Dagur - 12.02.1968, Qupperneq 63
Vera má, að ekki sé unnt að efla
og varðveita mannlegt siðgæði
nema á trúarlegum grundvelli. Ég
ætla, segir skólameistari með
áherzlu, að við munum öll að síð-
ustu uppskera eins og við sáum,
hvort sem það verður í þessu lífi
eða öðru.
Hvernig íinnst þér að verða
sextugur, skólameistari?
Mér er þakklætið til lífsins efst
í huga á þessum tímamótum. Það
hefur oftast verið mjög gaman að
lifa. Ég er þakklátur fyrir að hafa
átt góða foreldra og fagra heima-
byggð, hafa kynnzt góðu fólki,
eignast góða konu og börn. Ég get
tekið undir það, sem Sigurður
heitinn skólameistari sagði, en
hann var mér eins og annar faðir,
að það bezta við að vera skóla-
meistari væri, hve maður kynntist
mörgu góðu fólki í skólanum.
Og nú líður að jólum?
Já, og þau eru guðsblessun. Ég
veit ekki, hvernig íslenzki vetur-
inn yrði, ef ekki væru jólin. Á
haustin og framan af vetri hugsa
ég alltaf fram að jólum. Mér finnst
þau stytta veturinn um helming.
Þau eru enn friðarins hátíð, þótt
ýmislegt sé fundið að undirbún-
ingi þeirra. Jólin hreinsa hugann
og gera mann betri, þrátt fyrir allt.
Jafnvel hin stórfelldu jólakaup
eru í sjálfu sér fögur, því að mikið
er ætlað til gjafa, af góðum hug
og kærleika.
Ég vil svo að lokum, segir Þór-
arinn Björnsson skólameistari,
þakka öll skeytin og vinarkveðj-
urnar, sem mér bárust á afmælinu
mínu og allan hlýhug bæði fyrr og
síðar.
Blaðið þakkar viðtalið og ósk-
ar skólameistara og ástvinum hans
gleðilegra jóla, og stofnun þeirri,
sem hann veitir forstöðu, góðs
gengis.
Til lesendanna
Á þessum merku tímamótum í sögu blaðsins, vill blaðstjórnin
ekki láta undir höíuð leggjast að senda alúðarkveðju til allra
lesenda „Dags“, áskriíenda og annarra kaupenda sem jatnt og
þétt heíur íarið íjölgandi um land allt, írá því blaðið hóí göngu
sína íyrir íimmtíu árum síðan.
Blaðstjórnin þakkar öllum velunnurum blaðsins og við-
skiptamönnum og vonar, að það megi áfram njóta trausts og
velvildar vaxandi íjölda lesenda. Sérstaklega vill blaðstjórnin
þakka ritstjórum og aígreiðslumönnum, \sem nú eru staríandi
við blaðið svo og þeim sem hættir eru störium.
Beztu þakkir ílytur blaðstjórnin Prentverki Odds Björns-
sonar og öllum þeim fjölda starfsmanna Prentverksins, sem af
smekkvísi og dugnaði hafa prentað blaðið um nær hálfrar aldar
skeið, en aðeins tvö fyrstu ár ævi sirmar, var blaðið prentað í
annarri prentsmiðju.
Dagur er nú lang-stærsta og víðlesnasta vikublað landsins,
utan Reykjavíkur, og hefur á undaníörnum árum betur og
betur sannað gildi sitt sem írétta- og auglýsingablað.
Blaðstjórnin vonar að geta enn aukið vinsældir blaðsins með
því að fjölga útgáíudögum, áður en langt líður, og mun hún
jatnframt vinna markvisst að frekari útbreiðslu blaðsins.
Blaðstjórn „Dags“.
E. D.
DAGUR 50 ÁRA 63