Þjóðviljinn - 19.12.1970, Page 22
22 ~ JÓLABLAÐ
Gleðileg jól!
Gott og farsælt komandi ár
með þökk fyrir viðskiptin á
liðna árinu.
SÖLUMIÐSTÖD
HRAÐFRYSTIHÚSANNA
Ný sending af norsku
rafmagnsþilofnunum
Hentugir fyrir samko’1nuhús, kirkjur, bílskúra,
verkstæði, heimili o.fl., o.fl.
PANTANIR ÓSKAST SÓTTAR.
RAFMAGN kf.
Vesturgötu 10. — Sími 14005.
Kaupmenn — Kaupfélög
MUNIÐ
Niðursuðuvörur
□ MERKIÐ TRYGGIR GÆÐIN
□ AÐEINS VALIN HRÁEFNI
□ ORA-VÖRUR í HVERRI BÚÐ
□ ORA-VÖRUR Á HVERT BORÐ
Niðursuðuverksmiðjan
ORA hJ
Kársnesbraut 86 — Símar 41995 - 41996.
hafði nýlega áfcveðið að læra
utan að, því að eins og faðir
hans sagði alltaf: Það sem mað-
ur lærir í æsku, það man mað-
ur í ellinni
Smátt og smátt gleymdi
Hinrik hinum yfimáttúrlegu
hæfileikum sínum. Hann þurfti
ekki lengur á þeim að halda,
etftir að Soffía hvarf.
Hann var fljótur að gieyma
því, að hann hafði einu sinni
átt litla systur, sem reyndi að
fá hann til að leika kjánalega
leiki.
En lífið reynist oft erfitt
þeim, sem ráða yfir yfimáttúr-
legum hæfileikum,
Það stafar af því að það
venjulega og hversdagslega er
þeim ekki nóg.
1 gagntfræðaskólanum var
kennslukona, sem einhvem
tíma hafði verið mjög lagleg.
Einkum voru það augun, sem
prýddu hana. Þessvegna vildi
hún ekki ganga með gleraugu,
þó sjónin væri farin að dapr-
ast. Þetta varð til þess að hún
villtist oft á Hinrik og drengn-
um, sem sat við hlið hans.
Þeir voru að vísu talsvert
svipaðir, þvi að í þá daga var
algengt að sjá drengi viö Nörre-
bro með stór, hnöttótt höfuð.
En það var aðeins í yzta út-
ljti, sem þeir voru líkír. Hinn
drengurinn stóð Hinrik langt
að baki, hvað gáfur snerti. þess
vegna tók Hinrik mjög nærri
sér þegar hún villtist á þeim og
gaí hinum drengnum ágætis-
einkunn, en Hinrik fékk ávítur
og varð að sitja eftir.
Þetta náði hámarki í þriðja
bekk, þegar hún skammaði
Hinrik af mikilli grimmd og
hótaði honum því að hann jrði
látinn sitja kyrr í sama bekk
næsta vetur.
Honum varð hugsað til móð-
ur sinnar, sem var sívinnandi,
og föður síns, sem þjáðist af
svefnsýki, og sagði:
— Hverfið. ungfrú Madsen!
Og hún hvarf á sama andar-
taki.
Síðan leitaði hann að sessu-
naut sínum og fann hann í
snyrtiherberginu, þar sem hann
sat með blýant í höndinni og
átti sér einskis ills von. Til
þess að fyrirbyggja allan mis-
skilning í framtíðinni lét Hinrik
hann líka hverfa, en áminnti
hann þó fyrst um að hegða
sér vel í framtíðinni. Það
vakti mikla undrun og hávaða
næsta morgun, þegar það kom
í ljós að kennslukonan og
drengurinn voru horfin. Vitni
voru kölluð til, en þau voru
öll ósammála og gerðu málið
enniþá flóknara. Lögreglustjór-
inn fékk rauða bauga undir
augun og var auk þess farinn
að naga á sér neglurnar, en
allt kom fyrir ekki, þaiu sem
hurfu fundust aldrei aftur.
Eftir yfirborðslega rannsókn
gáfust yfirvöldin upp og úr-
skurðuðu að hin hortfnu væru
dáin. Það var haldin falleg
minningarathöfn og síðan féli
þetta í gleymsku.
Nú var Hiinrik ekki í vafa
<um það lengur, að hann bjó
yfir yfirnáttúrlegum hæfileik-
um, og hann lék sér að þeirri
hugsun að hann gæti látið
hvem sem hann ákvæði hverfa.
Þetta vabti jafnframrt hjá
honum ábyTgðartilfinningu, því
að hann var þess fullvisis að
hann væri útvalinn til sitórra
afreka. Hann tamdi sér sjálfs-
stjóm og taidi alltaf upp að
tíu áð-ur en hann lét fólk
hverfa.
Einn daginn tókst þó mjög
illa tjl. Móðir bans hafði ný-
lokið við að búa til alveg ó-
venjugóðan réfrt úr öllum þeim
grænmetistegundum, sem fá-
anlegar voru. Hún hrósaði
matnum með svo mörgum fögr-
um orðum að Hinrik gafst að
síðustu upp á því að hluista á
hana, og sagði alveg ósjálfrátt:
— Ó. hverfðu!
Ætlun hans hafði auðvitað
verið sú að lárta grænmetið
hverfa, en nú var of seint að
hugsa um það. Það ein,a sem
var etftir og minnti á móður
hans var potturinn með græn-
rnetinu, sem stóð á eldavélinni.
Hinrik flýtti sér að hella úr
honum í vaskinn til þess að
faira ekki að gráita.
Lengi á etftir var hann eyði-
lagður, því honum hafði alltatf
þótt vænt um móður sína, og
hina miklu umhyggju, sem hún
bar fyrir honum.
En að síðustu huggaði hann
sig við það að svona væri nú
heimurinn einu sinni gerður.
Bömin yrðu fyrr eða síðar
að skiljast við foreldra sína.
Og auk þess hafði hann senni-
lega forðað henni frá langri
og kvalafullri banalegu og erf-
iðu dauðastríði. Um þessar
mundir var faðir hans orðinn:
of veikur til þess að haía rænu
á að sakma hennar.
Hinrik var feginn því, hann
hafði kviðið því hvemig fað-
ir hans tæki þessu.
Vissulega höfðu þeir báðir
misst mikið, en þeir voru fljót-
ir að jafna sig.
Það varð þeim báðum til mik-
illar gleðj að Hinrik tók ágætt
próf. En hann var nú lífca
bráðgáfaður piltur. Og auk
þess vissi hann næstum alla
hluti síðan hann las alfræði-
orðabók Salmonsens í bernsku.
Við uppsögn skólans lét hann
eftir sér að gera smávegis
prakkarastrik. Hann lét skóla-
stjórann hverfa, og það ein-
mitt > setningunni „enginn er
ómissandi.“
Nú stóð heimurinn opinn
fyrir Hinrik.
Hann vissi hver var köllun
hans. Hann var útvalinn af
máttarvöldunum til þess að
gera eitthvað stórkostlegt fyr-
ir mannkynið.
Þar sem hann vissi allt eftir
lestur alfræðiorðabókarinnar,
varð honum strax ljóst að
hann átti að verða srtjómmála-
maður. Hann lét innrita sig í
einn stjómmálaflokkinn, og
komst fljótlega til mannvirð-
inga. Hann var þolinmóður og
samvizkusamur og notaði ekki
yfirnáttúrlega hæfileika sína,
nema brýna nauðsyn bæri til.
Hann náði sífellt lengra upp
á við. Hann var kosinn þing-
maður, komst í fjármálaráðu-
neytjð, ótal nefndir og var gerð-
ur að kirkjumálaráðhenra.
Og að síðustu varð hann for-
sætisráðherra.
Hann hikaðj lengi áður en
hann tók við svo þýðirugax-
miklu embætti, því að hann
mat gamla forsætisráðherrann
mikils. Hann bafði reynzt hon-
um eins og bezti faðir. En eins
og hann sagði við sjálfan síg:
Hér var ekkj um persónulegar
tilfinningar að ræða, heldur
hag landsins,
Svo barði hann að dyrum hjá
gamla forsætisráðherranum
einn daginn, og gamli maður-
inn sagði með grátstafinn í
kverkunum:
— Hinrik Petersen, en hvað
það gleður mig að fá a¥S tala
við yður.
Og þar með hafði hann náð
tindinum.
Einkalíf hans var í bezta
lagi. Hann giftist konu, sem
hann elskaði í mörg ár. Hann
giftist annarri, sem líka var
ágætiskona, og að síðustu gift-
ist hann þeirri þriðju, sem
var mjög lagleg. Hann eignað-
ist syni. og hann sá prýðilega
fyrir hinni stóru fjölskyldu
sinni.
Þannig var allt alveg full-
komið.
En þegar aldurinn tók að
færast yfir hann, varð hann
óþolinmóðari. Þótt stjórn hans
væri vinsæl og mikið værj um
allskonar framkvæmdir varð
sífellrt meiri vöntun á vel
menntuðu fólki. Jafnvel lista-
mennirnir. sem hann heiðraði
með stórum gjöfum gerðust
uppreisnargjamir. Ekki þeir
gömlu, sem mærttu í kjólförtum
með öll sín heiðursmerki, held-
ur ungu listamennirnir sem
alltaf voru að skjóta upp höfð-
inu. En flestir þeirra hurfu þó
fljótiega.
Hann þurfti að leggja meira
og meira á sjálfan sig. Það
komu ótal kvartanir og mót-
mæli, stórir hópar manna komu
og kvörtuSu undan otf mikilli
vinnu, rétt eins og það væri
ekki hann. sem erfiðaði mest.
Ástandið varð verra og
verra. Utanríkismálaráðherr-
ann siagði af sér. nýir menn
voru skipaðir í öll embætti,
en allt kom fyrir ekki. Konan
hans fékk höfuðverk, synir
hans lentu á glapstigum. All-
Ur heimurinn virtist vera að
fara úr skorðum.
Og hann sat á skrifistofunni
sinnj og talaði í ellefu síma í
einu. Ejnn daginn keyrði svo
alveg um þverbak, þá gerðu
allir garðyrkjumenn landsins
verkfall, vegna þess hve vöru-
ver'ðið var lágt.
Þá skeði það að hann hróp-
aði:
— Ó, hverfðu, heimur!
Heimurinn hvarf.
Hinxik sveif aleinn um tóm-
an geiminn, þar sem ekkert
er, og þarafleiðandi getur ekk-
ert horfið.
Hann sléttaði og lagaði til í
tóminu, þangað til allt var eins
og bann vildi hafa það.
Glaður og ánægður sveif
hann um geiminn og sagði:
— Þessi heimur er hinum
betri, beztur af öllum heimum.
Unnur Eiríksdóttir þýddi.
KAUPMENN,
KAUPFÉLÖG
Höfum enn fyrirliggjandi yfir 60 tegundir
af ilmvötnum, hár- og andlitsvötnum.
VERÐIÐ MJÖG HAGSTÆTT.
ÁFENGIS- OG TÓBAKSVERZLUN
RÍKISINS
Skrifstofur: Borgartúni 7. •— Sími 24280.
Félag íslenzkra rafvirkja
óskar félögum sínum og landsmönnuim
öllum
GLEÐILEGRA JÓLA
og gæfu á komandi ári og þatkkar sam-
starfið á árinu sem er að líða.
FÉLAG ÍSLENZKRA RAFVBRKJA.
Við óskum viðskiptavinum vorum
gleðilegra jó/a og
farsæls árs,
með þökk fyrir árið sem er að iíða
LAUGARASSBIO
t