Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1989, Qupperneq 52
52
MÁNUDAGUR 20. MARS 1989.
Menning
Sálumessa Mozarts
í Kristskirkju
„Getur þú sagt mér hvar Mozart
endar og Sussmayr byrjar?" Þann-
ig sþurði Jón Leifs einu sinni. Og
víst hafa margir spurt með honum
og hefur þó engum tekist að svara
með vissu. Það er vitað að Mozart
lauk að fullu aðeins við Kyrie og
Introitus. Hann gerði einnig kór-
raddir og tölusettan bassa að Host-
ias og átta fyrstu taktana í Lac-
rimosa. Uppkast samdi hann að
öðrum köflurn, mismikið að hverj-
um. En fjóra kafla vantaði alveg.
Sanctus, Benedictus, Agnus Dei og
Communio. Við texta þess síðasta
notaði Sussmayr tónlist Mozarts
úr Introitus og Kyrie. En Sanctus,
Benedictus og Agnus Dei segist
hann hafa samið algjörlega sjálfur.
Það vilja ýmsir draga í efa. Sérstak-
lega eiga menn erfitt með að trúa
því að hann hafi lokið Lacrymosa
og samið Agnus Dei með þessu
dularfulla og magnaða tema í bass-
anum. En Sussmayr hefur einnig
verið borið á brýn að hljómsveitar-
útsetningin sé ekki í stíl Mozarts.
Músíkin sé of leikhúsleg. „í seinni
hlutanum er eitthvert óperettu-
hugarfar, sem er í rauninni óþol-
andi þrátt fyrir yfirlýsta alvöru,"
sagði Jón Leifs. En hvað sem þessu
líður er allur fyrri hluti Sálumess-
unar meistaraverk og í seinni hlut-
anum glampar víða fram óvaent
snilld gegnum meðalmennskuna.
Söngsveitin Fílharmonía flutti
Sálumessuna um helgina í Krists-
kirkju undfr stjórn nýs stjórnanda.
Það er Úlrik Olason sem tók við
söngsveitinni síðastliðið haust.
Kammersveit Jék með og var kon-
Fílharmóníukórinn syngur Sálumessu. Myndin er tekin á æfingu.
Tónlist
Sigurður Þ. Guðjónsson
sertmeistari Szymon Kuran. Ein-
söngvarar voru Signý Sæmunds-
dóttir sópran, Þuríður Baldurs-
dóttir alt, Jón Þorsteinsson tenór
og Guðjón Grétar Óskarsson bassi.
Raddþjálfarar kórsins voru Margr-
ét Pálmadóttir og Sigurður Braga-
son, en píanóleikarar á æfingum
Vilhelmína Ólafsdóttir og Þóra
Fríða Sæmundsdóttir.
Því miður sat ég á mjög vondum
staö í kirkjunni. Ég var í hliðarsæt-
um bak við fagottleikarana í hljóm-
sveitinni. Þangað bárust hljóðin öll
einhvern veginn á skakk og skjön.
Einkanlega var erfitt að átta sig á
kórnum. Þó heyrði ég ekki betur
en hann væri býsna hljómfagur og
í ágætu jafnvægi. Einsöngvararnir
stóðu sig líka prýðilega nema hvað
samræmi raddanna í samsöngvum
þeirra var ekki alveg hnökralaust
á einstaka stað. En allar sólóstrófur
voru fyrsta flokks. Hljómsveitin
spilaði líka vel.
Þetta var reyndar ekki sérlega
dramatískur flutningur en mjög
vanvirknislegur og innilegur, lát-
laus og skýr. Og kom fallega frá
hjartanu. Áf þeim ástæðum skap-
aðist mikil andakt á tónleikunum.
Áheyrendur voru greinilega djúpt
snortnir.
Ég óska Úlrik Ólasyni og hans
liði til hamingju. Og megi verða
framhald af svo góðu.
Sigurður Þór Guðjónsson
Andlát
Guðný Sigmundsdóttir lést í Borgar-
spítalanum 17. mars.
Björn Guðmundsson, Klapparstíg 9,
Reykjavík, er látinn.
Una Guðmundsdóttir, Barmahlíð 53,
Reykjavík, lést föstudaginn 17. mars.
Jarðarfarir
Gunnar Gestsson pípulagninga-
meistari lést 11. mars sl. Hann var
fæddur í Reykjavík 7. ágúst 1921, son-
,wr hjónanna Helgu Loftsdóttur og
Gests Guðmundssonar. Gunnar
starfaði lengst af við pípulagnir,
ýmist sem sjálfstæður atvinnurek-
andi eða hjá öðrum. Eftirlifandi eig-
inkona hans er Rósa Guðmunds-
dóttir. Þau hjónin eignuðust flögur
börn.
-Þuríður Sigmundsdóttir lést 13. mars
sl. Hún var fædd 1. mars 1922. For-
eldrar hennar voru hjónin Svava
Björnsdóttir og Sigmundur Jóhanns-
son. Áriö 1973 réöst hún til starfa á
fóðurdeild Globus hf„ því starfi
gegndi hún í um það bil 5 ár eða
þangað til Globus hætti sölu og dreif-
ingu á fóðurvörum. Þá tók hún að
sér símavörslu fyrir fyrirtækið, sem
hún gegndi allt til dauðadags. Hún
giftist Þóri Högna Bergsteinssyni en
hann lést árið 1980. Þau hjónin eign-
uðust þrjú börn. Útfór Þuríðar verð-
ur gerð frá Dómkirkjunni í dag kl.
13.30.
Hún var fædd 29. september 1895 að
Brimnesi í Ólafsfirði. Foreldrar
hennar voru Björn Hafliðason og
Engilráð Einarsdóttir. Ólöf var tví-
gift. Fyrri maður hennar var Guð-
mundur Jónsson en hann lést áriö
1927. Síðari maður hennar var Haf-
liöi Eiríksson en hann lést fyrir
nokkrum árum. Ólöf lætur eftir sig
Qögur börn á lífi, auk fóstursonar.
Útfór hennar verður gerð frá kirkju
Fíladelfíusafnaðarins í dag kl. 13.30.
Rósa Kolbeinsdóttir, Hjaltabakka 30,
verður jarösungin frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 21. mars kl. 13.30.
Útfór Maríu Magnúsdóttur, Lindar-
braut 45, Seltjarnarnesi, sem lést í
Borgarspítalanum 12. mars, fer fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðju-
daginn 21. mars kl. 10.30 f.h.
Áslaug Guðjónsdóttir, Hrafnistu,
Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 21.
mars kl. 15.
Þuríður Guðjónsdóttir, sem lést 15.
þ.m., verður jarðsungin frá Akranes-
kirkju þriðjudaginn 21. mars kl. 11.
Guðmundur Kjartansson lést laugar-
daginn 11. mars. Jarðarfórin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Stefán Jónsson arkitekt verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík þriðjudaginn 21. mars kl. 13.30.
Ulla-Lill Skaptason, Snekkjuvogi 17,
verður jarösungin frá Langholts-
kirkju miðvikudaginn 22. mars kl.
10.30.
Útför Arndísar Stefánsdóttur, Stóra-
gerði 38, fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 22. mars
kl. 13.30.
Þorgeir Þorleifsson frá Þverlæk,
Byggðarholti 21, Mosfellsbæ, verður
jarðsunginn frá Lágafellskirkju
þriðjudaginn 21. mars kl. 14.
Ingibjörg Ásmundsdóttir, Kleppsvegi
6, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag, 20. mars, kl.
13.30.
Tórúeikar
Gítartónleikar í
íslensku óperunni
Mánudaginn 20. mars kl. 20.30 verða
haldnir gítartónleikar í íslensku óper-
unni í tilefni af sextugsafmæli Gunnars
H. Jónssonar, gítarleikara og kennara.
Flytjendur á tónleikunum eru Arnaldur
Amarson, Einar Kr. Einarsson, Erik Júl-
íus Mogensen, John Speight, Kristinn H.
Ámason, Robyn M. Koh og Símon H.
ívarsson. Leikin veröa verk eftir Hróð-
mar Sigurbjörnsson, John Speight, Mario
Castelnuovo-Tedesco, John Dowland,
Manuel Ponce, Vicente Sojo, Fernando
Sor, Joaquin Turina og Hector Villa-
Lobos.
Fundir
Kvenfélagið Seltjörn
verður með páskafund í félagsheimilinu
á Seltjarnarnesi á morgun, þriðjudag 21.
mars, kl. 20.30. Kristín Gestsdóttir heim-
ilisfræðikennari verður með sýni-
kennslu.
Fyrirlestrar
Háskólafyrirlestur
Dr. Frederic Amory, prófessor í ensku
og almennum málvísindum við Háskól-
ann í San Fransisco í Kaliforníu, flytur
opinberan fyrirlestur í boði Heimspeki-
deildar Háskóla íslands mánudaginn 20.
mars kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlest-
urinn nefnist: „Loaded Words, Ominious
Silences, and Violence in the Sagas“, og
verður fluttur á ensku. Fyrirlesturinn er
öllum opinn.
Námskeiö
Nýtt námskeið fyrir ungt fólk
Ákveðið hefur verið að halda í Kennara-
skóla íslands námskeið í stærðfræði þar
sem notuð verða tölvuforrit, forritunar-
málið Logo og vasareiknar. Námskeiðið
er fyrir nemendur í 5.-7. bekk gmnn-
skóla. Kennsluna annast nemendur í
stærðfræðivah við skólann í samvinnu
við Önnu Kristjánsdóttur dósent. Þeir
sem áhuga hafa skrái sig hið allra fyrsta
á skrifstofu Kennaraháskólans, sími
688700, þar sem einnig eru gefnar nánari
upplýsingar. Kennt verður í tveimur hóp-
um og verður annar á mánudögum og
miðvikudögum frá kl. 17-19 en hinn á
sama tíma á þriðjudögum og fimmtudög-
um.
Smáaug/ýsingadei/d
verður opin um páskana
sem hér segir:
Miðvikudag 22. mars
kl. 9-18.
Mánudag 27. mars
(annan í páskum)
kl. 18-22.
LOKAÐ
Skírdag, föstudaginn langa, laug-
ardag 25. mars og páskadag.
ATHUGIÐ
Síðasta blað fyrir páska kemur út
miðvikudaginn 22. mars.
Fyrsta blað eftir páska kemur út
þriðjudaginn 28. mars.
GLEÐILEGA PÁSKA
SMÁ -augiýsingadeild,
Þverhoiti 11 - Sími 91-27022.
Hugsum f ram
- -- /'V'U.- í./Æ
sv m £ Mff
^ /if/'i>
>¥'-■
á veginn!
Hraðakstur
er orsök margra
slysa. Miðum hraða
alltaf við aðstæður,
m.a. við ástand vega,
færð og veður.
Tökum aldrei
áhættu! ||umferðar
Hámarkshraði
er ávallt miðaður við
bestu aðstæður
í umferðinni.
yUMFERÐAR
RÁÐ