Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1993, Page 63
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1993
71
Fréttir
Rassía hjá bragglöggum í gær:
Tveimur landaverksmiðj um lokað
- til stóð að loka þeirri þriðju
Lögreglumenn í Hafnarfiröi og
Reykjavík réöust inn á tvo staöi í
gærkvöld og lögðu hald á landa,
gambra og suðutæki. Til stóð að
fara á þriðja staðinn í gær en ekki
fékkst staðfest hvort af því varð
þegar blaðið fór í prentun.
Lögreglumenn í Hafnarfirði létu
til skarar skríða í Garðabæ á heim-
ib tæplega 50 ára fjölskyldukonu.
Þar var lagt hald á um 40 lítra af
landa í vínflöskum og stórum kút-
um. Einnig var lagt hald á nokkuð
frumstæðar suðugræjur, gamlan
hangikjötspott sem átt hafði verið
við. Að sögn Gissurar Guðmunds-
son, rannsóknarlögreglumanns í
Hafnarfirði, voru tækin engu að
síður afkastamikil. Þá var einnig
lagt hald á 40 lítra af gambra á sama
stað.
Tæplega 50 ára gömul kona við-
urkenndi eign á hinu haldlagða en
ekki að hafa selt framleiðsluna.
Hún hefði verið notuð til vöru-
skipta.
Gissur segir að handtakan hafi
farið fram í samvinnu við lögregl-
una í Breiðholti.
Þá fór lögreglan í Grafarvogi í
hús í hveríinu og lagði hald á 20 til
30 htra af landa á staðnum. Lítil
tæki, sem auðvelt er að flytja á
milli húsa, höfðu verið flutt í hús
í Kópavogi og getur lögreglan sér
til að mikil umfjöllun um aðgerðir
gegn bruggurum í DV hafi skapað
ótta bruggaranna.
Tvær stúlkur um tvítugt voru
yfirheyrðar vegna málsins og stóðu
yfirheyrslur enn yfir þegar blaðið
fór í prentun. Þetta mál var einnig
unnið í samvinnu við Breiðholts-
lögreglu
Eins og fyrr segir stóð til að fara
í þriðja húsiö.
-PP
____________________Menning
Kvöldlokkur í
Kristskirkju
Blásarakvintett Reykjavíkur lék á tónleikum í Kristskirkju ásamt Peter
Tompkin, óbó, Sigurði I. Snorrasyni, klarinett, Rúnari Vilbergssyni, fag-
ott, Bimi Th. Árnasyni, fagott, og Þorkeh Jóelssyni, hom. Meðhmir Blás-
arakvintettsins em Bemharður Wilkinsson, flauta, Daði Kolbeinsson,
óbó, Einar Jóhannesson, klarinett, Hafsteinn Guðmundsson, fagott, og
Josef Ognibene, horn. Á efnisskránni voru verk eftir Johann N. Hum-
mel, Charles F. Gounod, og Wolfgang Amadeus Mozart.
Verkin á efnisskránni vora öh fyrir átta eða níu tréblásara. Fyrst var
leikinn Octet Partita eftir Hummel sem er mjög hpurlega gert verk og
minnir oft á Mozart. Skiptast oft á kaflar með stöðugum hljómagangi og
aðrir þar sem oftar er skipt um hljóma og hljómagangurinn er gerður
óstöðugri. Tekst höfundi með þessu að skapa skemmtilegar andstæður
án óþarfra átaka. Petite symphonie eftir Gounod er einnig mjög áheyri-
legt verk. Stíhinn er kurteislega rómantískur. í hljómfræðinni er mikið
notað af aukasætum án þess þó að hún verði sláandi smástíg. Stefja-
meðferð er mjög skýr og áheyrileg og verkið hefur einkar persónulegan
svip sem gerir það minnisstæðara en ella. Síðasta verkið á efnisskránni
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
var eftir snhhnginn sjálfan, Mozart. Það er ekki auðvelt að gera sér fylli-
lega grein fyrir aðdráttarafli verks eins og Serenade í c-moh K 388. Yfir-
borðið er glaðvært og áhyggjulaust en undir niðri má heyra þungan harm
sem glæsileikinn nær ekki að fela. Þriðji kaflinn, Menuetto in canone,
er svohtið sérkennhegur. Þar skrifar Mozart kontrapunkt í fornum sth
en því bregður ekki oft fyrir í verkum hans. Að vissu leyti gefur þetta
menúettinum aukna formlega þýðingu þar sem kaflinn stendur í mun
sterkari andstöðu við annað efni og eykur spennu mihi þátta. Verkið er
fráhær hstasmíð og ekki að undar þótt blásarar hafi það í hávegum.
Tréblásaraoktett er skemmthega fullkominn hljóðfærahópur: Hann get-
ur eiginlega gert flest það sem hljómsveit þarf að gera, hvað varðar radda-
fjölda, styrksvið og litafjöld. Þess utan býður hann upp á nákvæmni
kammerhópsins þegar góðir spharar era í fór. Þessir kostir komu mjög
vel fram í gærkvöldi enda var flutningurinn fyrsta flokks. Mátti heyra
fjölbreytt blæbrigði í styrk, ht og tíma af því taginu sem best prýðir góð-
an flutning kammertónhstar auk þess sem öryggiVar fullkomið.
„Út í heim á nœstu leigu“
Vinningshafar í 6. drætti 16. desember
1. Ferðfyrir 2 til Glasgow Halldór Ibsen, Frostafold 151, Reykjavík
2. Ferð fyrir 1 til Lúxemb.: Alda Guðjónsd., Illugagata 3, Vestmeyjum
3. Ferð fyrir 1 til Hamborgar: Elvar Ólafsson, Vesturberg 70,'Reykjavík
4. Ferð fyrir 1 til London: Axel Þórisson, Skólastíg 8, Stykkishólmi
5. Ferð fyrir 1 til Amsterdam: ina Hrund isdal, Fífuhvammi 39, Kópav.
6. -15. Gjafakörfur frá Coke/Maarud og Nóa & Síríusi
Coke & Maarud
Coke & Maarud
Coke & Maarud
Coke & Maarud
Coke & Maarud
Nói & Síríus
Nói & Síríus
Nói & Síríus
Nói & Síríus
Nói & Síríus
Guðlaugur Magnússon, Gríshóli, Helgafellssveit
Sigríður Sigurðardóttir, Sigtúni, Mosfellsbæ
Steinunn Þorsteinsd., Hraunbæ 46, Reykjavík
Sigríður Guðbrandsd., Hvassaleiti 155, Rvík
Sóley Sturlaugsdóttir, Þangbakka 8, Reykjavík
Eggert Þór Ólason, Blönduhlíð 29, Reykjavík
Katrín Ósk Ómarsdóttir, Móasíðu 4f, Akureyri
Kristján Guðjónss., Bergþórugata 15a, Rvk
Sigurlín Lára Þorsteinsd., Fannafold 185, Rvk
Jóhannes Kristjánsson, Dofrabergi 11, Hf.
Það má geta þess að vinningarnir verða sendir til viðkom-
andi vinningshafa.
Þórður Guðjónsson fékk í gær afhentan gullskó Adidas en hann var markakóngur fyrstu deildarinnar í knatt-
spyrnu 1993 og skoraði 19 mörk fyrir ÍA. Óli Þór Magnússon, ÍBK, fékk silfurskóinn og þeir Haraldur Ingólfsson, ÍA,
og Helgi Sigurðsson, Fram, fengu bronsskó. DV-mynd Brynjar Gauti
Flutningabifreið ók í fyrrinótt á
ungt hreindýr skammt frá Al-
mannaskarði, Lögreglan á Höfn
aflífaði dýrið og afhausaði.
Skrokknum var; brennt en Iiaus-
inn sendur suður th Reykjavíkur
til nmnsóknar. Engar skemmdir
uröu á ökutækinu.
Fjögur iunbrot
Brotist var inn á fjórum stöðum á
löggæslusvæði lögreglunnar á Sel-
fossi í fyrrinótt.
Tahð er að sömu menn hafi verið
á ferð í öhum innbrotunum og þeir
trúlega haft um 100 þúsund upp úr
krafsinu. Litlar skemmdir vora unn-
ar á stöðunum og er máhð enn óupp-
lýst.
-pp/kaa
— j
Handtekinn við komu til landsins
Maður á þrítugsaldri var handtek- skjalafals. Hann var fluttur th yflr-
inn við komuna th landsins í fyrra- heyrslu hjá RLR og var sleppt að
kvöld. Samkvæmt heimildum DV er þeim loknum.
maðurinn eftirlýstur fyrir þjófnað og -pp
Samkort
KORTHAFAR
fá 15% afslátt eins og þeir sem greiða smáauglýsingar út í hönd
með beinhörðum peningum. Það eina sem þú þarft að gera er
að hringja og smáauglýsingin verður færð á kortið þitt. Það er
gamla sagan: Þú hringir, við birtum og það ber árangur!
Smáauglýsingadeild DV er opin:
Virka daga kl. 9.00-22.00
Laugardaga kl. 9.00-16.00
Sunnudaga kl. 18.00-22.00
Athugið:
Auglýsing í helgarblað PV þarf að berast
fyrir kl. 17.00 á föstudag.
SMÁAUGLÝSINGAR
» •
SÍMI 63 27 OO