Þjóðviljinn - 19.12.1970, Page 18
|g — J ÓLABLAÐ
ert. Fólk er hætt að verða
uppnæmt fyrir útlenzku.
Starkaður: Ekki er ég viss
um það. Segjum, að það héti
St. Paulí.
Geirný: Við reynum enga út-
lenzku. Bíddu við. Við köllum
gildaskálann okkar blátt áfram
Fjósið.
Starkaður: Hvað segirðu?
Geimý: Ég sagði Fjósið. Nú
er farið að bóla á því, að rykið
er þurrkað af gömlu skrani og
því tyllt í öndvegi. Skótízkan
er eins og um aldamót Krínó-
línan er komin aftur, og er
nú úr svampi. Gömlu dansam-
iir eru komnir aftur. Ungt fólk
er farið að yrkja rímur til að
vékja á sér eftirtekt. Nú er
nefnilega svt> komið. að órímuð
ljóð vekja ekki meiri eftirtekt
en kona í bláum vinnubuxum.
Starkaður: Þetta mun vera
rétt.
Geirný: Það voru veitt 100
króna verðlaun á fomgripasýn-
ingunni um daginn fyrir að
þekkja trafakefli.
Starkaður: Þetta var lffika
s'kemmtiatriði í Stóra-Bíó á
kvöldvökunni í vetur, að
þekfcja gamla hluti.
Geimý: Eitthvað heyrði ég
þess getið.
Starkaður: Þar var boðið sút-
að, fagurblátt gæruskinn fyrir
að þekkja gamlan hlut. Hann
var svipaður skotthúfiu í lögun,
en enginn gizkaði á það rétta,
fyrr en ungur og efnitegur
blaðamaður kvaddi sór hljóðs
og flutti snjalla ræðu um til-
finningalif búfjárins. Hann
sagði, að svona prjónabót hefði
verið saumuð neðan í kviöull
fjárihrúta, þegar þeir gengu í
fé fram eftir hausti. Þetta var
glansmúmer kvoldsins.
Gcimý: Já, þetta þótti mikill
frami fyrir manninn. Ég man
þetta allt núna. Þedr, sem ætla
sér að framleiða kaeti á sam-
komustöðum, verða að skynja
og skilja, á hvaða þrepi
skemmtanalífið er statt einmitt
núna.
Starkaður: Þú talar stundum
eins og sálfræðingur. En hversu
vel, sem þú skjlur skemmtana-
lífið spennir'ðu bogann of hátt,
ef þú kallar gildasfcálann Fjós-
ið.
Geimý: Ég veit, hvað ég segi.
Ein þeirra kenninga, sem þykist
vera ný, er sú, að allt eigi að
sýna sig í sinni upprunalegu.
nöktu mynd, einkum, ef hún er
ljót. Stofuborðið er ekki reglu-
legur dýrgripur, nema í þvi séu
stóreflis kvistir. Bráðum verður
alveg haett að mála.
Starkaður: Allt, nema ásjónu
kvenfólksins. En þá verða mál-
arar atvinnulausir og málning
fellur í verði.
Geimý: Þá verður hægt að
mála alla Reykjaivík fyrir
hundrað krónur, en enginn viU
láta mála sitt hús.
Starkaður: En svo geta líka
ótrúlegustu hlutir stigið í verði.
Ég iheld það nú. Einskis verðir
hlutir. Til dæmis getur verið
að mannabein hækki gífurlega
í verði.
Geimý: Mannabein!
Starkaður: Já, ekkert bykir
eins furðutegt og ef fom-
mannabein finnast einhvem-
tíma í mold.
Geirný: Það sannar lika
hvorki meira né minna en það.
að fommenn hafa haft beina-
grind.
Starkaður: Upp úr þessu
sprettur svo áhuigi fyrir beinum
almennt.
Geimý: Þú ætlar þó ekki —
Starkaður: Snúum okkur að
Fjósinu. Var huigmyndin al-
vara?
KAUPFÉLAG
ÞINGEYINGA
Húsavík — Stofnað 1882
Þa'kkar ölltum viðskiptavinum sínum og
velunnurum fyrir liðinn tíma og óskar
þeim gæfu og gengiis í framtíðinni.
GleSileg jól!
Vestmannaeyingar!
Uim leið og við flytjum öllum bæjarbúum
beztu óskir um
gleðileg jól og farsælt komandi ár
og þökkum viðskipti liðinna ára
viljum við vekja aithygli á að takmark
samvinnuverzlunar er betri lífskjör fyrir
fólkið í landinu.
VERZLIÐ VIÐ EIGIN
SAMTÖK!
Kaupfélag Vestmannaeyja
V estmannaey jum.
Geimý: Hvort mér var al-
vara! Ekkert er auðveldara en
að hafa gildaskálann eftirlfk-
ingu af fjósi. Þar verða básar
í röðum beggja megin við
gang eftir miðju gólfi, sem
táknar flórinn. En þar verður
auðvitað dregill úr sauðsvartri
ull, eða jafnvel hrosshári, en
ekki flór. Innst í hverjum bás
verður, í staðinn fyrir stall,
hilla með grænu gervigrasi.
Kýrhúð verður á gólfinu. Á
borðinu verður dúkur með ein-
hverjum búfjármyndum. Þilj-
umar milli básanna verða mál-
aðar sveitasælumyndum. Við
fáum listamenn til að mála þar
ferfcantaðar kýr, kringlóttar
mjaltakonur og þrfhymda ketti.
Starkaður: Gæti salurinn þá
ekki heitið Baulustaðir?
Geimý: Nei, unga fiólkið færi
þá að hugsa um Baulu í Norð-
urárdal og skildi ekki neitt.
Nei, Fjósið á það að heita.
Könnur og föt eiga að Ifkjast
trogum og mjaltafötum. Lamp-
amir eiga að vera eins og lýsis-
kolur í laginu. Já, og Helga-
kver á að vera í hverjum bás
því að böm lærðu stundum
kristindóminn í fjósj.
Starkaður: Þú ert stórkostleg.
Nú nenni ég ekki einu sinni að
segja þér frá mínum hugmynd-
um um veitingasalinn. Og var
ég þó búinn að þraufihugsa þær.
Það verður bærileg samvinna
með okkur.
Geirný: Það ætti ekki endi-
lega að vera leiðintegt verk að
græða peninga.
Starkaður: Grasða skal ég,
jafnvel, þó að það verði ekki
alltaf skemmtiteg iðja. Bak-
hjallur er það, að hafa í sig
og á.
(Hvolpurinn kemur hlaupandi).
Tryggvi: Lubbi, Lubbi,
skammastu bín, Lubbi. Enn er
hann kominn hingað. Og bið
emð hér enn. Ég huigsa, að óg
viti, um hvað þið eruð að tala.
Geimý: Hvaða speki er nú í
þér, vinur?
Starkaður: Um hvað erum
við þá að tala? Þú færð fimrn-
, tíiu fcrónur í verðlaun, ef þú
getur rétt.
Tryggvi: Ég hef nú lesið
fleira en draugasögur.
Starkaður: Jæja, hvaða bæk-
ur?
Tryggvi: Bækur afa.
Starkaður: Hvaða bækur átti
hann?
Tryggvi: Hann átti Islend-
ingasögumar flestar, og margar
Ijóðabækur.
Starkaður: Og auðvitað guðs-
orðabækur.
Tryggvi: Bara Bibláuna,
sálmabókina og Vídalínspost-
illu. En þær hef ég ekiki lesið.
Ég skil ekki guðsorð. En hinar
allar hef ég lesið. Afi átti lfka
söguibækur — skáldsögur.
Starkaður: Heldurðu, að við
séum að tala um einhverjar af
þessum bókum?
Tryggvi: Ekki um bækumar.
En þið eruð að tala um það
sama og fólidð í skáldsögunum,
(hlær). Það er alltaf að dást
hvað að öðm. Trúltxfúðu menn-
irnir í sögunum eru alltaf að
hugsa um, hvað kærastan sé
falleg. Mönnum þykir víst kær-
astan alltaf falleg, þó að öðrum
þyki hún ólagleg.
Starkaður: Heyrir þú, Geir-
ný?
Tryggvi: Geirný er ekki ljót.
Allir segja, að hún sé lík
.mömmu.
Starkaður: Margt hefur þú
lesdð, Tiyggvi. En þú færð ekiki
verðlaunin. Ég gef þér hönd
mína upp á það, að getgáta
þín er langt frá því að vera
rétt.
Tryggvi: Þá eruð þið bara
eitthvað skritin, ef þið talið
ekki eins og almennilegt fólk
í góðum sögum. Margt af því,
sem ég þarf að vita, er í þess-
um sögum.
Starkaður: Þú segir mikið.
Tryggvi: Ég get sagt miklu
meira.
Geimý: Tryggvi minn litli,
þú þarft ekki að segja meira.
Taktu nú Luibba þinn og lok-
aðu hann inni í kompu. Við
komum rétt strax. Mamma er
sjólfsagt farin að hita kvöld-
kaffið.
Tryggvi: Loka Lubba minn
inni í kompu og láta hann
skæla þar! Nei, hann er svo
hræddur, þegar hann er lokaö-
ur inni. Ég hugsa, að hann hafi
ætt út í garð, af því, að þið
eruð að flækjast hér. Kornið
þið bara heim. Þið eruð ekki að
tala um neitt skemmtilegt hvort
eð er.
Starkaður: Það er þó ailtaf
gaman að fá ykkur Lubba í
heimsókn.
Tryggvi: Já, Lubbi er bezti
hundurinn, sem til er.
Starkaður: Er ekki bezt, að
þú fáir fimmtíukallinn, þó að
þú gætir vitlaust. Gjörðu svo
vel, Tryggvi mágur.
Tryggvi: Þakka þér kærlega
fyrir. Lubbi, Lubbi, Lubbi
minn. Líttu á, hvað ég hef.
Þama á vtfsan við.
Geimý: Hvað ætlarðu að
gera við peningana, Tryggvi
minn?
Tryggvi: Nú skulið þið geta.
Þið fáiö 5 aura, eif þið getið
rétt.
Starkaður: Þú kaupir þér
hvellbyssu.
Tryggvi: Ég gef þér alian
skrokkinn á mér upp á það,
að þú getur rammvitlaust. Ég
fer í Gullfossferðina með Ung-
mennafélaginu á sunnudaginn.
Það er stundum sjöfaldur
regnbogi upp a£ fDssinum.
2. ÞÁTTUR
(Sjoppa 1 Reykjavík. I sölu-
gættinni stendur Geimý og af-
greiðir. Starkaður sést innar í
sjoppunni. Rimlabekkur til
hliðar við dymar. Bamaskóili
í baksýn).
Geimý: Þetta ætlar að bless-
ast.
Starkaður: Það er ótrúlegt,
hvað keypt er viðstöðulaust.
Engu líkara en fólk haldi, að
betta sé síðasti daguonn, sem
sælgætisbúð er opin.
Geimý: Þetta eru nú mest
blessuð skólabömin. Bn eitt
kemur mér á óvart. Bömin
virðast hungruð. . Þau koma
nestislaus í skólann, þó að þau
séu frá því Hukkan að ganga
átta og fram yfir hádegi. En
peninga hafa bau. Og það eru
KAUPFÉLAG
NORÐUR-ÞINGEYINGA
Kópaiskeri
sendir öllum félags-
mönnum sínuim og
öðrum samvinnumönnum
bezfu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farsælt nýtt ár.
með þökk fyrir viðskiptin á árinu.
KAUPFÉLAG
RAUÐASANDS
Hvalskeri
óskar félagsmönnum i
og landsmönnum
öllum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
ER BEZTA VALIÐ
7 mismunandi geröir með og án djúpfrystis.
Zanussi hefur framleitt rafmagnsáhöid S meira en hálfa öld og hafa þegar
framleitt meira en 10 milijón véla Firmað hefur viðskipti við 120 lönd víða
úti I heimi. Tækninýjungar sitja S fyrirrúml hjá ZANUSSI.
Kælískápar
^iuyii^Tii ií^If ■—
iMOTur 11 %% II || II \l r* r SNORRABRAUT 44 SÍMAR 16242 15470. SÍMI 2 44 20 — SUÐURGÖTU 10 j