Þjóðviljinn - 19.12.1970, Síða 31
J ÓLABLAÐ — 3|
En-gum þykir vænt um yktour.
En ég ætla mér ékki að ganga
í sjóinn og etoki heldur verða
vond manneskja.
Starkaður: Svona! Hvað er
u-m að vera?
Eýður: Hún er barnið mitt.
Geirný: Fyrirgefðu mér
Nanna. (Snýr sér að Lilla). Lilli.
þú getur farið héðan með hús-
bónda þínum. Við hittumst öll
í tugthúsinu. En, því miður,
eíkiki sem vinir.
Starkaður: Hvað nú?
Geimý:' Bakhjalikir ástarinn-
er að b'resta, Starkaður. Ég
held, að ég verði að finna mér
aðra fótfestu, hvort sem það
teku-r sjö ár eða alla ævina.
Starkaður: Og kennir mér
um. Hetjuilegt er það.
Geirný: Hér eru engar hetjur,
nema krakkinn, sem er að ær-
ast hérna, vegna þess, að hún
ræður ekki við veröldina.
Lýður: Hún er músin, sem
datt í rjómatrogið, og gafst ekki
upp, heldur synti þar til hún
sat á smjörsköiku.
Nanna: Þessa sögu heyrði ég
í smábarnaskólanum. Mikil er
spekin.
Lilli: Nann-a, Nanna mín
Trúirðu — —.
Nanna: Já, þú ert Ijótur. Þú
hefur ljót au-gu og Ijótan munn
og ert kallaðu-r Lilli, af því að
þú verður alltaif lítill og Ijót-
ur.
5. ÞÁTTUR.
(Daginn eftir, kl. 7 að kvöldi.
Sjoppan er lofcuð. Nanna geng-
ur fram og aftur meðfram
henni).
Tryggvl: (Gengur hægt og
skimar í kringum sig, nemur
staðar og athugar sjoppuna)
Veiztu hverjir verzla hér?
Nanna: Hér verzlar enginn.
Hvað vantar þig drengur?
Tryggví: Ég er að leita að
svona söluturni. Ég held, að
þetta sé sá rétti. Ég ætlaði að
finna hjónin, sem eiga hann.
Þau heita Geimý og Sta-rkaður.
Hún er systir mín.
Nanna: Ertu úr sveit?
Tryggvi: Já, ég kom í gær-
kvöld. En þau vildu ekki. lofa
mér að vera og komu mér
fyrir hjá öðru fólki. Ég hitti
þau aldrei heima í dag. Og
fóik þykist ekki vita, hvar þa-u
eru. Og nú er ég að leita að
þeim. Hefur búðin verið lokuð
í dag?
Nanna: Hún verður lokuð hér
eftir.
Tryggvl: Veizfcu, hvar þau
eru?
Nanna: Elkfci með vissu.
Tryggvi: Enginn vill segja
mér neifct. Þau hafa líklega lent
í bílslysl.
Nanna: Nei, nei. Þú færð
áreiðanilega að sjá þau. En þau
eru víst að hifcta menn að máli
þessa dagana.
Tryggvi: Hafa þau gert eitt-
hvað ljótt?
Nanna: Því héldurðu það?
Tryggvi: Þetfca fer svo leynt.
Og af þau eru hvorki slösuð
né veifc, veit ég ekki, hvað ég
á að halda.
Nanna: Þetta er að byrja að
koma f blöðunum. Lítið fyrst.
En smám saman kemu-r sagan
öll.
Tryggvi: Þá geturðu bara sagt
eins og er.
Nanna: Þau seldu smyglað
áfengi og eitur. Þau voru víst
kærð í gærtovöld.
Tryggvi: Þau bæði?
Nanna: Já, bæði tvö.
Tryggvi: Og þetta, sem getur
verið svo hættulegt og valdið
slysum. Eitt slysið varð í nótt.
Fólk er að kaupa blöð á Lækj-
artorginu í kvöld. Þar var sagt
frá dauðaslysi. Maðurinn var
etoki nefndur. En fólkið, sem
var að lesa þetta, sa-gði, að
það væri Lýður Pálsson próf-
essor.
Nanna: (Áköf) Segðu ekki,
hvémiig það var. Ég vil ékki
heyra það. Ég er búin að
heyra það. Allir eru að tala
um þetta.
Tryggvi: Ég hlustaði alltaf,
þegar hann talaði í útvarp.
Nanna: Ég 1-íka.
Tryggvi: Ertu að bíða eftir
einhverjum?
Nanna: Nei, ég var í leikfimi
milli fi-mrn og sex. Nú er ég
bara að rápa til og frá. Ætli
ég fari ékki til augnlæknis á
morgun.
Tryggvi: Sérðu illa?
Nanna: Ég hef lesið of mik-
ið. Ma-mma vildi fyrir löngu,
að ég færi til augnlæknis. En
ég vildi það ekki. Ég hélt, að
mér yrði bannað að lesa. Ég
las og las — og svo er allt
til enskis.
Tryggvi: Hvað áttu við?
Nanna: Það var pabbi minn,
sem dó svona, — svona eins
og þú veizt. Ég er fósturbam.
Það vita fáir. En ég hef það
frá honum að vena fljót að
læra. Ég hef þessi veiku augu
líka frá hon-um. Og bver veit,
hvað ég hef erflt?
Tryggvi: Hvað heitirðu?
Nanna: Nanna Hreinsdóttir.
Tryggvi: Það er fallegt nafn.
Ég heiti bara Tryggvi.
Nanna: En það þykir mér
vænt um. Þú heitir eins og
Tryggvi Gunnarsson. Ég hef
lesið bók um hann. Og ég
varð mfklu duigle'gri á effcir. Ég
læri oft af fölkmu í bókunum.
En etoki þyrði ég að sundriða
Blöndu eins oig hann.
Tryggvi: Ætlarðu ékki bráð-
um heim að borða?
Nanna: Pabbi er í siglingu.
Mamma verður etoki vond, þó
að ég komi seint. Ég er líka
réfct að fara. — Pabbl er skip-
stjóri á Helsingjanum. Seinast
færði hann mér skeljar frá
Afríku.
Tryggvi: Og á morgun færðu
gleraugun. Þá batnar þér í auig-
unum.
Nanna: Afi varð blindur um
ferfcugt.
Tryggvi: Læknar voru þá
ekki eins lærðir og núna.
Nanna: Hvemiig á ég að
vinna fyrir mér, ef ég verð
blind?
Tryggvi: Ég skal vinna fyrir
þér.
Nanna: Ertu svona góður?
Tryggvi: Fólk hjálpar oft
hvað öðm. Og það er ekki
nema sjálfsagt.
Nanna: Ég var svo reið i
gærkvöldi, að ég vissi ékfci mitt
rjúkandi ráð. Mér fannst allir
vera að svíkja mig og gera
mér illt. Þá öskraði ég til
þeirra og sagði, að ég skyldi
aldrei gefast upp, ég skyldi
aldrei drekkja mér í sjónum
og ékki held/ur verða vond
manneskj-a. Nú hef ég verið
að -h-Uigsa um það í kvöld, hvort
ég sé manneskja til að standa
við þetta. Fólk verður oft svo
vont, ef illa er farið með það.
Tryggvi: Áttu ekki gott heim-
ili?
Nanna: Jú, jú. En þeim þykir
ég svo skrítin, að þau hafa
talað við uppeldisfræðing. Ég
segi þeim aldrei neitt.
Tryggvi: Fullo-rðið fólk er oft
svo undarlegt.
Nanna: Hugsa sér, ef við
verður einhvernfcíma eins og
hyskið, sem var hér í sjopp-
unni!
Tryggvi: Við skulum etoki
tala um þetta.
Nanna: Hvað erfcu gamall?
Tryggvi: Ég verð fermdur í
vor.
Nanna: Og ég í haust.
Tryggvi: Við emm þá nærri
jafn görnul.
Nanna: Það var siður í gamla
daga, að börn gáfu eitthvert
loforð, þegar þau fermdust.
Veiztu, hvað það var, og hvort
þau stóðu við það?
Tryggvi: Nei, það veit ég
ekki.
Nanna: Eiigum við ékki að
lofa þvf í laumi, að verða
aldrei vondar manneskjur?
Mér gengur betur að efna það,
ef ég veit að þú lofar því
líka.
Tryggvi: Ég skal muna það.
Nanna: Þá ætla ég að fara
heim og reyna að vera róleg.
Ég ætla að lesa eitthvað.
Tryggvi: Ég fer lítoa. Ég fer
þan-gað, sem ég gisti í nótt.
Mér er bezt að fara heim á
mongun. Ég mátti vera þrjá
daga. En ég fer bara heim.
Vertu sæl, Nanna.
Nanna: (Kallar um öxl) Nú
veit ég, hvað ég á að lesa í
kvöld. Gömlu, góðu bækumar
haifa alltaf getað huggað mig.
Endir.
Gleðileg jól og farsælt nýár! — Þökkum
viðskiptin á liðna árinu.
MJÓLKURBÚ FLÓAMANNA
Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja
Sendir öllum félögum sínum beztu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og gæfu og gengi á komandi ári, með þökk
fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
BIFREIÐA-
EIGENDUR
Athugið að bifreiðin sé á góðum hjólbörðum fyrir
jólahátíðina. — Allir vita, að hjólbarðana, við-
gerðir og góða þjónustu er að fá hjá okkur.
Coniinenlal
Gummivinnustofan hf.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 31055.
□ VIÐGERÐIR OG □ LEIÐRÉTTINGAR Á □ ÁTTAVITUM RÍKISÚTVARPIÐ
KONRÁÐ GÍSLASON Verbúð 4 v/Tryggvagötu. Sími 15475. óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
4