Dagur - 12.02.1968, Qupperneq 47
Erlingur Davíðsson:
Nokkrar fréttir
síðasta árs
Hér fara á eftir nokkrar fréttir frá liðnu ári,
einkum norðlenzkar.
Ljósmyndir tók E. D.
Janúar.
Viðskiptajöfnuðurinn hafði orðið óhag-
stæður á árinu 1966 um 1000 milljónir
króna en 445 milljónir króna árið 1965.
Fiskafla landsmanna varð 1240 þúsund
lestir, þar af síld 775 þúsund tonn. Vígt
nýtt sjúkrahús á Siglufirði. Bjarni Ein-
arsson ráðinn bæjarstjóri á Akureyri í
stað Magnúsar E. Guðjónssonar. Fyrstu
leikir Akureyringa í Handknattleiksmóti
Islands voru háðir í Iþróttaskemmunni
nýju um miðjan janúar. Búfjársjúkdóm-
urinn hringskyrfi hafði komið upp á
nokkrum bæjum við Eyjafjörð og var
lækningaleiðin valin til að útrýma hon-
um. Hey brann á Staðarbakka í Hörgár-
dal. Maður myrti konu sína í Reykja-
vik. Skíðamót haldin í Hlíðarfjálli, ís-
hokkí stundað á Krókeyri. Fjö'ldi sjón-
leikja sýndur eða æfður víða á Norður-
landi. Nýr barnaskóli tekur til starfa á
Héraði. Stendur hann í Hallormsstaða-
skógi. Piltur í Bárðardal drepur tófur
við kastljós. Sjálfvirkur sími tekinn í
notkun í Ólafsfirði. Togarar ÚA öfluðu
9535 lesta á árinu 1966. Síld veiddist
austan við land. Gunnar Guðbjartsson
talaði á fundi Bændaklúbbsins og var
fullt út úr dyrum. Skátafélag Akureyrar
varð fimmtugt. Yfir 36 þúsund farþegar
fóru um Akureyrarflugvöll á árinu 1966.
Og enn gaus Surtur.
Febrúar.
Auka-kjördæmisþing Framsóknarmanna
haldið á Akureyri. Friðrik Ólafsson stór-
meistari heimsótti Akureyri og tefldi
skák. Snjósleðar teknir í notkun og
þykja góðir. Skugga-Sveinn leikinn á
Dalvík. Kvenfélagið Hlíf 60 ára. Leitað
að útigöngufé á flugvélum og snjósleð-
ar síðan notaðir til að flytja féð til
byggða. Áfengissalan varð' 502 milljónir
króna árið 1966. Drengur hrapaði fram
af 30 metra bjargi við Húsavík og hélt
lífi. Margir bændur eru farnir að klippa
fé sitt á vetrum. Alþingiskosningar und-
irbúnar af fullum krafti. Félag íslenzkra
ungtemplara stofnað á Akureyri. Hluta-
félagið Norðurverk stofnað á Akureyri.
Verzlunarkostnaðurinn jókst um 20%,
sagði Jakob Frímannsson á félagsráðs-
fundi KEA. Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga varð 60 ára 20. febrúar.
Brettingur kom til landsins, en það er
nýtt síldarskip. Skipstjóri Tryggvi Gunn-
arsson. Jónas Halldórsson varð skák-
meistari Norðurlands. Búnaðarþing situr
á rökstólum. Skátaheimili vígt á Dalvík.
Um 100 manns atvinnulausir á Akur-
eyri. Sjö þilfarsbátar gerðir út frá Húsa-
vík, frá 9—22 lestir. Og trillurnar eru
óteljandi. Hundrað tonn af lýsi runnu
niður á Raufarhöfn. Stórþjófnaður á
Seyðisfirði upplýstur.
Marz.
Ambassador Bandaríkjanna afhenti Amt-
bókasafninu bókagjöf. Norðurflug á Ak-
ureyri gert að almenningshlutafélagi.
Söngfélagið Gígjan stofnuð á Akureyri.
Jóhannes Óli Sæmundsson lauk að
mestu við mikla örnefnasöfnun í Eyja-
fjarðarsýslu með aðstoð UMSE. Kirkju-
vika haldin á Akureyri. Sæluvikan und-
irbúin á Sauðárkróki. Nýtt síldarleitar-
skip sjósett í Englandi, hlaut nafnið
Árni Friðriksson. Norðurverk h.f. hyggst
bjóða í Kísilgúrveginn í Suður-Þingeyj-
arsýslu. Sextíu sentimetra þykkur ís á
Mývatni. Ákveðið að hefja byggingu
handritahúss í Reykjavík með vorinu.
Útvarpsþátturinn „Þjóðlíf" bannaður.
Þeir veiða hákarlinn í Vopnafirði, og
skjóta hann við borðstokkinn. Hafin
sala á sterkara benzíni og hækkaði það
um leið um 35 aura. Rætt opinberlega
um enskan söng í Akureyrarkirkju. Stór-
bruni í Reykjavík: Þrjú íbúðarhús og
tjón varð á Iðnaðarbankahúsinu. Bjarmi
II. frá Dalvík losnaði af strandstað aust-
an við Stokkseyri. Hreindýrin gera sig
heimakomin á Héraði. Uppbætur á sjáv-
arvörum urðu 350 milljónir króna árið
1966. Koli fluttur alla leið frá Suður-
nesjum til Húsavíkur og hann unninn
þar. Fjórtán nemendur Vélskólans —■
fyrsta stigs — luku námi á Akureyri.
DAGUR 50 ÁRA 47