Þjóðviljinn - 19.12.1970, Page 20
20 — JÓLABLAÐ
og smjör og fljóta út um allt.
Geirný: Ég yröi að taka það
með töngum.
Starkaður: Geymöu nafnalist-
ann vel.
Geirný: Ég sé hann stundum
úti með komma og bamavagn-
inn.
Starkaður: Eitthvað amar að
honum samt, manngreyinu.
(Slitrótt bjölluihringing frá
skólanum deyr út).
Geimý: Nú fellur skriðan.
Krakkamir koma út.
(Fjögur böm koma að sjopp-
unni og bera lítinn málara-
stiga á milli sín, Nanna er eitt
þeirra. Hún gengur upp stig-
ann og sezt á efsta þrepið. Hin
bömin nema staðar frammi
fyrir henni).
Nanna: Nú héfst leikurinn,
krakkar. Þetta er gamanleilkur
úr dönsku vikublaði. Ég er
sleiíkipinnakaupmaður og eitur-
komið þið og kaupið af mér. Þá
segi ég: Gerið þið svo vel. Þetta
er til að skemma tennur. t>etta
er til að skemma maga. Þetta
er til að skemma lungu. t>etta
er til að skemma heilaþræði og
taugakerfi. — Og mamma kem-
ur í bæinn bráðum og borgar
skuldina mína.
öll börnin: (Taka undir). Og
mamma kemur f bæinn bráðum
og borgar skuldina mína. (Þau
syngja hendingarnar brisvar).
. Starkaður: (Kemur út úr
sjoppunni). Mín kæra Nanna
Ég held, að þú hafir leikara-
hæfileiika, en þig vantar leik-
sviðið. Þú, sem kannt alla Is-
landssöguna og hálfa mann-
kynssöguna, ættir að vita, að
leiksýningar fara ekki fram í
hreingemingastigum.
Nanna: Þetta er ný leiksviðs-
tækni. Bíddu rólegur. Þættirnir
eru fleiri.
Starkaður: Ég er hræddur
um, að þetta danska vikublaös-
ledlkrit þitt sé ekki merkilegt.
Farðu niður á Landsbókasajfn
og fáðu þér íslenzkt leikrit eða
þýdd, góð leikírit. Bkki vantar
þig greindina.
Nanna: Krakkar, nú hefst
næsti þáttur. Ég er aftur
Salómonsen eiturbyrlari, og þið
komið til að yerzla við mig. Þá
segi ég: Gerið þið svo vel. Þetta
er til þess, að húslbóndinn súpi
á. (Tekur glas upp úr vasa
sínum og veifar þvf). Súpi á
og berji konuna sína í andlitið
Þetta er til þess, að bflstjórinn
súpi á og aki yfir bam. Þetta
er til þess að forstjórinn súpi
á og steli sjóðnum — en það
gerir nú minnst til um hél-
vízka peningana.
Bömin: (í kór). Það gerir nú
minnst til um — —
Nanna: Nei, nei, þið þurfið
ekki að endurtaka þetta. (Tekur
litinn bréfsnepil upp úr vasa
sínum og veifar honum). Þetta
eitur er til þess, að ólánsmað-
urinn gleypi það og geri sig
snarvitlausan.. Og svo syngjum
við öll vfsuna eftir Pál.
Börnin:
En vitið köm aftur að morgni
til min,
það mælti og stundi þungan:
Bölvaður dóni ertu,
að drskfca eins og svín.
Það drafaði í gær í þér
tungan.
Nanna: Þama fenguð þið að
bölva. Ég er viss um, að öll
böm yrðu fegin að læra þessa
vísu, En það kann bana ekki
nema einstöfcu manneskja í
bænum.
(Bjallan hringir).
Nanna: (Hleypur niður úr
stiganum, snýr í áttina til skól-
ans, ásamt bömunum. Kallar
aftur fyrir sig). Frumsýningin
er búin. En leikurinn veröur
endurtekinn á morgun.
3. ÞÁTTUR
(Sjoppan. Geimý stendur
innan við sölugættina. Starkað-
ur er innar í búðinni. Þremur
dögum eftir síðasta þátt).
Starkaður: Hvað ' getum við
gert?
Geimý: Er ekki allt um
seinan?
Starkaður: Blöðin hafa ekki
enn farið á kreik með það.
Geimý: Nú hefur bamið
staðið hér í stiganum í þrjá
daga. Fyrsta daginn kom allur
skólinn. Það var sæmileg
fréttaþjónusta. I gær komu
kennaramir, hver um annan
þveran og stungu saman nefj-
um. I dag hetfur fólk af göt-
unni tekið á sig krók hingað.
Hvenær fara blöðin að skella
tönnum yfir þessu?
Starkaður: Ég er ekki hrædd-
astur við blöðin. Hér má eikkert
finnast, ef gerð verður húsleit
skyndilega. En nú má það ekki
dragast lengur að koma ein-
hverju tauti við fcrakkann. Mér
er ráðgáta, hvers vegna krakk-
inn lætur svona. Hér hlýtur
einhver að standa að bald.
Geimý: Nei, hún er ein um
þetta tiltæki. Hún minnir mig
dálftið á .Tryggva bróður minn.
Svona mundu mörg böm haga
sér, eif þau klepptu sér í stór-
mennskubrjálæði.
Starkaður: Ég heí sannspurt,
að foreldrar hennar sóu hæg-
lætisfólk, sem ekki skiptir sér
neitt atf pólitík. Pabbi hennar
er Hreinn Ávaidason, skiþstjóri
á Helsingjanum.
Geimý: Við verðum að gera
haná vinveitta okkur.
Starkaður: Veiztu hvað! Þetta
var allt þvaður með fram-
kvæmdir þama austur í Papey.
Flugufrétt. Ekiki verður hún
Bára litla rík af fcaupinu þar.
Geimý: Sá, sem sagði þér,
heifiur eklki haft mitolajr heim-
ildir.
Starkaður: Hann var kennd-
ur.
Geimý: Einmitt það.
Starkaður: Nú koma vinimir
erindislaust í kvöld og fá eng-
an skammt.
Geimý: Hvers vegna ætli
Lýður Pálsson sé einn af átján,
hann sem á góða konu og fal-
legt, lítið bam. Hvað er að?
Starkaður: Bróðir hans stal
úr bankanum, eins og allir vita,
þó að það sé ekki sannað. Lýð-
uí’ er samvizkan sjálf og hefur
líklega tekið sér þetta nærri.
Geimý: Ég hef lfka heyrt
annað. Faðir hans varð blindur
á miðjum aldri, og hann er
vfst sjúklega hræddur um að
missa sjónina. Sumir segja, að
hann hafi strax orðið eitthvað
þunglyndur, þegar hann missti
kærusttma fyrir mörgum árum.
Starkaður: Ég hef lika heyrt,
að húsabraskari hafi fðflett
hann.
Geirný: Nóg til að hrélla
meðalmann.
Starkaður: Svo er víst þung-
lyndi í ættinni.
Geirný: Það er nýtt, að þú
vitir svona mikið um fólk.
Starbaður: Kunningi hans
sagði mér.
(Bjallan hringir. Nanna og
lagsmenn hennar kama með
stigann. Geimý gengur til
hennar).
Gcimý: Nanna min, þú sfcait
efcki halda, að við séum reið
við þig fyrir þetta grín. En þú
mátt trúa því, að við seljum
ekki annað en það, sem allir
sjá héma í sjoppunni.
Nanna: Auðvitað ekki.
Geimý: Leikþátturinn þinn
er lélegur, Nanna. Þú ert eig-
inlega fræg manneskja og get-
ur ékki látið það spyrjast um
þig, að þú setjir svona þvaður
á svið. Hitt veit ég vel, að þú
gætir samið snotran leikþátt.
Þú veizt, að rithöfundar fá laun
fyrir verk sín. Nú skal ég horga
þér 300 fcrónur, etf þú semur
leiifcrit. handa unglingunum
heima í sveitinní minni.
Framhaid á 28. si'ðm.
brasari og heiti Salómonsen. Nú
Félag járniðnaðarmanna
óskar öllum félögum sfnum og öðrum launþegum
gleðilegra jóla!
STOFNSETT 1886
Sími (96) 21400 — EIGIN SKIPTISTÖÐ — 15 Hnur.
Símnefni: K E A
GLEÐILEG JÓL - GOTT NÝTT ÁR
Kaupfélog Akureyringa, Akureyri
KEA starfrækir nú yfir 40 verzlanir og þjónustu-
fyrirtæki og um 20 íramleiðslufyrirtæki á Akur-
eyri og við Eyjafjörð.
Þetta er m.a. ávöxtur rúmlega 80 ára samvinnu-
starfs bænda og bæjarbúa við Eyjafjörð og í
nágrenni hans.
— Er þá nauðsynlegt að vera félagsmaður til að
fá að verzla í kaupfélaigi?
— Nei, alls ekki. Öllum er frjálst að gerast fé-
lagsmenn og öllum er frjálst að verzla í kaupfélagi
— En aöeins félagsimenn hafa möguleika á að fá
endurgreiddan arð.
Kaupfélögin eru frjáls samtök til bættra lífskjara
o g aukinna framfara.