Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2000, Blaðsíða 73
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
r>v
Tilvera
77
uwsmmnm
Þegar Trölli stal jólunum
Illa fariö með Trölla
★★
Teiknimynd-
in Þegar Trölli
stal jólunum
(How the
Grinch Stole
Christ-mas) er
án vafa í hópi
skemmtileg-
ustu teikni-
mynda sem
gerðar hafa
verið. Leik-
stjóri og teikn-
ari er hinn frægi Chuck Jones, sem
m.a. gerði teiknimyndir um Tomma og
Jenna. Sagan um Trölla er eftir Dr.
Seuss og og var fyrir löngu gefin út í ís-
lenskri þýðingu Þorsteins Valdimars-
sonar, auk þess sem myndin hefur ver-
ið sýnd í íslensku sjónvarpi. Söguna af
Trölla þekkja flestir en hann er hin
mesta ótukt og hefur svo mikla óbeit á
jólunum að hann reynir að skemma
þau tyrir öðrum.
í umsögn útgefanda teiknimyndar-
innar segir að myndin sé í endurbættri
útgáfu og með vandaðri talsetningu.
Það kann vel að vera að útgáfan sé end-
urbætt en vönduð getur talsetningin
ekki talist. í sönglögunum heyrist til
dæmis í ensku útgáfunni undir og rödd
sögumannsins er ekki nógu nálæg.
Þrátt fyrir frábæran texta nær sögu-
maður aldrei að hrífa áhorfendur og
því verður þetta snilldarverk aldrei
nema svipur hjá sjón. Það er lika furðu-
legt að hvorki sögumanns né annarra
sem unnu að talsetningunni er getið í
myndinni. Hér er á ferðinni frábær
teiknimynd sem þvi miður liður fyrir
óvandaða talsetningu. -aþ
Útgefandi: Skífan. Höfundar: Dr. Seuss, Irv
Spector og Bog Ogle. Bandaríkin 1966. Lengd:
66 mín. Öllum leyfð. Með íslensku tali.
Meistaragolf:
Úlfar og Arnar Már
leiðbeina kylfingum
Fyrir tveimur árum
kom út bókin Betra golf
eftir Amar Már Ólafsson
golfkennara og Úlfar Jóns-
son, fyrrum atvinnumann
og margfaldan íslands-
meistara í golfi. Bókin
vakti athygli og hrifningu
hjá kylfingum enda farið
á skynsaman máta í gegn-
um allar hliðar golfsins og
hafa margir notfært sér
bókina til að verða betri
kylfmgar. í bókinni voru
vel útfærrðar myndaseri-
ur af ýmsum æfingum.
Þegar golfið á i hlut
kennslulega séð þá er
mikill akkur í kennslu á
myndbandi og því hafa
þeir félagar Arnar Már og
Úlfar fylgt eftir bókinni
með kennslumyndbandi
sem er nýkomið út. Nefna
þeir • myndbandið
Meistaragolf. Á mynd-
bandinu fara þeir félagar í
gegnum allt ferlið á mynd-
rænan og skemmtilegan
hátt þegar bæta á leikinn,
svo sem grip, stöðu,
tækniatriði sveiflunnar,
stutta spil og fjölda æfinga
sem eiga að auka skilning
á leyndardómum golfsins.
Auk þessa kenna Arnar Már og Úlf-
ar einfaldar og skemmtilegar æfmg-
ar sem þjálfa rétta tækni og auka til-
finningu og keppnisskap. Mynd-
bandið var tekið upp á golfvelli Gut
Duneburg golfklúbbsins í Þýska-
landi þar sem Arnar Már starfar.
Golfiþróttin er í örum vexti og
fjölgun kylfinga mikil á síðustu
árum og nú er svo komið að Golf-
sambandið er orðið næstfjölmenn-
asta sambandið innan ÍSÍ. Það er
því mikil þörf fyrir myndband sem
þetta og sjálfsagt myndu margir
kylfingar gleðjast við að sjá það í
jólapakkanum.
h\ Spunilsson
Laugavegi 5
-w-
Fékkstu kartöflu
í skóinn?
Snúðu þá vörn í sókn!
Búðu til fallega jólakúlu eða jólakúlur...
ef þú hefur fengið fleiri en eina! Þetta gerir
þú ýmist með því að úða gylltum lit yfir
hana eða pakka henni inn í álpappír.
Þetta getur þú svo notað til að skreyta
herbergið þitt eða jafnvel jólatréð.
Pínirvinir
íslenskir kartöflubændur
*
4
Sími 588 5108
Síðumúla 13
Ný sending Spænskt
f'