Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2000, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
Fréttir_________________________________________PV
Harðnandi átök milli umhverfisráðherra og meirihluta Náttúruverndarráðs:
Munaðarlaus málaflokkur
- flokkspólitískar línur settar ofar lögum, segja náttúruverndarsinnar
Náttúruverndarráð er nú í sér-
kennilegri stöðu. Meirihluti þess
er alvarlega upp á kant við Siv
Friðleifsdóttur umhverfisráðherra
sem hefur ekki vandað honum
kveðjurnar i fjölrriðlum í vikunni.
Þá hefur framkvæmdastjóri Nátt-
úruverndar ríkisins lagt til að
Náttúruverndarrráð verði lagt niö-
ur. Umhverfisráðherra segist vera
að skoða það mjög alvarlega, enda
hafi Náttúruverndarráð farið langt
út fyrir valdsvið sitt með ályktun-
um um kísilgúrnám í Mývatni.
Þetta er óneitanlega nokkuð sér-
kennilegt í ljósi hlutverks ráðsins
sem samkvæmt lögum er að stuðla
að náttúruvernd og vera umhverf-
isráðherra, Náttúruvernd ríkisins
og öðrum stjórnvöldum til ráðgjaf-
ar um náttúruverndarmál
Kolfinna Magnús
Gegn ályktun Gegn ályktun
Náttúruverndarráð er skipað níu
mönnum. Umhverfisráðherra skip-
ar fimm þeirra i upphafi náttúru-
verndarþings, fjóra að fengnum til-
lögum Náttúrufræðistofnunar ís-
lands, Háskóla íslands, Bændasam-
taka íslands og Ferðamálaráðs og
einn án tilnefningar og skal hann
vera formaður ráðsins. Fjórir
skulu kosnir á náttúruverndar-
þingi. Varamenn skulu skipaðir og
kosnir með sama hætti. Þeir sem
sæti eiga í ráðinu nú eru Kolfinna
Jóhannesdóttir, formaður, Eyþór
Einarsson, samkvæmt tilnefningu
Náttúrufræðistofnunar, Bryndís
Brandsdóttir, samkvæmt tilnefn-
ingu Háskóla íslands, Jón Bene-
diktsson, samkvæmt tilnefningu
Bændasamtaka íslands, Magnús
Oddsson, samkvæmt tilnefningu
Ferðamálaráðs íslands og Guð-
mundur Páll Ólafsson, Kári Krist-
jánsson, Þórhallur Þorsteinsson og
Þorvarður Árnason kosnir á nátt-
úruvemdarþingi.
mmsmmíL:. :
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
blaöamaður
Ráðherra hefur kallað eftir af-
stöðu Náttúruverndarráðs til til-
lögunnar um að leggja það niður,
þar sem frjáls félagasamtök hafi
hugsanlega gert það óþarft. Ráðið
hefur svarað ráðherra því að sam-
kvæmt hlutverki þess, sem lög
kveði á um, geti frjáls félagasam-
tök ekki komið í stað stjórnskip-
aðra ráða eða nefnda.
Siv hlustar ekki
Þessi uppákoma milli umhverfis-
ráðherra og Náttúruverndarráðs
nú, í kjölfar ályktunar meirihluta
þess um kisilgúrnám í Mývatni, er
ekki sú fyrsta á skömmum tíma. í
janúar sl. gagnrýndi þáverandi for-
maður ráðsins, Ólöf Guðný Valdi-
marsdóttir, varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins, ráðherra harð-
lega. „Umhverfisráðherra hefur
hvorki þegið ráðgjöf okkar né bein-
línis leitað ráðgjafar hjá okkur,“
sagði hún þá við DV. Hún sagði
enn fremur að það hefði verið erfitt
hlutverk að vera formaður Nátt-
úruverndarráðs þar sem mismun-
andi skilningur hafi verið á ráð-
gjafarhlutverki ráðsins. Það hefði
gert athugasemd við rammaáætlun
ríkisstjórnarinnar í umhverfismál-
um og fengið mikla gagnrýni fyrir.
Þá hefði ráðið ítrekað lagt til við
stjórnvöld að Fljótsdalsvirkjun
færi í mat á umhverfisáhrifum. Því
hefði ekki verið sinnt.
Aðstoðarmaður umhverfisráð-
herra, Einar Sveinbjörnsson, svar-
aði þessari gagnrýni á þann veg að
ekki hefði ríkt trúnaður milli for-
mannsins og ráðherra síðan sl.
sumar þegar „heilmikið moldviðri"
hefði orðið vegna ályktunar Nátt-
úruverndarrráðs um umrædda
rammaáætlun ríkisstjórnarinnar.
Benti aðstoðarmaður á að ráðið
væri fyrst og fremst ráðgjafi fyrir
ráðherra. Á sama tíma hafði Ríkis-
útvarpið eftir Siv Friðleifsdóttur að
Eyþór Bryndís
Meö ályktun Meö ályktun
Kísilgúrúrskurður
Meirlhluti Náttúruverndarráös er ósáttur viö úrskurö umhverfisráöherra um kísilgúrnám í Mývatni þar sem ráöherrann
staöfesti úrskurö Skipulagsstofnunar. Myndin er af dælingu kísilgúrs úr Mývatni.
Guðmundur Páll Kristín
Meö ályktun Varamaöur -
meö ályktun
fyrir dyrum stæðu grundvallar-
breytingar á Náttúruverndarrráði
eða það yrði lagt niður i núverandi
mynd. Hún hafi átt erfitt með að
líta á ráðið sem ráðgjafa.
Ekki var þó sagan öll, því
skömmu eftir fram komna gagn-
rýni Ólafar Guðnýjar var haldið
flölsótt náttúruverndarþing. Þar
fékk Siv Friðleifsdóttir harðar ávít-
ur. Bentu fundarmenn á að
ósmekklegt hefði verið af ráðherr-
anum að gagnrýna harðlega þrjá
ráðsmenn í útvarpsviðtali, þá Guð-
mund Ólafsson, Kára Kristjánsson
og Þórhall Þorsteinsson. Þeir þrir
fengu raunar flest atkvæði í kosn-
ingu í Náttúruverndarráð á þing-
inu. Þá kom fram mikil gagnrýni
þingfulitrúa á umhverfisráðherra
og ráðuneytið. „Fólki fannst að
ráðuneytið hefði ekki sinnt þessum
málaflokki sem skyldi, hann væri
nánast munaðarlaus," sagði fráfar-
andi formaður eftir þingið.
Umhverfisráöherra
Meirihluti Náttúruverndarráös er öfgamenn sem eru á móti öllu, sagöi
ráöherra m.a. um þá ráösmenn sem samþykktu umrædda ályktun.
Ekki að lögum
í kjölfar leyfisveitingar skipulags-
stjóra í sumar tO kísilgúrtöku úr
Syðriflóa Mývatns varð enn harðari
árekstrur milli Náttúruverndarrráðs
og umhverfísráðherra. Eftir úrskurð
skipulagsstjóra um námaleyfið bár-
ust allmargar stjórnsýslukærur til
umhverfisráðherra vegna hans, þar
á meðal frá Náttúruvemd ríkisins.
Náttúruvemdarrráð lagði fram um-
sögn sína til umhverfisráðherra um
málið, þar sem það réð eindregið frá
frekari vinnslu kísilgúrs úr vatninu.
Umhverfisráðherra staðfesti hins
vegar leyfisveitinguna í meginatrið-
um með úrskurði sínum.
Meiri hluti Náttúruverndarráðs
vildi ekki una þessum málalyktum.
Á fundi í nóvemberlok samþykkti
meirihluti þess að beina þeim til-
mælum til Náttúruverndar ríkisins,
sem „lögskipaðs verndara Mývatns-
og Laxársvæðisins, að fylgja eftir
stjórnsýslukæru sinni til umhverfis-
ráðuneytisins og veita ekki leyfi til
námagraftrar í Syðriflóa Mývatns".
Þá samþykkti meirihlutinn harð-
orða ályktun til umhverfisráðherra
vegna sama máls. Þar segir að ráðið
sé ósátt við úrskurð umhverfisráð-
herra um kísilgúrnám í Mývatni nú
nýverið, þar sem ráðherrann stað-
festi úrskurð Skipulagsstofnunar. í
ályktuninni segir enn fremur: „Ráð-
ið lítur svo á að með úrskurðinum
hafi umhverfisráðherra hvorki tekið
tillit til markmiða laga um verndun
Mývatns og Laxár nr. 36 frá 2. maí
1974, laga um mat á umhverfisáhrif-
um nr. 106 frá 25. maí 2000 né laga
um náttúruvernd nr. 44 frá 22. mars
1999. Með úrskurði sínum virðir ráð-
herra að vettugi þau vísindalegu rök
og verndunarsjónarmið sem lögð
voru til grundvallar yfirgnæfandi
meirihluta framkominna stjórn-
sýsluákæra á úrskurð Skipulags-
stofnunar svo og álit þeirra vistfræð-
inga sem veittu umsögn um kærurn-
ar...“
Alvarlegt gáleysi
Ráðið bendir enn fremur á að
Skipulagsstofnun byggi úrskurð sinn
á umdeildri umsögn starfsmanna er-
lendrar verkfræðistofu sem ekki hafi
sjálfir stundað rannsóknir á lífríki
Mývatns og hafi haft mjög takmark-
aðan tíma til að kynna sér þær. Þá
segir: .Þrátt fyrir þessa alvarlegu
veilu í rökstuðningi Skipulagsstofn-
unar, auk þess sem helstu náttúru-
fræði- og náttúruverndarstofnanir
landsins, svo og Háskóli íslands
lögðu eindregið til að úrskurður
hennar yrði felldur úr gildi, staðfesti
ráðherra úrskurðinn í meginatrið-
um og túlkaði varúðarregluna fram-
kvæmdaaöila í hag. Slík túlkun and-
ar köldu í garð íslenskra laga um
náttúruvernd..."
I ályktun meirihluta Náttúru-
verndarrráðs segir enn fremur að
ekki sé að sjá að „ráðherra hafi farið
skipulega yfir skuldbindingar íslend-
inga gagnvart alþjóðlegum samning-
um, sem við erum aðilar að, eða met-
ið áhrifin i ljósi þeirra.
Náttúruverndarráð telur umfjöll-
un og meðhöndlun umhverfisráðu-
neytisins á fræðilegum upplýsingum
og hugtakabrenglun ámælisverða og
að umhverfisráðherra hafi með úr-
skurði sínum sýnt alvarlegt gáleysi
sem verndari íslenskrar náttúru og
virt að vettugi þekkingu og reynslu
þeirra sem best þekkja til.“
Sex fulltrúar Náttúruverndarráðs
samþykktu ofangreinda ályktun,
einn sat hjá en tveir voru á móti, þau
Magnús Öddsson frá Ferðamálaráði
og Kolfínna Jóhannesdóttir, formað-
ur, skipuð af ráðherra.
Kolflnna kvaðst telja að fundur
sem Náttúruverndarráð hefði átt
með umhverfisráðherra 13. nóvem-
ber sl., þar sem málið var rætt ítar-
lega, hefði verið fullnægjandi. Hún
teldi að ályktanirnar samræmdust
ekki starfsháttum Náttúruverndarr-
ráðs sem ráðgefandi aðila.
Siv Friöleifsdóttir sagði við DV
um ályktun Náttúruverndarrráðs að
meirihluti þess væri öfgamenn sem
væru á móti öllu. Árni Finnsson,
framkvæmdastjóri Náttúruverndar-
samtaka íslands, sagði hins vegar að
umhverfisráðherra myndi veikja
málaflokkinn með því að leggja Nátt-
úruvemdarrráð niður án þess að
koma með hugmyndir í staðinn.
Standa vörð
„Náttúruverndarrráð er siður en
svo máttlaust. Það hefur áhrif og er
að vinna mjög mikið af ráðgefandi
upplýsingum í alls kyns rnálurn,"
sagði Guðmundur Páll Ólafsson líf-
fræðingur, sem sæti á í Náttúru-
verndarrráði, aðspurður um stöðu
ráðsins nú. „Hins vegar virðist vera
venja hjá stjómvöldum nú, að taka
þá úr sambandi sem andmæla ríkis-
stjórn eða ráðherra. Ráðherravaldið
er orðið svakalegt. Það getur því vel
verið að Náttúruverndarráð verði
lagt niður. En það er þá fyrst og
fremst vegna þess að það hefur ekki
farið eftir flokkspólitískum línum
heldur að lögum.
Staðan er þannig að Náttúru-
verndarrráð vinnur sina vinnu og
stendur vörð um náttúru landsins.
Það er okkar hlutverk og við munum
standa þann vörð meðan stætt er.“