Dagur - 12.02.1968, Blaðsíða 64
Karlakórinn Vísir
hlaut
aÍþjóðleg verðlaun
Vísir veitti verðlaununum viðtöku á tónlistarhátíð
í Cannes í Frakklandi, þann 27. janúar sl.
KARLAKÓRINN VÍSIR var stofnaður
árið 1924 i Siéluíiröi. Hefur kórinn
starfað óslitið síðan o£ er Iön£u orðinn
landskunnur fyrir söng sinn á konsert-
um, i útvarpi o£ sjónvarpi, og einnig
iyr'tr söng á hljómplötur bæði fyrr og
síðar. Söngskrá kórsins heíur verið mjög
fjölbreytt og má þar nefna kóra ur hin-
um sígildu ópeum og einnig tónvek og
Lagt upp í langa ferð
Aðfaranótt sunnudags 21. janú-
ar sl. lagði Karlakórinn Vísir, 47
manna hópur, af stað frá Siglu-
firði og var förinni heitið til Cann-
es í Suður-Frakklandi. Hafa varð
hraðann á, því að norðanhríð hafði
skollið á síðari hluta dags,i og var
hætta á að leiðin til Sauðárkróks
tepptist, en á Sauðárkróki var
ákveðið að flugvél frá Loftleiðum
tæki hópinn kl. 8 á sunnudags-
morgun. — Ferðin þennan fyrsta
áfanga gekk vel og með aðstoð
snjó-ýtu skiluðu langferðabílar
Siglufjarðarleiðar hópnum til
Sauðárkróks í tæka tíð. Þaðan var
flogið til Keflavíkur og stanzað
þar nokkra stund, en kl. 10,30 var
(64 DAGUR 50 ÁRA
þjóðlög eftir erlend tónskáld. Þá hefur
Vísir einnig sungið léttari tónlist, en
samtímis lagt rækt við hina fornu, nor-
rænu söngmcnningu, eins og tvísöng,
vikivaka og rímnalög, sem á íslandi hafa
haídizt óbreytt um langan aldur, sum
allt frá heiðnum tíma.
I Karlakórnum Vísi starfa nú um 50
söngmenn.
haldið af stað aftur og nú flogið
í einum áfanga til flugvallarins
við Nice, og þar lent eftir 7 klst.
flug.
Aðdragandi verðlauna-
veitingarinnar
Skömmu fyrir jólin 1966 komu
út á vegum Fálkans h.f. í Reykja-
vík vær hljómplötur sungnar af
Karlakórnum Vísi, önnur platan
með 4 lögum, en hin með 14.
Hljómplötur þessar náðu strax
mjög miklum vinsældum og á
rúmlega hálfu ári, eða til 1. júlí
1967, munu hafa selst af stærri
plötunni um 3500 eintök, og mun
það vera hæsta sala á íslenzkri
hljómplötu hér á landi.
Alþjóðasamband hljómplötu-
framleiðenda, M.I.D.E.M, veitir
árlega verðlaun þeim aðila í
hverju landi, innan sambandsins,
sem hefur ípesta hljómplötusölu.
Að þessu sinni varð það því Karla-
kórinn Vísir, sem þessi verðlaun
hlaut, og í desembermánuði s.l.
kom bréf frá Haraldi Olafssyni,
forstjóra Fálkans, þar sern
MIDEM kunngeröi að Vísir hefði
hlotið þessi alþjóðlegu verðlaun
og jafnframt var kórnum boðið að
koma til Cannes, kynna sig þar
með söng og veita verðlaununum
viðtöku.
Móttaka verðlaunanna
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika við
að fara í svo langt og dýrt ferða-
lag, ákváðu Vísismenn samt að
taka boðinu, og var lagt af stað,
eins og áöur getur, þann 21. janú-
ar og komið heim 28. janúar. Var
þá lent á Akureyri og flutti hinn
góðkunni Drangur hópinn síðasta
áfangann til Siglufjarðar.
Verðaunaafhendingin fór fram
laugardaginn 27. janúar á mikl-
um hátíðahljómleikum, í sam-
komusal, sem tekur um 1700
manns í sæti. Var hvert sæti skip-
að í þessum stóra sal. Vísir var
fyrstur á dagskránni, kynnti sig
með söng og veitti söngstjórinn,
Gerhard Schmidt, verðlaununum
viðtöku. Var það kl. 18.10 eftir ís-
lenzkum tíma, en hátíðadagskráin
hófst hálfri klst. fyrr en auglýst
hafði verið, vegna mjög mikillar
þátttöku. Verðlaunin eru líkan af
hljómplötu, með áletruðu nafni
þess, er þau hlýtur.
Öllu, sem fram fór á þessum
hátíðahljómleikum, var sam-
stundis útvarpað um þrjár út-
varpsstöðvar í Vestur-Evrópu, þ.
e. Monte Carlo, Luxemburg og
Evrópa I. Auk þess var því einnig
sjónvarpað um franska sjónvarp-
ið, bæði í litum og svarthvítu.
Þátttaka í þessari hátíðadag-
skrá var talin hafa mikið auglýs-
ingagildi fyrir þá, sem þar komu