Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Qupperneq 53
mm
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1993
61
dv_______________________________Menning
Barokk í Laugameskirkju
Tónleikar voru sl. fimmtudagskvöld í Laugar-
neskirkju. Þar lék hópur hljóðfæraleikara sem
hefur lagt sig eftir að flytja foma tónlist á hljóð-
færi sem talin eru vera eins og þau sem notuð
voru er tónlistin var samin. Camilla Söderberg
og Ragnheiður Haraldsdóttir léku á blokkflautu,
Martial Nardeau og Guðrún S. Birgisdóttir á
barokkflautu, Peter Tompkins á barokkóbó,
Svava Bemharðsdóttir á barokkfiðlu, Judith
Þorbergsson barokkfagott, Ólöf Sesselja Óskars-
dóttir á víóla da gamba og barokkselló, Snorri
Öm Snorrason teorba og Elín Guðmundsdóttir
á sembal. Á efnisskránni voru verk eftir Franco-
is Couperin, Georg Phihpp Telemann, Johann
Christian Bach og Jean Baptiste Loeiliet.
Eitt af því sem einkennir barokktónlist er hve
handverk tónsmíðanna, ef svo má að orði kom-
ast, er á háu stigi. Svo virðist sem tónskáld
þeirra tíma hafi yfirleitt verið mjög vel að sér
um öll þekkingaratriði tónsmíðanna og lagt sig
fram mn að ná góðri þjálfun í beitingu þeirra.
Mörg barokktónskáld náðu miklum afköstum
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
og voru fljót að semja verk með óaðfinnanlegu
handbragði. Hins vegar getur brugðið til beggja
vona með listrænt innihald. Verkin á þessum
tónleikum bám þessa alls merki. Concert Royal
eftir Couperin og Tríósónata í B dúr eftir Tele-
mann em iipurlegar og fagmannalega gerðar
tónsmíðar sem skilja hins vegar htið eftir í huga
áheyrandans. Kvintett Johanns Christians
Bachs er hins vegar bæöi tæknilega vel gert
verk auk þess sem það hefur töluvert hstrænt
ágæti. Það stendur á mörkum barokks og klas-
síkur og hefur í sér frækom hins glaðlega yndis-
þokka sem átti eftir að blómstra m.a. hjá Moz-
art. Kvintett Loeiliets hefur einnig hinn rétta
neista. Það verk minnir svohtið á Corelh þar
sem tveir dúettar fléttast saman í lipran kontra-
punkt.
Flutningurinn á þessum tónleikum var vand-
virknislegur og og vel útfærður. Einleikaramir
stóðu sig yfirleitt með prýði og stundum með glæsi-
brag og samleikur var sannfærandi. Hin gömlu
hljóðfæri nutu sín vel og sköpuðu gott andrúmsloft.
SEIKO dömuúr
Pressage, á
frábæru verðí.
Gyllt, yatns- og
m. góð gylling
og heft gler
SUKO dömuúr
pressage, á
frábæru verði,
tvílit, vatns- og
höggþétt. 100
m. Stál, góð
gylling og hert
gler.
SEIKO dömuúr
'Á í
á frábæru
verði með
brúnni kálf-
skinnsói, hertu
gleri og góðri
gyllingu.
SEIKO herraúr
Chronograph á
frábæru verði,
leðuról, góð
gylling, hert
gler, skeið-
klukka. Vekj-
ari og niður-
LORUS herraúr
Chronograph
tískuúfjðfár.
Skeiðklukka,
vekjari, niður-
teljári, daga-
tal, 2 tímar.
frábæri verð.
r m/M M e r
AXEL EIRIKSSON
ÚRSMIÐUR
ÁlfabakkQ 16, Mjódd
Aðalstræti 22, ísafirði