Dagur - 12.02.1968, Blaðsíða 65
Katlakáritm Vísir á Siglufirði 1968.
fram, en meðal skemmtikrafta á
dagskránni mátti sjá mörg heims-
þekkt nöfn. Verðlaun MIDEM-
sambandsins voru veitt í 29 lönd
og voru fulltrúar frá þeim við-
staddir á þessari hljómleikahátíð
og veittu verðlaunum viðtöku.
Vikuna frá 21.—28. janúar var
samfelld tónlistarhátíð í Cannes.
Voru á hverju kvöldi tónleikar í
tveimur samkomuhúsum, í öðru
klassískir tónleikar en í hinu tón-
leikar af léttara tagi. Voru þá
hljómleikar hvers kvölds í umsjá
einnar þjóðar, og tónlist þess lands
flutt, og komu þar fram úrvals
listamenn.
Það, sem vakti sérstaka ánægju
okkar Vísismanna — auk þess
sem nafn Vísis var á skemmti-
skránni meðal heimsþekktra
skemmtikrafta — var að sjá fána
Islands blakta meðal fána stór-
þjóðanna. Voru fánar þátttöku-
þjóðanna dregnir að hún á aðal-
samkomuhúsinu, og vildi svo
skemmilega til, að fáni íslands var
staðsettur í miðri fánaborginni. Er
vafalaust, að þessi þátttaka Vísis
hefur verið ánægjuleg og vel
heppnuð landkynning.
Að lokum vill Karlakórinn Vís-
ir færa þakkir menntamálaráð-
herra, Gylfa Þ. Gíslasyni, fyrir
ágæta aðstoð, einnig Haraldi Ól-
afssyni, forstjóra Fálkans, fyrir
mikið undirbúhingsstarf vegna
ferðarinnar. Þá færa Vísismenn
fararstjóranum, frú Láru Zóega,
beztu þakkir fyrir ágæta farar-
stjórn og margvíslega fyrir-
greiðslu, svo og fjölda mörgum
öðrum er unnu að þessari ferð
Vísis.
Ferðaskrifstofan Útsýn skipu-
lagði ferðina, en Loftleiðir lögðu
til farkostinn, sem var flugvélin
Þorvaldur Eiríksson.
Söngstjóri Vísis er Gerhard
Schmidt, en formaður Sigurjón
Sæmundsson. í Karlakórnum Vísi
eru nú um 50 söngmenn.
(Frá Karlakórnum Vísi.)
Dagur
Fylgirit í tilefni nf 50 ára afmæli
blaðgins 12. febrúar 1968.
Ritstjóri cg ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON.
Mynd á forsíðu er frá skátahátíð
í Glerárgili á Akureyri 1967.
Ljósmyndina tók E. D.
Við umbrot og uppsetningu leið-
beindi Kristján Kristjánsson.
Prentun:
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Akureyri.
DAGUR 50 ÁRA 65