Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Síða 40
48
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1993
Iþróttir
Vilhjálmur
Einarsson
Vilhjálmur Einarsson, skóla-
meistari Menntaskólans á Egils-
stöðum, sló í gegn árið 1956 þegar
hann steig fyrstm- íslendinga á
verðlaunapall á ólympíuleikum
og það hefur aðeins einu sinni
verið leikið eftir. Hann hlaut silf-
ur í þrístökki í Melboume, stökk
16,26 metra, sem var ólympíumet
í klukkustund.
Vilhjálmur varð síðan í 5. sæti
á ólympíuleikunum í Róm árið
1960 og fyrr á því ári jafnaði hann
gildandi heimsmet í þrístökki,
stökk 16,70 metra á meistaramóti
íslands.
„Það sem stendur upp úr þegar
ég horfi til baka er verðlaunapall-
urinn í Melbourne. Það var stór-
kostlegt og jafnframt óvænt og
ég hafði ekki áttað mig til fulls á
því fyrr en ég kom heim til ís-
lands og menntamálaráðherra
tók á móti mér. En það gildir
bæði um það og þegar ég stökk
16,70 metra að þetta voru léttustu
stökk mín á ferlinum. Þegar best
tekst til er allt svo auðvelt," sagöi
Vilhjálmur við DV.
Lokapunkturinn á ferh Vil-
hjálms var síðan 5. sætið á Evr-
ópumeistaramótinu 1962 en í des-
ember það ár ákvað hann að
hætta keppni. „Ég var farinn að
kenna á Bifröst, fjölskyldan fór
stækkandi og ég fann til vanmátt-
ar gagnvart erlendum keppinaut-
um mínum sem höfðu afit aðra
og betri aðstöðu en ég.“
Vilhjálmur hlaut fyrstur titil-
inn „íþróttamaður ársins" og var
sæmdur honum fimm sinnum á
sex árum, frá 1956 til 1961, og
hefur enginn hlotið hann oftar.
Vilhjálmur, sem var skólastjóri
í Reykholti frá 1965 og hefur ver-
ið skólameistari á Egilsstöðum
frá 1979, hefur lítið lagt stund á
íþróttir frá því hann hætti. „Ég
hef þó talsvert stundað sund, þá
íþróttagrein sem ég kynntist fyrst
fyrir alvöru sem bam, og þá sér-
staklega í seinni tíð. Síðan fylgist
ég vel með því sem gerist, ég er
alæta á íþróttir í sjónvarpi og
horfi sérstaklega á beinar útsend-
ingar. Ég nýt þess að vera austur
á landi en um leið áhorfandi að
því sem gerist á Wembley og ann-
ars staðar í heiminum," sagði
VilhjálmurEinarsson. -VS
Lukkuhjól HM snýst í Las Vegas annað kvöld:
Allir vilja f orðast
Dallas og Orlando
- og Norðmenn eru liðið sem fæstir vilja mæta
Las Vegas, borgin í eyðimörkinni, er
heimsfræg fyrir spilavíti sín og þang-
að streymir fólk úr öllum heims-
homum til að freista gæfunnar. Á
sunnudagskvöldið beinist athygh
heimsbyggðarinnar að Las Vegas og
lukkuhjólunum, sem að þessu sinni
ráða því hvaða lið leika saman í riðl-
um í úrshtakeppni heimsmeistara-.
mótsins í knattspyrnu sem haldið er
í Bandaríkjunum næsta sumar.
Þar mæta 24 útvalin hð til leiks, 22
sem barist hafa hart fyrir sæti sínu
í forkeppni, heimsmeistarar Þýska-
lands og svo að sjálfsögðu gestgjaf-
amir, Bandaríkjamertn.
Enginn vill leika í
Dallas eða Orlando
Spennan er mikil, alhr bíða í ofvæni
eftir því hverjir mótheijar þeirra
verða en líka eftir því í hvaða borgum
þeir þurfa að spha. Þar getur lofts-
lagið ráðið miklu um möguleika Uð-
anna og flestir virðast óttast tvær
borgir, Dahas í Texas og Orlando í
Flórída. Þar gætu hiti og raki orðið
erfiðari mótheijar en sjálfur and-
stæðingurinn á knattspymuvellin-
um.
Sjálfir Brasihumenn óttast mest að
þuifa að leika í Orlando. Þjálfari
þeirra, Carlos Alberto Parreira, segir
reyndar borgina hafa einn kost, þar
búi margir Brasihumenn. Hins vegar
sé alltof heitt og rakastigið um 95
prósent auk þess sem leikir þar fari
fram á hádegi vegna sviptivinda sem
jafnan gangi yfir svæðið síödegis.
Hann vih helst leika í Washington
eða Boston og sama er að segja um
nágranna hans frá Argentínu.
Margir smeykir
við Norðmenn
Parreira er lika smeykur við þrjú Uð-
anna úr fjórða og neðsta styrkleika-
flokknum, Noreg, Svíþjóð og Sviss.
„Það yrði hrikalegur riðih þar sem
bæði Kamerún og Noregur myndu
lenda,“ segir Parreira. Jack Charl-
ton, þjálfari íra, óttast mest að fá
Noreg eða Sviss í sinn riðh og ítalir
hafa líka sagt að þeir vhji forðast að
mæta Norðmönnum.
Þá er Kólombía það Uð í 2. styrk-
leikaflokki sem flestir eru hræddir
við. Parreira vUdi ahs ekki mæta
Þjóðverjar (í bláu) og Bandarikjamenn vita hvar þeir leika í fyrstu umferð
HM en aðrir bíða í ofvæni eftir drættinum í Las Vegas annað kvöld.
:
Kólombíu og verður aö ósk sinni
vegna nýrra reglna varðandi drátt-
inn.
Sviss viil Brasilíu
en ekki Bandaríkin
Roy Hodgson, hinn enski þjálfari
Svisslendinga, tekur í sama streng
og Parreira og vih forðast DaUas og
Orlando. Hann hefur hins vegar mik-
inn áhuga á að lenda í riðli með Bras-
ihumönnum en vih ekki mæta
Bandaríkjamönnum og segir að Uð
þeirra sé mjög vanmetið, sérstaklega
á heimavelh.
Talsmaður Alþjóöa knattspymu-
sambandsins, Guido Tognoni, viður-
kennir að það verði erfitt að spUa í
umræddum borgum, sérstaklega
Dallas. „Hiti og raki verða verstu
óvinimir en þetta er sama vandamál
í öUum heimsmeistaramótum og við
eram vanir sífeUdum kvörtunum frá
þjálfurum. Það var heitt á ítaUu, í
Mexíkó og á Spáni, þetta er bara eitt
af því sem fylgir HM,“ segir Tognoni.
Þjóðverjar í Chicago
Þjóðveijar og Bandaríkjamenn þurfa
ekki að velta sér upp úr áhyggjum
af leikstað því ljóst er hvar þeir spila
í fyrstu umferð. Þjóðveijar leika tvo
fyrstu leiki sína í Chicago en þurfa
síðan að fara til DaUas í einn leik.
Bandaríkjamenn verða með sinn
heimavöll í Los Angeles.
ítalir vonast eftir því að leika í New
Jersey og era svo vissir um það að
þeir era byijaðir að svipast um eftir
hóteh og æfmgaaðstöðu á svæðinu.
írar vUja helst spUa í Boston en þar
búa fjölmargir landar þeirra og ljóst
er aö gífurleg stemning yrði á leikj-
um írlands þar.
Eins og fram kom 1 DV í gær er
Uðunum 24 skipt í fjóra styrkleika-
flokka sem þó era frekar byggðir á
landafræði en styrk og eitt Uð úr
hveijum flokki er dregið í hvem riðl-
anna sex. Þó geta Uð frá Suður-
Ameríku ekki lent saman í riðU, ekki
heldur Bandaríkin og Mexíkó og að-
eins einn riðUl veröur með þremur
Uðum úr Evrópu. Flokkarnir, sem
dregið veröur úr í Las Vegas annað
kvöld, era þannig skipaðir:
1. flokkur: Þýskaland, Bandaríkin,
Argentina, Belgía, BrasUía og ítaha.
2. flokkur: Kamerún, Marokkó,
Nígería, BóUvía, Kólombía og Mex-
íkó.
3. flokkur: Spánn, Rússland, írland,
Rúmenía, HoUand og Búlgaría.
4. flokkur: Suður-Kórea, Saudi-
Arabía, Svíþjóð, Noregur, Grikkland
og Sviss.
Betri dómgæslu lofað
Talsmenn FIFA hafa lofað því að
dómgæsla verði betri í Bandaríkjun-
um en áður á HM. Stærsti Uðurinn
í því er aö vera með sérhæfða línu-
verði í stað þess að nota bestu dómar-
ana í þær stöður. Þijátíu dómarar
hafa verið valdir tíl undirbúnings
fyrir keppnina og af þeim verða 22
tilefndir í mars til að dæma.
Þá hefur FIFA tilkynnt að í fyrsta
skipti veröi útnefndur besti mark-
vörður keppninnar. Sá hlýtur Jas-
hin-bikarinn sem gefinn er til heið-
urs Lev Jashin, hinum frábæra
markverði Sovétmanna frá því á
sjötta og sjöunda áratugnum sem lést
fyrir fáum áram.
-VS
Plús vikunnar fær hand-
knattleiksmaðurinn Jón Þór-
ir Jónsson sem sýndi einstök
tilþrif í bikarleik Selfyssmga
við Aftureldingu á miðviku-
dagskvöldið. Hann skoraði
eUefu skrautleg mörk og hélt
í leiðinni sýnikennslu í
hvernig á að fagna þeim!
MÍNUS
Mínus vikunnar fá stuðnings-
menn handknattleiksUös Aft-
ureldingar í Mosfellsbæ. Þeir
sýndu leikmönnum Selfoss
fáheyrða óvirðingu í bikarleik
Uðanna með óviðeigandi
hrópum þegar einhver þeirra
meiddist.
íþróttamaður vikuimar
Davíð Grissom
- maðurinn á bak við góðan sigur KR-inga á Haukum
Davfð Grissom er lykilmaður hjá
KR-lngum í vetur.
Davíð Grissom, körfuknattleiks-
maður úr KR, er íþróttamaður vik-
unnar að þessu sinni. Davíð hefur
leikið mjög vel með KR-ingum í
vetur og um síðustu helgi var hann
maðurinn á bak við góðan útisigur
þeirra á Haukum, skoraði 29 stig
og tók fjölda frákasta. Hann er ann-
ar stigahæsti íslendingurinn í úr-
valsdeildinni, hefur skorað 20,6 stig
að meðaltali í vetur, og alls 268 stig
í 13 leikjum KR-inga.
Davíð er frá Bandaríkjunum en
hefur verið búsettur á íslandi í
fimm ár, á hér fjölskyldu og fékk
ríkisborgararétt fyrir ári. Hann lék
fyrst með Reyni úr Sandgerði en
síðan Val, KR og Breiðabliki, og
fyrir þetta tímabil gekk hann til
hðs viðKRá ný.
Guðni Guðnason, fyrirhði KR-
inga, segir að það hafi verið gífur-
legur síyrkur fyrir þá að fá Davíð
í hópinn. „Hann hefur leikið mjög
vel í vetur, skorar grimmt og tekur
mikið af fráköstum og við væram
í verri málum ef hans nyti ekki
við. Davíð er með góð skot og mik-
inn stökkkraft og þar sem hann er
hávaxinn er erfitt að stöðva skotin
hans. Þetta nýtist honum líka vel
í fráköstunum. Það sem Davíö
mætti helst bæta er að vera jafn-
ari, hann á það til að týnast þegar
hður á leikina," sagði Guðni.
Þótt Davíð sé orðinn íslendingur
er ekki fyrirsjáanlegt að íslenska
landshðið fái notið krafta hans.
Hann þarf að sækja sérstaklega um
leyfi til Alþjóða körfuknattleiks-
sambandsins, og síðan að bíða í
þrjú ár. Um þetta leyfi hefur enn
ekki verið sótt og þar sem Davíð
er orðinn 29 ára gamah er ólíklegt
að hann eigi eftir aö leika með
landshðinu. Það er synd því þar
mætti svo sannarlega nýta kraíta
hans. -VS