagnir allra sem mál-
ið varðar þá verður ekki annað séð
en það sé nokkur gahi á margum-
ræddri könnun Neytendasamtak-
anna að ekki voru tekin sýni frá
framleiðendumkjötfars. -Pá
Vísa þessu algjörlega á bug
- verða að leysa málin heima hjá sér
„Eg visa þessu algjörlega á bug,“
sagði Jóhannes Gunnarsson, for-
maöur Neytendasamtakanna, í sam-
tah við DV um aðfmnslur Vest-
mannaeyinga varðandi sýnatöku í
kjötfars- og nautahakkskönnun
Neytendasamtakanna.
„Sýnin frá Vestmannaeyjum fengu
nákvæmiega sömu meðferð og sams
konar sýni annars staðar af landinu.
Sýnin voru tekin og sett í kæli og
síðan send í kæhboxi daginn eftir til
Reykjavíkur og þetta er vel að
merkja nákvæmlega sams konar
meðferð og þau sýni, sem heilbrigðis-
fulltrúar taka úti á landi, fá. Ef eitt-
hvað væri athugavert við meðferðina
á sýnunum þá hefðu öll sýni frá Vest-
mannaeyjum verið í ólagi en svo var
ekki. Þeir verða að leysa þetta vanda-
mál heima hjá sér, það þýöir ekki að
benda á sökudólg hjá okkur,“ sagði
Jóhannes.
Könnunin sýnir að aðrir staðir úti
á landi, sem búa við svipaðar aðstæð-
ur og Vestmannaeyjar hvað varðar
samgöngur, komu mun betur út og
sums staðar vavástand^ýnanna með
því besta semn gerðist.
í samtali DV við framleiöanda kjöt-
farsins í Vestmannaeyjum kom fram
að verslanir, sem ekki selja upp dag-
skammt sinn af kjötfarsi, blanda
gamla kjötfarsinu saman við nýtt aö
morgni. Þessi staðreynd ásamt því
að kjötfarssýni úr Vestmannaeyjum
komu misvel út bendir ótvírætt til
þess aö hér sé um skort á hreinlæti
hjá einstökum verslunum í Vest-
mannaeyjum að ræða.
-Pá
Mengun frá
framleiöanda
Kjötfarssýni úr Miklagaröi, sem
tekið var th rannsóknar í margum-
ræddri könnun Neytendasamtak-
anna, var pakkað og verðmerkt hjá
Afurðadehd Sambandsins. Bakkar
með kjötfarsi koma inn í Miklagarð
á hverjum morgni og eru settir
beint í kæliborð í lokuðum ílátum.
Þvi virðist óyggjandi að saurkóh-
gerlamengun, sem fannst í sýninu,
megi rekja beint th framleiöand-
ans.
Hiö sama á viö um sýni frá fleiri
verslunum sem skipta við Sam-
bandiö og reyndust vera með hátt
gerlainnihald. Hið góöa innra eftir-
lit þess sem framleiöslustjórinn
lýsir hér annara staöar á síðunni
virðist því hafa brugðist.
-Pá