Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2000, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
Fréttir
DV
Deilur um uppkaup húsa á hættusvæði í Bolungarvík:
Njótum ekki jafnræðis
- segir Olgeir Hávarðarson - ráðum ekki lögunum, segir bæjarstjóri
Oft snjóar mikiö í Bolungarvík
Nær fjallinu og fyrir ofan þetta svæöi talsvert lengra til vinstri ergatan Dísar-
land. Stór hluti af þessu hverfi mun væntanlega lenda innan hættusvæöis
sem rýma þarf þegar hætta á snjóflóöum úr Traðarhyrnu er sem mest.
„Ólafur Krist-
jánsson bæjar-
stjóri fer meö hel-
ber ósannindi í DV
á fimmtudag þegar
hann segir aö
sennilega hafi ekk-
ert mál fengið eins
mikla umfjöllun
og einmitt varð-
andi uppkaup á
húsi mínu að Dís-
arlandi 10. Hann
gerði ekkert í
þessu máli fyrr en
lögin voru fallin
úr gildi,“ segir 01-
geir Hávarðarson í
Bolungarvík.
„Þegar maður
er búinn að fá á
sig snjóflóð einu
sinni þá verður að
taka tillit til þess.
Maður gerir það
ekki að gamni sínu að leggja fjölskyld-
una í slíka hættu á nýjan leik.
Það voru aðrar tillögur gerðar um
vamargarða en þá sem nú er verið að
hanna. Þar var gert ráð fyrir að garð-
urinn yrði neðar í hlíðinni sem að
mati Veðurstofu var talið öruggara og
krefðist minni rýminga en aðrar leiðir.
Það hefði hins vegar þýtt að húsin við
Dísarland hefðu farið undir garðinn.
Við vorum aldrei spurð hvort við vild-
um að þessi leið yrði farin. Tillagan
var hins vegar borin upp innan bæjar-
stjómar sem felldi hana. Miðað við nú-
verandi tillögur þarf eftir sem áður að
rýma húsin við Dísarland.
Davíð Oddsson sagði þegar rætt var
um bætur vegna jarðskjálfta á Suður-
landi í sumar að málið væri viðkvæmt
og gæta þyrfti jafnræðis. Af hveiju
þarf þá ekki að gæta jafnræðis gagn-
vart okkur sem fengum á okkur þetta
snjóflóð? Af hveiju fáum við ekki úr-
lausn sem dugar til að koma okkur í
öraggt skjól?“
Höhim barist fyrir uppkaupum
Þetta er alrangt hjá Olgeiri. Það hef-
ur verið barist fyrir því allan tímann
siðan snjóflóðin féllu á húsin við Dýs-
arland 1977 að þau yrðu keypt upp,“
segir Ólafúr Kristjánsson, bæjarstjóri í
Bolungarvík.
„Það er ljóst að það þarf líklega laga-
breytingu til svo mögulegt verði að
kaupa upp hús i Bolungarvík samhliða
gerð vamarmannvirkja. Þó bæjar-
stjómin í Bolungarvík sé öflug og
sterk þá ræður hún enn ekki yfir lög-
unurn." sagði bæjarstjórinn.
Að sögn Smára Þorvaldssonar, ráðu-
neytisstjóri hjá umhverfisráðuneytinu,
er það alveg klárt að stjóm Ofanflóða-
sjóðs hefur engar heimildir í lögum til
að bæði verja byggð og kaupa upp hús.
Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri
í umhverfisráðuneytinu, segir að fé-
lagsmálaráðuneytið hafi á sínum tima
sett sérreglur varðandi uppkaup húsa
á Flateyri sem ekki era lengur i gildi.
Ekki fullreynt
Umrædd reglugerð var gefin út af fé-
lagsmálaráðuneytinu 26. ágúst 1997.
Þar segir m.a.:
Reglugerð um veitingu tímabund-
inna lána til sveitarfélaga vegna kaupa
á íbúðarhúsnæði sökum snjóflóða eða
skriðufalla. Byggingarsjóði ríksins er
heimilt að veita sveitarstjómum tíma-
bundið lán til allt að 5 ára til íbúðar-
kaupa þar sem tjón hefur orðið af völd-
um snjóflóða eða skriðufalla og íbúar
treysta sér ekki til að búa í íbúðarhús-
næði sínu enda sé sala þess á frjálsum
markaði ekki raunhæf. í annarri grein
segir að sjóðurinn muni innleysa til
sín þessar íbúðir að fimm áram liðn-
um hafi ekki tekist að nýta þær sem
heils árs íbúðir fyrir þann tíma. Ekk-
ert var hins vegar um að þessi reglu-
gerð gildi eingöngu fyrir Flateyri.
Einar Kristinn Guðfinnsson, fyrsti
þingmaður Vestfirðinga, segir að mið-
að við fyrirliggjandi hugmyndir verði
sami vandi upp á teningnum vegna
íbúa sem næst vamargarðinum munu
búa í Bolungarvík. Honum sé full-
kunnugt um að mikið hafi verið reynt
til að þoka málinu áfram. „Þó reglu-
gerðin sé úr gildi fallin lít ég ekki svo
á aö fullreynt sé með slíka úrlausn í
Bolungarvik." -HKr.
Olafur Kristjáns-
son bæjarstjóri í
Bolungarvík.
Einar Kr.
Guöfinnsson
alþingismaöur
ístak og Nýsir
eiga og reka
bygginguna
- leigja fyrir leikskóla
PV, HAFNARFIRDI:
Framkvæmdum við leikskólann
við Háholt í Hafnarfirði miðar vel.
Leikskólinn verður afhentur Hafnar-
fjarðarbæ fullbúnum til ráðstöfunar
um miðjan janúar.
Það era ístak og Nýsir sem eiga og
reka bygginguna en Hafnarfjarðar-
bær tekur hana á leigu fyrir leik-
skólastarfið. Því er hér um svokall-
aða einkaframkvæmd að ræða en
bæjarstjórn hefur metið þá leið hag-
kvæmari fyrir sveitarfélagið en að
bærinn byggi, eigi og reki húsnæðið.
Leikskólinn verður tekinn í notkun
um miðjan janúar árið 2001. -DVÓ
Kátlr í Hafnarfirði
Gils Stefánsson og Magnús
Gunnarsson bæjarstjóri viö Háholt
Leiðrétting
í viðtali við Mikael Torfason í síð-
asta Helgarblaði DV er vísað til um-
mæla Úlfhildar Dagsdóttur um móður
sem bregst. Þar segir: „Þrátt fyrir að
dómar um Heimsins heimskasta pabba
hafi almennt verið mjög jákvæðir setti
Úlfhildur Dagsdóttir spumingar-
merki við það að mamman í sögunni
hefði bragðist". Hér er vísað til um-
mæla Úlfhildar í sjónvarpsþættinum
Silfur Egils þriðja desember en farið
rangt með, því ummælin áttu við
skáldsöguna öreindimar eftir Michel
Houellebecq en ekki við skáldsögu
Mikaels Torfasonar. Úlfhildur er beðin
velviröingar á þessum leiða misskiln-
ingi. -sm
Davíö Oddsson forsætisráöherra ræöir hér viö fjármálaráöherrann sinn, Geir H. Haarde, viö umræöur á Alþingi um
fjárlög á dögunum. Geir viröist áhyggjufullur á sviþ yfir öllum tölunum enda líklega betra aö vera viss um aö ekki hafi
læöst inn skekkja. Væntanlega er þá ekki ónýtt aö geta treyst á aöstoö flokksleiötogans þegar svo mikiö liggur viö.
Félagið fátæk börn á íslandi:
Einstæðar, barnmargar
mæður fá peningagjöf
Undanfarið hefúr söfnunarátak ver-
ið í gangi á vegum Félagsins Fátæk
böm á íslandi. Fáir virðast hins vegar
vita hvaða félag þetta er.
„Við erum fámennt félag og fórum
frekar hljótt," sagði einn aðstandenda
styrktarfélagsins en í því era einungis
fiórir eða fimm félagsmenn. Maðurinn
óskaði þess að fá að gæta nafnleyndar
þar sem hann vildi ekki blanda fiöl-
skyldu sinni inn í mál félagsins en
reynsla hans er sú að jafnan er mikið
um símhringingar heim til félags-
manna í kjölfar fiölmiðlaumræðu um
félagið og fátækt.
Félagið var stofnað áriö 1997 með
það í huga að aðstoða fiölskyldur í fiár-
hagsvanda, og þá sérstaklega einstæð-
ar, bammargar mæöur eða einstæðar
mæður sem era öryrkjar. Úthlutun
Fátækt á Islandi
Félagið fátæk börn á íslandi safnar
fé til handa einstæöum mæörum
meö mörg börn sem þurfa á fjár-
hagsaðstoö aö halda.
fiárins er yfirleitt fyrir jólin þar sem sá
árstími er oft mjög erfiður þessum fiöl-
skyldum.
Aðspurður sagði félagsmaðurinn að
DV fengi ekki að sjá uppgjör félagsins
þar sem þetta væra viðkvæm mál.
Hann útskýrði hins vegar að í fyrra
var velta félagsins um tvær milljónir
og fengu 20 til 30 fiölskyldur styrki.
Lágmarksstyrkur sem hver fiölskylda
fær er 20.000 krónur og getur styrkur
til hverrar fiölskyldu farið í 50.000
krónur.
„Við höfum yfirleitt fengið ábend-
ingar frá fólkinu sem er að gefa um
það hvert það vill að peningamir
renni. Við reynum frekar að styrkja
fáar fiölskyldur en styrkja þær vel,“
sagði annar félagsmaður sem óskaði
nafnleyndar af sömu ástæðu og sá
fyrri. Þar með geta styrktaraðilar
fýlgst með því hvert fégjöf þeirra fer.
Takmark ehf. sér um framkvæmd
söfnunarinnar. -SMK
Sandkorn
Undirsáti
tlrnsjón:
Höröur Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
forstjórastól
Þau tíðindi
heyrast frá Nor-
egi að Eivind
Reiten, fyrr-
verandi yfir-
maður áldeild-
ar Norsk
Hydro, hafi
tekið við sem
aðalforstjóri
fyrirtækisins.
Tekur hann við af Egil Miklebust
sem verið hefur forstjóri sl. 10 ár.
í þessu sambandi minnast menn
ummæla Reitens síðsumars um
áform byggingar Reyðaráls á risa-
álveri á Austfiörðum. Þá efaðist
hann um að innviðir samfélagsins
á svæðinu væru nógu traustir til
að bera svo stórt atvinnufyrirtæki
og vísaði til reynslunnar i Noregi.
Viðbrögð Valgerðar Sverrisdótt-
ur iðnaðarráðherra voru þau að
ekki væri mikið mark takandi á
þessum ummælum, Eivind Reiten
væri jú bara undirsáti hjá Norsk
Hydro. Gárungar velta nú fyrir
sér hvort ekki verði dálítið vand-
ræðalegt hjá ráðherranum næst
þegar hún þarf að ræða við þenn-
an ómerkilega undirsáta sem nú
ku vera orðinn aðalforstjóri...
Ragna Sara í víking
Svo sem Sandkorn greindu frá
er Ragna Sara i
Jónsdóttir að
hætta í Kastljósi [
en systir henn-
ar, Eva María I
Jónsdóttir, tek-
ur viö. Það er
ævintýraþráin í
sem veldur því
að Ragna Sara
hverfur af sjón-
varpsskjánum því hún hyggst
leggjast í víking í hálft ár. Fyrst
liggur leið hennar til Indlands en
síðan til Afríku þaðan sem hún
mun skrifa greinar um mannlíf og
náttúru. Heima á íslandi bíður
unnusti hennar, Stefán Sigurðs-
son Valgeirssonar, starfsmaður
fiölmiðlafyrirtækisins Inntaks...
Hjálmar klárar þingið
Senn líður að því að alþingis-
maðurinn Hjálmar Jónsson
hverfi af þingi
til að leiðbeina
fólki um Guðs
vegi. Hjálmar
tekur við emb-
ætti dóm-
kirkjuprests í
febrúar eftir
tæpa tvo mán-
uði. Hann
mun þó ætla
að sitja á þingi fram á vor en kalla
inn varaþingmann eftir atvikum.
Menn eru nokkuö sammála um að
Alþingi verði svipminna þegar
vísnaskáldið góða snýr sér að sálm-
unum...
Á Guðs vegum
Það eru íleiri á Guðs vegum en
Hjálmar þessa
dagana. Þannig
mun hin kunna
útvarpskona,
Anna Kristine
Magnúsdóttir,
verða á kristi-
legum nótum í
þætti sínum
Milli mjalta og
messu á Bylgj-
unni á jóladag. Anna hefur stefnt
til sínu tveimur prestum sem báðir
heita sama nafni. Séra Sigurður
Amarson, prestur í Grafarvogi, og
séra Sigurður Grétar Helgason,
prestur á Seltjarnamesi, munu
ræða mál á samfélagsnótum. Sorg-
in og framhjáhaldið eru meðal þess
sem ungu prestarnir ræða. Það
vekur athygli að Bylgjan auglýsir
hina vinsælu þætti Önnu lítið og
heyrst hefur að innan Rásar 2 sé
áhugi á að ná þættinum aftur...