Dagur - 12.02.1968, Side 32
Valtýr Kristjánsson.
ályktana gerðar. Helztu verkefni Kjör-
dæmissambands Framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra eru þessi:
Vinna að áhugamálum Framsóknar-
manna og reyndar allra íbúa kjördæmis-
ins, þeim sem til framfara horfa. Undir-
búa framboð til Alþingis og skipuleggja
kosningabaráttu flokksins í kjördæminu.
Glæða og skipuleggja starf Framsóknar-
félaganna í héruðunum. Tekjur hefur
sambandið mjög takmarkaðar og hefur
því ekki enn getað sinnt erindis- og út-
breiðslustarfi sem skyldi. Þó hefur af
og til verið veitt aðstoð við rekstur skrif-
stofu flokksfélaganna á Akureyri og
lítilsháttar stuðningur við Dag fyrir
kosningar. Eins og allir vita, sem _til
þekkja, nær Norðurlandskjördæmi
eystra yfir Þingeyjarsýslur báðar, Eyja-
fjörð og Akureyri. Nánar tiltekið frá
Gunnólfsvíkurfjalli að Hvanndalabjargi
norðan ■ Olafsfjarðar. Það má því með
sanni segja að landamerkjaverðir séu
veglegir og ekki hætt við hruni.
Ekki eru þó útverðirnir einir um það
að vera veglegir í þessum víðáttumikla
landshluta. Veðurbitnir tröllkarlar eins
og Gunnólfsvíkurfjall og Hvanndala-
bjarg eru skemmtileg í fjarlægð, en
vantar mýkt og manngæzku. En sem
betur fer vantar þetta hérað ekki alla
mýkt og manngæzku. Hið græna gras er
fegurst af öllu, meðal annars vegna þess
að það er lífgjafinn. Leiðin að hjarta
mannsins liggur í gegnum magann, og
ekki er að því hlæjandi. Þegar hinn
framandi gestur spyr börnin í Sumar-
32 DAGUR 50 ÁRA
Haraldur M. Sigurðsson.
húsum í þokusudda égústmánaðar, hvort
sé fallegt hérna í dalnum, þá svarar
Nonni litli, sem var svo skynsamur:
„Það er nú eftir því hvort hann pabbi
hirðir heyið.“
Já við eigum mikið af grænu grasi og
höfum mikla möguleika á að auka það,
þó þar sé eins og í fleiru við örðugleika
að etja, þegar við erum stundum all-
harkalega minnt á það að við höfum
ekki enn náð samningum við fóstur-
jörðina um það að hún hætti að aga
okkur með sín ísköldu él, en bót er það
í máli að hún á þó til blíðu og meinar
allt vel. Gunnólfsvíkurfjall og Hvann-
dalabjarg standa traustan vörð um vítt
land og fegurt, sem á ærinn auð, ef við
kunnum að nota hann og við skulum
nota hann og vernda, auka og bæta,
bæði til lands og sjávar. Við skulum
vera þakklát fyrir að eiga alla þessa
miklu möguleika og óleystu verkefni og
vona að vel rekist úr verkefnum. Sá sem
á óskina, hann á líka vonina og þár með
möguleikann til að verða að liði sjálfum
sér og sinni þjóð. Sleppum aldrei von-
inni og óskinni, jafnvel þó hún kosti
okkur kaldsama nótt í dögg miðnætur-
sólarinnar á Jónsmessu við Harðbak eða
Rif. Það er ósk F.F.N.E. til allra íbúa
Norðurlandskjördæmis eystra að við
vinnum að vexti og viðgangi okkar fagra
og víðlenda byggðarlags, svo við höfum
í fullu tré við aðra landshluta, sem nú
um sinn hafa boðið betri kjör og haft
af okkur fólk og fé. „Eigi mun skuturinn
eftir liggja, ef vel er róið fram í,“ sagði
Hjörtur E. Þórarinsson.
Grettir Ásmundarson og mátti trútt um
tala. Ekki skulum við treysta því að
þjóðarskútan geti ekki liðast sundur, ef
stórir hlutar hennar eru vanræktir, og
tekur þá tjónið til allra. Og við skulum
engir taglhnýtingar vera og segjum því:
Ekki mun skutur eftir liggja, þó vel sé
róið fram í.
Eitt af okkar verkefnum er einmitt
það að efla gengi og velferð afmælis-
barnsins, Dags, sem fyllir nú fimmta
tuginn.
Kjördæmissamband Framsóknar-
manna í NorðUrlandskjördæmi eystra
flytur hér með Degi fimmtugum árnað-
aróskir og þakkir fyrir gott samstarf,
sem það vonar að megi haldast.
Bækur
á Bessastaðamáli
Framhald af bls. 11.
Erlendir og innlendir snillingar
leggja andlegan hátíðaforða á
borð okkar. Efnið minnir á ís-
lenzka náttúru.
Bessastaðastíllinn lifir kynslóð
eftir kynslóð, jafnvel í söguköflum
í snotrum jólabókum.