Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Qupperneq 50
50 MÁNUDAGUR 20. MARS 1989. Sviðsljós Ólyginn sagði... Margt var um manninn á Hótel Borg siðastliðið miðvikudagskvöld en þá stóðu Samtök íslenskra listanema fyrir skemmtikvöldi. DV-myndir S A dagskra Sali-kvoldsins var mikið um tónlist. Þrir ungir menn skemmtu áhorfendum með tónlist. Þeir eru Sigurbjörn Bernharösson, Haildór Hauks- son og Stefán Örn Arnarsson. Stefanía prinsessa Stefanía prinsessa af Mónakó, sem er kaþólskrar trúar, hyggst taka gyöingatrú. Ástæöan ku vera sú að tilvonandi eiginmaður prinsessunnar, hljómplötufram- leiöandinn Ron Bloom, er gyðing- ur. Stefania er aö sögn kunnugra haröákveöin í aö giftast Bloom, jafnvel þó aö þaö kunni að leiða til þess aö hún verði að afsala sér öllu tilkalli til krúnunnar í Món- akó. Madonna Söngkonan Madonna hefur nú tekið eiginmanninn, Sean Penn, í sátt á nýjan leik. Fyrir aðeins þremur vikum kom til handalög- mála milli þeirra hjóna meö þeim afleiöingum að Penn batt Ma- donnu fasta við stól og skildi þannig við hana í níu klukku- stundir. Kunnugir segja aö ástin blómstri nú sem aldrei fyrr og er aldrei að vita nema fjölgi í þeirri fjölskyldu fljótlega. Brooke Shields Brooke Shields hefur harðneitað að koma fram í kvikmynd með hjartaknúsaranum Mickey Ro- urke. Ástæðan er sú að hún þyrfti að fækka fótum. Margir, þar á meðal hin stranga móðir hennar, hafa reynt að tala stúlkuna til þar sem hlutverkið gæti fært Shields sömu frægð og kvikmyndin Níu og hálf vika færði kynbombunni Kim Basinger. En þrátt fyrir mik- inn þrýsting verður Shields ekki hnikað. Sali- skemmt- un lista- skóla- nema Listaskólarnir á Reykjavíkursvæð- inú héldu svokallað Sali-skemmti- kvöld á Hótel Borg síðastliðið mið- vikudagskvöld. Tilgangur þessa kvölds var að efla samstarf á milli hinna ýmsu listaskóla og kynna starfsemi þeirra. Það er Samband íslenskra listanema sem stóð fyrir þessu kvöldi og er ætlunin að endur- vekja þessa gömlu hefö. Það voru fjórir listaskólar á Reykjavikursvæðinu sem stóðu að Sali-kvöldinu á Borginni: Tónlistar- skólinn í Reykjavík, Leiklistarskóli íslands, Myndlista- og handíðaskóli íslands og Söngskólinn í Reykjavík. Mikil og góð stemning varð hjá áhorfendum sem fylltu hvert sæti á samkomunni. Svo góö aðsókn var að margir urðu að láta sér nægja sæti á gólfi salarins. Hver skóli stóð fyrir uppákomum á skemmtikvöldinu og mátti heyra og sjá ljóðalestur, söng, myndlistar- sýningu, tónlist og dans. Þá var einn- ig á dagskrá frumsamiö efni, tangó- leikþáttur sem saminn var og fluttur í samvinnu listanemenda úr öllum skólunum. Nemar úr Leiklistarskóla Islands fluttu stuttan leikþátt frá „dada-timbilinu“ viö mikinn fögnuö áhorfenda. Fremst á myndinni er Christine Carr, þá kemur Steinunn Ólafsdóttir og Helga Braga Jónsdóttir. Hin opinbera útvarpsstöð í íran hefur harðlega gagnrýnt ferðalag Karls Bretaprins og ektakvinnu hans, Díönu prinsessu, um Samein- uðu furstadæmin og fleiri arabalönd. í frétt útvarpsins var sagt að ferðalag hjónanna væri móðgun við múham- eðstrúarmenn þar sem það kæmi í kjölfar útgáfu bókarinnar Sálmar Satans eftir bresk-indverska rithöf- undinn Salman Rushdie. Ferðalag breska krónprinsins hundsar kröfur múhameðstrúar- manna í þessum efnum sagði í frétt útvarpsins. Leiðtogi írana hefur dæmt Rushdie til dauða vegna þess sem múhameðstrúarmenn segja vera móðgun við Múhameð spá- mann. En prinsinn og prinsessan hans Karl Bretaprins og Díana prinsessa virða hér fyrir sér hefðbundna arabíska máltíð í veislu sem haldin var þeim viröast ekki hafa litið þessa gagnrýni til heiðurs í Sameinuðu furstadæmunum. Simamynd Reuter mjög alvarlegum augum. Reuter Prinsinn gagnrýndur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.